Fréttir
Rúmlega 66 ára nýbökuð móðir Elsta mamma í heimi hefur loks staðfestingu á nafnbót sinni. Rúmenska konan Adriana Iliescu eignaðist dótturina Maríu Elísu seint í hitteðfyrra en þá var hún 66 ára og 230 daga gömul. Starfsmenn Heimsmetabókar Guinness tóku sér hins vegar góðan tíma í að fara yfir metið og sannreyna aldur hinnar öldruðu móður áður en þeir kváðu upp úrskurð sinn. Erlent 11.2.2006 15:04
Ariel Sharon úr lífshættu Tvísýnt var um líf Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, í dag eftir að rannsóknir sýndu alvarlegar skemmdir á meltingarfærum hans. Hann er nú hins vegar talinn vera úr bráðustu lífshættunni. Erlent 11.2.2006 14:28
Ariel Sharon við dauðans dyr Læknar í Jerúsalem búast ekki við að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísrael, lifi daginn af. Hann er nú í skurðaðgerð eftir að rannsóknir sýndu alvarlegar skemmdir á meltingarfærum hans. Erlent 11.2.2006 12:24
Brjálað veður á Flateyri í gærkvöld Mikið vonskuveður reið yfir Flateyri í gærkvöld og fór vindhraði í allt að fjörtíu og fjóra metra á sekúndu. Vöruskemma í bænum hreinlega sprakk með þeim afleiðingum að braki rigndi yfir nærliggjandi hús og bíla. Tjónið af völdum veðurofsans er talið nema tugum milljóna. Innlent 11.2.2006 12:19
Efasemdir um einkavæðingu Landsvirkjunar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist hafa miklar efasemdir um að einkavæða beri Landsvirkjun. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir við upphaf landsfundar flokksins að stefna bæri að því að einkavæða fyrirtækið. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra tók í sama streng í viðtali við fjölmiðla. Innlent 10.2.2006 22:38
Hvattir til að hunsa staðsetningargjald Félag íslenskra stórkaupmanna vill að Samkeppnisráð athugi hvort um ólögmætt samráð hafi verið að ræða hjá Eimskipi og Samskipum við upptöku staðsetningargjalds. Það hvetur félagsmenn til að hunsa gjaldið. Forstjóri Samskipa segir ekkert óeðlilegt við staðsetningargjaldið. Innlent 10.2.2006 22:33
Elsta mamma í heimi Elsta mamma í heimi fékk í dag loks staðfestingu á nafnbót sinni. Rúmenska konan Adriana Ilíjeskú eignaðist dótturina Maríu Elísu seint í hitteðfyrra en þá var hún 66 ára og 230 daga gömul. Erlent 10.2.2006 22:22
Holtasóley að þjóðarblómi Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, mælti í dag fyrir þingsályktunartillögu um að holtasóley verði gerð að þjóðarblómi Íslendinga.Ráðherrann sagði blómið fallegt og og það væri ánægjulegt að fá að leggja slíkt mál fyrir Alþingi. Innlent 10.2.2006 22:17
Ísöld í Úkraínu Íbúar í borginni Alchevska í Austur-Úkraínu reyna ýmislegt til að halda á sér hita í þeim fimbulkulda sem þar geisar. Bilun varð hjá hitaveitu á svæðinu fyrir rúmum tveimur vikum og íbúar í borginni segja að þar sé nú ísöld. Erlent 10.2.2006 22:16
Ríkið haldi í þrjátíu og tvær jarðir Skriðuklaustur, Fljótsdalshéraði og Víðimýri í Skagafirði eru jarðir sem eiga að vera áfram í ríkiseigu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um þjóðjarðir sem landbúnaðarráðuneytið hefur látið gera. Innlent 10.2.2006 22:10
Reiðibál í löndum múslima Fundur leiðtoga íslamskra ríkja í hinni helgu borg Mekka í desember síðastliðnum virðist hafa verið sá frjói jarðvegur sem Múhameðsmyndunum umdeildu var sáð í. Þaðan dreifðust þær um öll Mið-Austurlönd og kveiktu það reiðibál sem nú logar í löndum múslima. Erlent 10.2.2006 22:07
Hvað á barnið að heita? Nöfnin Naranja og Bill eru íslensk mannanöfn en ekki Júdith og Mikhael samkvæmt ákvörðun þriggja manna nefndar, sem hefur það í hendi sér hvað Íslendingar mega og mega ekki heita. Innlent 10.2.2006 21:56
Á áttunda hundrað hafa kosið Um 740 manns höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar atkvæðagreiðslu utan kjörfundar lauk klukkan átta. Þar af hafði um helmingur greitt atkvæði í dag. Innlent 10.2.2006 20:49
Orkuveitan byggir veitur í Innri Akraneshrepp Orkuveita Reykjavíkur, Innri Akraneshreppur og fyrirtækið Stafna á milli á Akranesi hafa gert samning um að Orkuveitan byggi upp og reki fráveitu, gagnaveitu, hitaveitu og vatnsveitu í landi Kross í Innri Akraneshreppi. Innlent 10.2.2006 20:19
Skyndihjálparmaður ársins Rauði kross Íslands valdi Guðrúnu Björk Sigurjónsdóttur sem Skyndihjálparmann ársins fyrir rétt viðbrögð á neyðarstundu en hún vann það einstaka þrekvirki að bjarga þriggja ára dreng og stúlku frá drukknun þegar þau lentu í sjónum á Snæfellsnesi í apríl í fyrra. Innlent 10.2.2006 20:03
Áhyggjulaus um hagsmunaárekstur Þau sem keppa um fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík verja hvert um sig um fimm milljónum króna til baráttunnar. Þau hafa ekki áhyggjur af hagsmunaárekstri þó meðal stuðningsaðila þeirra sé fjöldi fyrirtækja. Innlent 10.2.2006 19:43
Engar bætur fyrir fótamissi Pólskur maður, sem missti af báðum fótum eftir að hafa fengið blóðeitrun síðasta sumar við vinnu hér á landi, hefur lent á milli þils og veggjar í kerfinu og fær engar tryggingabætur. Átján ára sonur mannsins kom til landsins fyrir viku til að aðstoða hann og létta honum lífið. Innlent 10.2.2006 19:24
Oft stungið af eftir ákeyrslu Lögreglan í Kópavogi hefur vart undan að leita uppi ökumenn sem valda tjóni og stinga af frá verknaðinum. Lögreglan hvetur þá sem verða vitni af slíku til að taka niður númer þess sem stingur af og láta lögreglu vita. Jafnframt sé mjög mikilvægt að ökumenn hafi samband við lögreglu valdi þeir tjóni á annarri bifreið. Það sem í fyrstu virðist vera lítið tjón reynist oft vera mun meira en tryggingar bæta ekki tjónið nema um kaskótryggingu sé að ræða. Innlent 10.2.2006 18:13
Líkamsárás dæmd lögmæt Þrítugur Pólverji var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem árás hans á 29 ára Íslending, sem átti sér stað aðfaranótt 9. nóvember 2005, var dæmd lögmæt og þar með refsilaus. Innlent 10.2.2006 17:11
Ekki seinna að vænna að jafna stöðuna Það gæti verið gaman að jafna aðeins stöðuna gagnvart Borís Spasskí segir Friðrik Ólafsson um skákir þeirra á morgun. Hann segir málþingið um feril sinn þó aðalatriðið og vonar að vinur sinn Spasskí verði ekki of harður í dómum um sig. Innlent 10.2.2006 17:04
Ólögmætt samráð? Félag íslenskra stórkaupmanna telur að svo geti verið að um samráð sé að ræða í upptöku staðsetningargjalds hjá skipafélögunum. Skipafélögin Eimskip og Samskip hafa með stuttu millibili tekið upp staðsetningargjald sem lagt er á alla innflutningsvöru til Íslands. Í tilkynningu frá Félagi Íslenskra stórkaupmanna segir að athygli vekji að félögin taki bæði upp gjaldið á nákvæmlega saman tíma og gjaldið sé jafnt hátt hjá báðum aðilum. Innlent 10.2.2006 16:40
Dæmd fyrir að aka unnustann niður Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag tvítuga konu sem ók á unnusta sinn við tjaldmiðstöðina á Flúðum, til að greiða 130 þúsund krónur í sekt og svipti hana ökuréttindum í eitt ár. Konan játaði að hafa ekið drukkinn en neitaði að hafa vísvitandi keyrt á unnusta sinn. Sagðist hún aðeins muna að hafa rífst við hann og farið hágrátandi í bifreið sína og ekið af stað. Unnustinn reyndi að hindra förina en þá ók kærastan hann niður. Dómnum þótti ekki sannað að ákærða hefði vísvitandi ekið á unnustann. Innlent 10.2.2006 16:00
Síbrotamaður dæmdur Tæplega þrítugur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir brot á fíkniefnalögum og brot á skilorði með því að hafa í vörslu sinni 33 kannabisplöntur og 38 grömm af kannabislaufum í september 2005. Innlent 10.2.2006 15:25
Tígullinn nútímavæddur KEA tók í notkun nýtt merki í dag eftir að hafa notað græna tígulinn sem einkennistákn í rúma sjö áratugi. Félagið heldur sig þó við svipað form en nýja merkið er gult. Innlent 10.2.2006 14:08
8 féllu í áhlaupi rússnesku lögreglunnar Að minnsta kosti átta téténskir andspyrnumenn féllu í átökum við rússneksu lögregluna í Suður-Rússlandi í dag. Lögreglumenn gerðu áhlaup á tvö hús þar sem grunur lék á að vopnaðir uppreisnarmenn hefðust við. Erlent 10.2.2006 14:05
Einn lét lífið í snjóflóði norður af Tókýó Einn lét lífið og tíu slösuðust þegar snjóflóð féll á hverasvæði norður af Tókýó í morgun með þeim afleiðingum að baðgestir og starfsmenn grófust í fönn. Erlent 10.2.2006 14:03
Frestur fram til hádegis Fjórir starfsmenn Menntaskólans á Ísafirði fengu frest fram til hádegis til að skrifa undir samkomulag um þátttökuyfirlýsingu í svokölluðu skólaþróunarverkefni. Innlent 10.2.2006 14:01
Kosovoþing velur nýjan forseta Kosovoþing hefur kosið Fatmir Sejdiu í embætti forseta í stað Ibrahims Rugova sem lést úr lungnakrabbameini í síðasta mánuði. Erlent 10.2.2006 13:59
Formleg úrslit í írösku þingkosningunum Kjörstjórnin í Írak gerði í morgun formlega grein fyrir úrslitum þingkosninganna sem fóru fram þar í landi í desember. Þetta eru fyrstu skref í átt að myndun nýrrar ríkisstjórnar í landinu. Erlent 10.2.2006 13:56
Icelandair Group í Kauphöllina FL Group stefnir á skráningu Icelandair Group í Kauphöll Íslands og er undirbúningur þeirra skráningar þegar hafinn. Á kynningarfundi klukkan tvö í dag var upplýst að stjórn FL Group stefni að því að koma Icelandair Group í dreifða eignaraðild. Innlent 10.2.2006 13:46