Fréttir
Fjögur sjúkraflug í dag Mikið hefur verið að gera í sjúkraflugi í dag og hefur verið flogið fjórum sinnum. Þar af þurfti að sinna þremur sjúklingum strax. Flugfélag Íslands flaug í öll skiptin. Innlent 14.1.2006 19:07
Kalt bað í Tokyo Það er víðar kalt en á Íslandi þessa dagana en sumir láta hins vegar kuldabola ekkert á sig fá. Þannig létu tvær tylftir Japana sig ekki muna um að bregða sér í bað í þriggja gráðu kaldri laug við sjintó-hof í Tokyo í dag. Erlent 14.1.2006 18:52
Íransforseti þegir þjóð sína ekki þurfa kjarnorkuvopn Íransforseti situr fast við sinn keip og segir þjóð sína ekki þurfa á kjarnorkuvopnum að halda. Einungis þær þjóðir sem leysa vilja deilur með átökum þarfnist slíkra vopna að hans mati. Erlent 14.1.2006 18:48
Ekki víst hvort hægri hönd bin Ladens hafi fallið í loftárás í Pakistan 18 liggja í valnum eftir eldflaugaárás á þorp í Pakistan þar sem liðsmenn al-Qaida samtakanna voru sagðir hafast við. Íbúar þorpsins sverja af sér öll slík tengsl og segja konur og börn hafa farist í árásinni. Erlent 14.1.2006 18:37
Íslenskan friðargæsluliða sakaði ekki þegar bílasprengja sprakk á Sri Lanka Íslenskan friðargæsluliða sakaði ekki þegar bílsprengja sprakk nálægt höfðustöðvum norrænna friðargæsluliða í borginni Batticaloa á Sri Lanka í gær. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu lét enginn lífið í árásinni og enginn særðist. Innlent 14.1.2006 18:29
Rooney og Ferguson misstu stjórn á sér Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United og sóknarmaður liðsins, Wayne Rooney misstu stjórn á skapi sínu í hálfleik í 3-1 tapleiknum gegn Man City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tvímenningarnir helltu úr skálum reiði sinnar á leið til búningsherbergja yfir dómarann Steve Bennett sem átti slæman dag með flautuna. Sport 14.1.2006 17:30
Sjö marka sigur Arsenal iverpool vann 1-0 sigur á Tottenham í ensku úrvalseildinni í knattspyrnu nú síðdegis og saxaði á forskot Man Utd niður í eitt stig. Arsenal var þó í aðalhlutverki á Englandi í dag en liðið tók Middlesborough í bakaríið, 7-0 þar sem Thierry Henry skoraði þrennu. Heiðar Helguson lék allan leikinn með Fulham sem lagði Newcastle 1-0, sömuleiðis Hermann Hreiðarsson í liði Charlton sem lagði Birmingham 2-0. Sport 14.1.2006 17:06
Enn eitt banaslysið Banaslys einkenna París-Dakar rallýið sem lýkur á morgun en í dag lést 12 ára drengur sem varð fyrir aðstoðarbíl. Atvikið átti sér stað á milli senegölsku borganna Tambacounda og Dakar á fjórtándu sérleiðinni en bíllinn ók eftir sérstökum vegi fyrir aðstoðarökutæki. Sport 14.1.2006 16:28
19 ára miðjumaður til Arsenal Arsenal hefur fest kaup á 19 ára gömlum frönskum miðjumanni, Vasiriki Abou Diaby fyrir að talið er vera um 2 milljónir punda. Diaby var fyrirliði U19 ára landsliðs Frakka sem varð Evrópumeistari síðasta sumar en hann kemur úr yngri flokkum franska liðsins Auxerre. Sport 14.1.2006 15:50
Aðeins tveir Íslendingar með í dag Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir í byrjunarliði Reading sem nú leikur við Coventry í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Jóhannes Karl Guðjónsson er í leikbanni hjá Leicester sem er 0-1 yfir á útivelli gegn Sheffield Wednesday. Sport 14.1.2006 15:37
Eiður baunar á Sir Alex Eiður Smári Guðjohnsen tekur upp hanskann fyrir knattspyrnustjórann sinn Jose Mourinho í viðtali við Sky Sports fréttavefinn í dag og segir stjóra sinn stórlega vanmetinn. Eiður pundar meðal annars á Alex Ferguson, stjóra Man Utd, sem einnig hefur spreðað ófáum milljónum en ekki í réttu leikmennina. Sport 14.1.2006 15:21
City lagði 10 manna lið Man Utd Manchester City lagði granna sína í Man Utd 3-1 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu í dag. Trevor Sinclair, Darius Vassel og Robbie Fowler skoruðu mörk heimamanna. Ruud van Nistelrooy skoraði mark gestanna þegar hann minnkaði muninn í 2-1. Sport 14.1.2006 14:45
Nágrannaslagur í Kaplakrika Fimm leikir fara fram í DHL-deild kvenna í handbolta í dag og hófst sá fyrsti kl. 14:00 þar sem topplið ÍBV tekur á móti Fram í Eyjum. Kl. 16:15 mætast í nágrannaslag liðin í öðru og þriðja sæti, FH og Haukar. Sport 14.1.2006 14:10
Forseti Írans segir þjóð sína ekki þurfa kjarnorkuvopn Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði á blaðamannafundi í dag að þjóð sín þyrfti ekki á kjarnorkuvopnum að halda. Einungis þær þjóðir sem leysa vildu deilur með átökum þörfnuðust slíkra vopna. Erlent 14.1.2006 14:03
Svissneskur þingmaður fullviss um að Bandaríkjamenn hafi rekið leynifangelsi í Evrópu Dick Marty, svissneski þingmaðurinn sem stýrir rannsókn Evrópuráðsins á hvort bandarísk stjórnvöld hafi rekið leynifangelsi í álfunni og stundað umfangsmikla fangaflutninga þeim tengdum, kveðst fullviss um að ásakanirnar eigi við rök að styðjast. Erlent 14.1.2006 13:48
Man City 2-0 yfir gegn Man Utd Manchester City er 2-0 yfir í hálfleik á heimavelli sínum gegn grönnunum í Man Utd í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Trevor Sinclair skoraði fyrra markið á 32. mínútu en Darius Vassel hið síðara á 39. mínútu. Sport 14.1.2006 13:39
Evra í byrjunarliði Man Utd Franski varnarmaðurinn Patrice Evra er í byrjunarliði Manchester United sem nú mætir nágrönnum sínum í Man City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en leikurinn hófst í hádeginu. Trevor Sinclair skoraði fyrir heimamenn á 32. mínútu og er staðan 1-0 fyrir Man City. Sport 14.1.2006 13:23
Átján féllu í eldflaugaárás í Pakistan Átján féllu í eldflaugaárás sem gerð var á pakistanskt þorp í morgun en þar var talið að liðsmenn al-Kaída hefðust við. Erlent 14.1.2006 12:41
Sex á slysadeild vegna líkamsmeiðinga Sex manns komu á slysadeild í morgun vegna líkamsmeiðinga og ofbeldisáverka. Einn maður var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir að hann var sleginn niður. Innlent 14.1.2006 12:32
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Sæbraut í Reykjavík í gærmorgun, hét Pétur Sigurðsson til heimilis að Geitlandi 8 Reykjavík. Hann var fæddur tuttugasta og sjöunda janúar árið 1946 og hefði því orðið sextugur í þessum mánuði. Pétur, sem var kjötiðnaðarmaður og strætisvagnabílstjóri, lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin börn. Innlent 14.1.2006 12:28
Bæjarstjóri sækist ekki eftir sæti á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa ekki ákveðið hvort núverandi bæjarstjóri, verði bæjarstjóraefni flokksins vegna sveitastjórnarkosninga í vor. Prófkjör flokksins þar í bæ er haldið í dag í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi og er bæjarstjórinn ekki í framboði. Innlent 14.1.2006 12:17
Býst við fjörugum umræðum á launamálaráðstefnu Formaður launanefndar sveitarfélaganna segir miklar væntingar til launamálaráðstefnu sem haldin verið næsta föstudag en að þau deilumál sem uppi eru í kjaramálum verði ekki leyst strax þann dag. Hann býst við fjörugum umræðum á ráðstefnunni þar sem fjárhagsleg staða sveitarfélaganna sé mjög mismunandi. Innlent 13.1.2006 22:57
Dómari í máli Saddams Hussein ætlar ekki að hætta Dómari við dómstólinn sem réttar yfir Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra í Írak, segir fullyrðingar yfirdómara í málinu um að hann ætli að hætta staðlausa stafi. Erlent 14.1.2006 10:13
Fimm námamenn létust í sprengingu Fimm rúmenskir námamenn fórust og tveir slösuðust þegar sprenging varð í kolanámu í vesturhluta landsins. Tveggja er enn saknað. Erlent 14.1.2006 10:10
Gaus fimm sinnum Eldfjallið Augustine í Alaska gaus að minnsta kosti fimm sinnum í gær. Aflýsa varð flugi og loka skólum vegna gossins og voru um 16.000 íbúar í nágrenni fjallsins varaðir við öskufalli. Erlent 14.1.2006 10:04
Svín með græn líffæri Vísindamenn við ríkisháskóla í Taívan hafa náð að rækta græn svín, sem glóa í myrkri. Þótt fyrst og fremst séu það trýnið og klaufirnar sem eru græn að lit, er kannski enn sérstakara að öll líffærin í svínunum eru græn. Erlent 13.1.2006 22:31
Mannréttindaskrifstofa sækist eftir öllu fénu Mannréttindaskrifstofa Íslands hyggst sækjast eftir öllum þeim átta milljónum króna sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið veitir til verkefna á sviði mannréttindamála. Þá mun skrifstofan halda áfram baráttu sinni fyrir því að fá fast fjármagn á fjárlögum. Innlent 13.1.2006 23:07
LungA hlaut Eyrarrósina LungA - listahátíð ungs fólks, Austurland varð hlutskarpasta verkefnið sem tilnefnt var til EyrarrósarinnarÞað var Dorrit Moussaieff, forsetafrú og sérlegur verndari Eyrarrósarinnar sem afhenti framkvæmdarstjóra LungA verðlaunin á Bessastöðum. Innlent 13.1.2006 22:43
Sigvaldi Kaldalóns 125 ára Sigvaldi Kaldalóns, eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar, hefði orðið hundrað tuttugu og fimm ára í dag. Sigvaldi samdi á annað hundrað söng- og kórlaga sem mörg hver njóta enn mikilla vinsælda. Innlent 13.1.2006 22:28
Fádæma mikið álag á slökkviliði Fádæma mikið hefur verið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins við sjúkraflutninga í dag. Frá klukkan hálfátta í morgun til klukkan tíu í kvöld fór slökkviliðið í 76 sjúkraflutninga en á meðaldegi eru flutningarnir á milli fjörutíu og fimmtíu talsins. Innlent 13.1.2006 22:11