Fréttir
Vitnaleiðslum í Baugsmálinu lokið Vitnaleiðslum í Baugsmálinu lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Málflutningur hefst í fyrramálið og stendur fram eftir degi en að honum loknum verður málið tekið í dóm. Fram kom við vitnaleiðslur að hluti vegna leiðréttinga á innflutningsgjöldum á einni bifreið af fjórum sem deilt er um hefði runnið til góðgerðarmála. Innlent 22.2.2006 17:14
Sjálfstæðisflokkur gæti náð meirihluta með 43% Sjálfstæðisflokkurinn gæti náð meirihluta í Reykjavík með 43 prósent atkvæða, en flokkurinn hefur fimm sinnum náð meirihluta í Borgarstjórn með minnihluta atkvæða. Miklu skiptir hvernig atkvæði skiptast á önnur framboð. Fleiri vilja sjá Dag B. Eggertsson í stóli Borgarstjóra, samkvæmt nýrri könnun en mjótt er þó á munum á milli þeirra. Innlent 22.2.2006 19:03
Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar harkalega gagnrýnd Stjórnarandstaðan gagnrýndi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar harðlega þegar rætt var um viðvaranir matsfyrirtækisins Fitch, gengislækkun krónunnar og ólgu á mörkuðum á Alþingi í dag. Þá fagnaði hún yfirlýsingum forsætisráðherra í kvöldfréttum NFS í gær um að ekki væri svigrúm fyrir alla þá stóriðju sem hugmyndir væru uppi um. Innlent 22.2.2006 19:02
Telur Mladic enn ganga lausan Carla Del Ponte, aðalsaksóknari við stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag segist viss um að Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, gangi enn laus einhvers staðar í Serbíu. Erlent 22.2.2006 18:50
Njósnari handtekinn í Svíþjóð Snurða hefur hlaupið á þráðinn í samskiptum Rússa og Svía eftir að rússneskur vísindamaður var handtekinn í Uppsölum, grunaður um njósnir. Rússar hafa sjálfir handtekið tvo njósnara sem grunaðir eru um að starfa fyrir Breta. Erlent 22.2.2006 18:46
Hallór og Blair funduðu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra Íslands, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, funduð í dag á heimili Blair á Downingstræti í London. Forsætisráðherrarnir ræddu meðal annars mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og hvernig hægt væri að koma málum svo fyrir að Ísland gæti búið við fiskveiðistefnu bandalagsins. Innlent 22.2.2006 18:42
Olíu hellt á eldinn Ein fegursta og helgasta moska síjamúslíma var sprengd í loft upp í Írak í morgun. Enginn vafi leikur á að ætlun illvirkjanna hafi verið að magna ófriðinn á milli þjóðarbrotanna í landinu enda hafa árásir verið gerðar á helgidóma súnnía í dag. Erlent 22.2.2006 18:26
Engin ólga á Íslandi vegna skopteikninga af Múhameð spámanni Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, segir engar upplýsingar hafa borist ráðuneytinu um að til árekstra hafi komið vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni sem birst hafa í evrópskum blöðum síðustu vikurnar. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu um stöðu útlendinga á Íslandi á Alþingi í dag. Innlent 22.2.2006 17:31
Krónan veiktist um rúm 2% í dag Gengi íslensku krónunnar veiktist um rúm 2% í dag og hefur því veikst um 6,4% á síðustu tveimur dögum. Titringinn á gjaldeyrismarkaði má rekja til skýrslu matsfyrirtækisins Fitch sem birt var í gær. Innlent 22.2.2006 17:27
Barnahús verðlaunað Barnahús verður verðlaunað af alþjóðlegu barnaverndarsamtökunum ISPCAN, International Society for the Prevention of Child Abuse and Neglect. Forstjóra Barnaverndarstofu hefur verið tilkynnt þetta en verðlaunin verða afhent á heimsráðsstefnu samtakanna í byrjun september á þessu ári. ISPCAN eru einu þverfaglegu heimssamtökin á sviðið barnaverndar en markmið þeirra er að vinna gegn ofbeldi og vanrækslu barna um allan heim. Innlent 22.2.2006 17:00
Vitnaleiðslum lokið Vitnaleiðslum í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur lauk á þriðja tímanum í dag. Málflutningur í málinu hefst í fyrramálið og að honum loknum verður málið dómtekið. Innlent 22.2.2006 16:40
Samískur joiksöngur, rímur, rokk og passíusálmarnir á Vetrarhátíð Samískur joiksöngur, rímur, rokk og passíusálmarnir í flutningi meistara Megas er meðal þess sem sjá má og heyra á Vetrarhátíð í Reykjavík í ár. Vetrarhátíðin hefst á morgun en hún var fyrst haldin árið 2002. Innlent 22.2.2006 15:55
Ríkisskattstjóri leggur ekki mat á útreikninga á skattbyrði Ríkisskattstjóri hefur ekki lagt mat á útreikninga Landssambands eldri borgara á að skattbyrði hafi aukist hjá þeim sem hafa lægstar tekjur eða ellilífeyri. Í tillkynningu sem Indriði H. Þorláksson, ríkisskattstjóri, sendi frá sér segir að hann hafi hvorki staðfest né hafnað niðurstöðu Landssambands eldri borgara eða annarra í umræðu sem hefur farið fram um skattbyrði. Innlent 22.2.2006 15:12
Ekki marktækur munur á fylgi Vilhjálms og Dags Ekki er marktækur munur á fylgi Dags B. Eggertssonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, í embætti borgarstjóra í vor samkvæmt borgarmálakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Samfylkinguna 14.-19. febrúar. Innlent 22.2.2006 14:55
Á yfir höfði sér dauðadóm Bandarískur hermaður hefur verið ákærður fyrir morð á tvítugri stúlku hér á landi síðastliðið sumar. Stúlkan sem var bandarísk var einnig varnarliðsmaður á Keflavíkurflugvelli og var í flugsveit hersins. Verði maðurinn fundinn sekur á hann yfir höfði sér dauðadóm eða lífstíðarfangelsi. Innlent 22.2.2006 14:16
Áætlað að vitnaleiðslum ljúki í dag Spurt var um viðskiptamannareikninga, lánveitingar og bókhaldslykla í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið þar í morgun. Áætlað er að vitnaleiðslum verði lokið í dag og málflutningur fari síðan fram á morgun. Innlent 22.2.2006 11:52
Vítisenglar illa þjakaðir af þunglyndi Það virðist leiða til þunglyndis að vera meðlimur í mótorhjóla- og glæpasamtökunum Vítisenglum. Að minnsta kosti benda nýjustu fréttir frá Stokkhólmi til þess því samkvæmt þeim eru sjötíu prósent meðlima samtakanna þar í borg þunglyndir. Erlent 22.2.2006 11:03
Ókeypis háhraða nettenging á veitinga- og kaffihúsum Notkun á Heitum reitum, þráðlausri nettengingu á veitingastöðum og kaffihúsum, frá Og Vodafone hefur vaxið verulega síðustu mánuði. Sótt gagnamagn á þeim stöðum sem bjóða þráðlausa háhraðarengingu frá Og Vodafone hefur aukist um 40% á hálfu ári, frá því í ágúst 2005 til lok janúar á þessu ári. Lífið 22.2.2006 11:30
Mannfall í aðdraganda friðarviðræðna Þrír uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka létu lífið á árás í borginni Batticaloa þar í landi í morgun. Uppreisnarmenn segja að sex vopnaðir menn, klæddir í búninga stjórnarhersins, hafi ráðist á þá. Friðarviðræður milli fulltrúa stjórnvalda og Tamíl tígra eiga að hefjast í Sviss í dag. Erlent 22.2.2006 08:32
98 fangar dáið í haldi Bandaríkjamann í Írak og Afganistan Tæplega 100 fangar hafa látið lífið í fangelsum Bandaríkjahers í Írak og Afganistan síðan í ágúst árið 2002. Fjölmargir þeirra munu hafa verið pyntaðir til dauða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights First. Erlent 22.2.2006 08:05
Gjaldfrjálst á Listasafn Íslands Aðgangseyrir að Listasafni Íslands fellur niður frá með föstudeginum næsta og aðgangur að safninu verður því gjaldfrjáls. Nýr styrktaraðili safnsins, Samson eignarhaldsfélag, gerir þetta kleyft með stuðningi sínum en í dag var nýr samstarfsamningur undirritaður í safninu. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum Listasafns Íslands en í honum delst að Samson verður aðalstyrktaraðili safnsins næstu þrjú árin. Á samningstímanum mun Samson styrkja Listasafnið um 45 milljónir króna sem verður varið í að efla starfsemi þess. Innlent 21.2.2006 22:30
Tíu sóttu um stöðu prests við Hallgrímsprestakall Tíu sóttu um embætti prests í Hallgrímsprestakalli sem auglýst var fyrir skömmu. Fjórir umsækjandanna sóttu líka um embætti sóknarprests við Ásprestakall. Embætti prests við Hallgrímsprestakall hefur verið með eftirsóttustu stöðunum innan þjóðkirkjunnar enda kirkjan sú stærsta á landinu og með þeim glæsilegri. Það er biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson sem skipar í embætti prests eftir að valnefnd hefur komist að samkomulagi um hvaða umsækjanda hún vill fá í embættið. Innlent 21.2.2006 22:26
Sendiráð Dana í Indónesíu senn opnað aftur Danska sendiráðið í Djakarta í Indónesíu verður opnað aftur fljótlega, en það hefur nú verið lokað í tíu daga vegna óeirða í borginni í tengslum við skopteikningarnar af Múhameð spámanni. Erlent 21.2.2006 22:47
Ríkisstjórnin vill MTV tónlistarhátíðina Ríkisstjórnin hefur ákveðið að styrkja November Event um þrjár milljónir króna til að fullvinna umsókn sína um að halda MTV-tónlistarverðlaunahátíðina í Reykjavík árið 2007. November Event hefur unnið að því að fá að halda tónlistarhátíðina í Reykjavík á næsta ári. Umsóknarferlið er komið vel á veg en Reykjavík er ein nokkurra borga sem sótt hafa um að halda hátíðina. Innlent 21.2.2006 22:19
Mannskæð árás á markaði í Bagdad Að minnsta kosti 22 létust og 30 særðust í bílsprengjuárás á markaði í suðurhluta Bagdad í dag. Fregnir herma að sprengunni hafi verið beint að lögreglumönnum á eftirlitsferð. Erlent 21.2.2006 22:16
Félagsráðgjafar mótmæltu á borgarstjórnarfundi Félagsráðgjafar fjölmenntu á áhorfendapalla á borgarstjórnarfundi í dag til að krefjast bættra kjara og knýja á um að kraftur komist í viðræður þeirra og borgarinnar um nýjan kjarasamning. Þeir útiloka ekki verkfall. Innlent 21.2.2006 21:57
Reykræsta þurfti vegna bruna í geymslu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að húsnæði á Skemmuveginum á tíunda tímanum í kvöld. Í húsinu eru nokkur fyrirtæki en eldur kom upp í einni geymslu þar inni. Búið er að slökkva eldinn og er verið að reykræsta. Ekki er talið að um verulega skemmdir sé að ræða. Innlent 21.2.2006 21:43
Afkoma Íslandsbanka sú besta í sögu bankans Afkoma Íslandsbanka á síðsta ári var sú besta í sögu bankans en hagnaður bankans nam nítján milljörðum króna. Bankinn hyggur á frekari útrás á þessu ári. Innlent 21.2.2006 21:13
Loðnukvótinn aukinn í annað sinn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra jók loðnukvóta íslenskra skipa í dag um tuttugu þúsund tonn. Íslensk skip mega því veiða rétt rúmlega 170 þúsund tonn af loðnu á yfirstandandi vertíð. Innlent 21.2.2006 21:05
Sex skipasmíðastöðvar valdar Ríkiskaup hafa valið sex skipasmíðastöðvar til þátttöku í útboði á smíði nýs varðskips úr hópi fimmtán skipasmíðastöðva sem sýndu áhuga á útboðinu. Þrjár skipasmíðastöðvanna eru norskar, sú fjórða hollensk, fimmta þýsk og sú sjötta frá Sjíle. Innlent 21.2.2006 20:21