Fréttir
Heimildir LN til launahækkana nýttar í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær, þriðjudaginn 7. febrúar, að nýta að fullu þær heimildir til hækkunar launa leikskólakennara og félagsmanna í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar sem tillögur launanefndar frá 28. janúar sl. gera ráð fyrir. Innlent 8.2.2006 14:36
Ísland í ESB fyrir 2015 Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, spáir því að Ísland verði gengið í Evrópusambandið fyrir árið 2015. Þetta kom fram í ræðu hans á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands sem haldið er í dag. Þingið ber yfirskriftina "Ísland árið 2015". Innlent 8.2.2006 14:11
Vilja ekki einhliða styttingu framhaldssskóla Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri mótmælir þeim hugmyndum sem uppi eru um einhliða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú til að ná fram styttingu á heildar skólagöngu fyrir stúdentspróf. Þrátt fyrir að ekki sé talað um slíka styttingu í samkomulagi KÍ og menntamálaráðuneytis frá 2. febrúar síðastliðnum virðist báðir aðilar sammála um að hrinda henni í framkvæmd og skuli undirbúningur þessarar styttingar hefjast árið 2007 til að hún geti gengið í gildi árið 2010. Innlent 8.2.2006 13:54
Þóttist vera Íslendingur Trúlega varð það norsku blaðakonunni Line Fransson til lífs að hún þóttis vera Íslendingur meðal æstra mótmælenda í Íran í fyrrakvöld. Line greinir frá þessu í pistli sínum á vefsíðu norska blaðsins Dagbladet. Fransson er nú stödd í Teherean og fylgist með mótmælum múslima þar vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni sem Jótlandspósturinn birti fyrir nokkrum mánuðum. Erlent 8.2.2006 12:50
Loðnuvertíðin með ólíkindum Loðnuvertíðin nú í vetur er öll með miklum ólíkindum og segja Austfirðingar að hún sé að fljóta framhjá þeim án þess að svo mikið sem skilja eftir peningalykt, í víðasta skilningi þess orðs. Innlent 8.2.2006 12:43
Viðræðum lauk án árangurs Viðræðum Japana og Norður-Kóreumanna, um að reyna að koma á nýju stjórnmálasambandi, lauk í morgun án árangurs. Japönsk stjórnvöld sögðust í gær ekki ætla að koma aftur á stjórnmálasambandi við Norður-Kóreu ef ekki finnist lausn á kjarnorkudeilunni við þá og upplýsingar fáist um alla þá japönsku ríkisborgara sem Norður-Kóreumenn rændu fyrir rúmum þrjátíu árum. Erlent 8.2.2006 12:37
Sala á flugmiðum gengu vel Sala á flugmiðum til Lundúna með British Airways, sem hefur áætlunarflug til og frá Íslandi í lok mars, gengur afar vel að sögn Betty Livingstone, talsmanns á skrifstofu félagsins í Bretlandi. Eftir að salan hófst í síðustu viku bar nokkuð á vandamálum við að greiða með krítarkortum á netinu. Betty segir að vandinn hafi verið hjá Visa en búið sé að leysa málið. Innlent 8.2.2006 12:34
Skopmyndasamkeppni um Helförina Íranskt dagblað ætlar að efna til skopmyndasamkeppni um Helförina. Forsvarsmenn blaðsins segja að með því ætli þeir að láta reyna á hversu mikilvægt Vesturlandabúar telji tjáningarfrelsið vera. Erlent 8.2.2006 12:28
Ísraelar og Palestínumenn aðskildir fyrir fullt og allt Forsætisráðherra Ísraels ætlar að skilja að Ísraelsmenn og Palestínumenn fyrir fullt og allt eftir kosningar sem fram fara í landinu í mars. Hann segir að það sé eina leiðin til að koma á friði milli þjóðanna tveggja. Erlent 8.2.2006 12:23
2 litlir jarðskjálftar í jaðri Heimaeyjar Tveir litlir jarðskjálftar urðu á mánudag í jarðir Heimaeyjar og rétt norðan við eynna. Upptök þeirra voru nánast undir syðri gangaopum hugsanlegra jarðganga á milli lands og Eyja. Innlent 8.2.2006 12:07
Göng milli lands og Eyja ekki framtíðarkostur Göng milli lands og Eyja eru ekki framtíðarkostur að mati samgöngunefndar Alþingis að því er fram kemur á fréttavefnum Suðurland.is Innlent 8.2.2006 12:03
Máli sr. Hans Markúsar vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjaness vísað í morgun frá dómi máli sem séra Hans Markús Hafsteinsson, fyrrverandi sóknarprestur í Garðasókn, höfðaði á hendur Matthíasi Guðmundi Péturssyni, Arthur Knut Farestveit, Friðriki Hjartar, Nönnu Guðrúnu Zoëga og íslensku þjóðkirkjunni vegna tilflutnings hans í starfi. Innlent 8.2.2006 11:26
SUF hvetur stjórnvöld til að aðstoða við ættleiðingar Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna skorar á Íslensk stjórnvöld að leita leiða til að aðstoða kjörforeldra við ættleiðingar. Í nágrannalöndunum séu veittir styrkir til að vega upp á móti miklum kostnaði við ættleiðingar, en enga slíka aðstoð sé að fá hér á landi. Innlent 8.2.2006 10:54
Mikið um búferlaflutninga til og frá Íslandi 2005 Töluvert var um búferlaflutninga til og frá Íslandi á síðasta ári. Aðfluttir umfram brottfluttir voru hátt í 4.000 en árið áður voru þeir 530. Er þetta rúmlega sjöföldun milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar kemur fram að í fyrra voru rúmlega 68.000 breytingar á lögheimili skráðar í þjóðskrá. Þar af var í rúmlega 56.000 tilvika um að ræða búferlaflutninga innanlands. Innlent 8.2.2006 10:20
VG í Reykjavík vill slíta samstarfi um Strætó Vinstri grænir í Reykjavík vilja slíta samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um rekstur Strætó, og að rekstur almenningsvagna eigi að verða hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Innlent 8.2.2006 09:29
12 létust og 20 slösuðust í gassprengingu í herskála í Téténíu 12 hermenn létust og yfir 20 manns slösuðust þegar gassprenging varð í tveggja hæða herskála í Téténíu síðdegis í gær. Sprengingin varð á svæði sérstakra öryggissveita á vegum varnarmálaráðuneytis landsins í um 30 kílómetra fjarlægð frá Grosní, höfuðborg landsins. Erlent 8.2.2006 09:24
Mannfall í mótmælum í Afganistan Að minnsta kosti 2 Afganar létu lífið og 16 særðust í mótmælaaðgerðum í Zabul-héraði í Suður-Afganistan í morgun. Um það bil 600 múslimar höfðu komið þar saman til að mótmæla skopmyndum af Múhameð spámanni. Erlent 8.2.2006 09:13
Mannskæð sprengjuárás í Bagdad Einn féll og tveir særðust þegar bílasprengja sprakk nálægt bílalest menntamálaráðherra Íraks í miðborg Bagdad í morgun. Innanríkisráðuneyti landsins greinir frá þessu. Það var vegfarandi sem lét lífið í sprengjuárásinni og tveir lífverðir ráðherrans særðust. Erlent 8.2.2006 09:11
SÞ og ESB taka höndum saman til að lægja öldurnar meðal múslima Jótlandspósturinn greinir frá því á vefsíðu sinni í morgun að Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafi tekið höndum saman með 57 íslömskum ríkjum til að reyna að lægja öldurnar á meðal múslima. Erlent 8.2.2006 09:05
Launamisrétti í sögulegu hámarki Starfsgreinasambandið segir að forsendur kjarasamninga þess við ríkið og samtök atvinnulífsins séu brostnar ef lægstu laun á hinum almenna launamarkaði verða ekki hækkuð til samræmis við þær hækkanir sem launanefnd sveitarfélaganna leggur til. Innlent 8.2.2006 09:03
Gera ekki kröfu um annað sætið Konurnar sem komu næstar á eftir Önnu Kristinsdóttur í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík gera ekki kröfu um annað sætið. Það lítur því út fyrir að tveir karlmenn leiði lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 8.2.2006 00:10
Stúdentakosningar í HÍ í dag og á morgun Stúdentar við Háskóla Íslands velja í dag og á morgun nýja fulltrúa til þess að gæta hagsmuna sinna næsta árið. NFS leit við á kosningaskrifstofum tveggja fylkinga í gærkvöld þar sem frambjóðendur og sjálfboðaliðar unnu enn hörðum höndum. Innlent 8.2.2006 00:09
Íranar ætla ekki fara að reglum Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar Utanríkisráðherra Írans, Manouchehr Mottaki, sagði á blaðamannafundi í gær að Íran myndi ekki fara að reglum Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Þá verður efitirlitsmönnum stofnunarinnar ekki lengur heimilt að fylgjast með því sem fram fer í kjarnorkuverum landsins. Erlent 8.2.2006 07:13
Norðmenn varaðir við ferðum til sjö landa Norska utanríkisráðuneytið hefur varað fólk við að ferðast til sjö landa í mið-austurlöndum vegna þeirrar óvildar sem þar ríkir í garð Norðmanna og Dana um þessar mundir. Alls eru um 2800 Norðmenn skráðir í löndum þar sem múslimar eru meirihluti íbúa, þar af eru um 600 Norðmenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá eru einnig fleiri hundruð Norðmenn búsettir í Marokkó, Egyptalandi, Pakistan og Malasíu. Erlent 8.2.2006 07:39
Tveir létust og yfir þrjátíu slöðuðust í gassprengingu í Grosní Tveir hermenn létust og yfir þrjátíu slösuðust þegar þegar gassprenging varð í tveggja hæða herskála í Tétsníu síðdegis í gær. Sprengingin varð á svæði sérstakra öryggissveita á vegum varnarmálaráðuneytis landsins í um 30 kílómetra fjarlægð frá Grosní, höfuðborg landsins. Erlent 8.2.2006 07:11
Landamærahugmynd Olmerts er sögð stangast á við alþjóðalög Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels sagði í fyrsta sjónvarpsviðtali sínu í gær að Ísraelsmenn muni halda allri Jerúsalemborg, öllum Jórdanár-dalnum og öllum stærstu landtökubyggðunum. Það verði endanleg landamæri Ísraels. Erlent 8.2.2006 07:06
365-miðlar stöðva birtingu auglýsingar frá Stefáni Jóni 365-miðlar hafa stöðvað birtingu á útvarpsauglýsingu frá Stefáni Jóni Hafstein, frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingar, á útvarpsstöðvum í eigu fyrirtækisins. Í auglýsingunni kemur fram að fólk geti spurt Stefán Jón í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu um málefni í tengslum við framboð hans. Innlent 8.2.2006 07:23
Miklir skógareldar geysa í Kaliforníu Yfir tvö þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda sem geysa nú í um þrjátíu og fimm kílómetra frá Los Angeles í Kaliforníu að undanförnu. Yfir níu hundruð slökkviliðsmenn berjast nú dag sem nótt við að slökkva eldana sem hefur þó gengið brösulega vegna mikilla þurrka. Erlent 8.2.2006 07:17
Kosningum frestað vegna skorts á kjörseðlum Frestað hefur verið að loka kjörstöðum á Haítí vegna þess hve illa hefur verið staðið að þing- og forsetakosningunum en víða hefur vantað kjörseðla. Erlent 8.2.2006 07:04
Minnsti loðnukvóti í meira en áratug Loðnuvertíðin nú í vetur er öll með miklum ólíkindum eftir að loks fékst 150 þúsund tonna kvóti, sem er reyndar sá minnsti í meira en áratug. Engar loðnubræðslur eru í gangi nema hvað ein og ein er gangsett daga og dag til að bræða úrgang frá loðnufrystingunni. Innlent 8.2.2006 06:51