Fréttir
Fjórir dæmdir fyrir misþyrmingar Héraðsdómur Norðurlands Eystra hefur dæmt mennina fjóra, sem réðust á 17 ára pilt á Akureyri fyrir ári, misþyrmdu honum og skildu eftir klæðalítinn í húsasundi í frosti. Innlent 3.3.2006 07:14
Glitter dæmdur í þriggja ára fangelsi Gamli rokkarinn Gary Glitter var í morgun dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir ósæmilega hegðun með tveimur ungum stúlkum frá Víetnam í fyrra. Erlent 3.3.2006 07:15
Varð til happs að lenda í fullu fiskikari Sjómaður á netabáti slapp ótrúlega vel þegar hann féll fimm metra ofan í lest bátsins þegar verið var að landa í Þorlákshöfn í gærkvöldi. Það varð honum til happs að lenda ofan í fullu fiskikari og tók fiskurinn af honum mesta höggið. Innlent 3.3.2006 07:11
Fjórtán hafa verið handteknir eftir rán í Bretlandi Fjórtandi maðurinn hefur verið handtekinn vegna stærsta ráns sem framið hefur verið í Bretlandi. Þá standa stífar yfirheyrslur enn yfir tveim hinna handteknu, eftir að dómstóll samþykkti í gærkvöldi að framlengja gæsluvarðhald yfir þeim um sólarhring. Erlent 3.3.2006 07:11
Vetrarfærð víða fyrir norðan og austan Vetrarfærð er víða á Norðurlandi eystra og Austurlandi, hálka, hálkublettir eða snjóþekja, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hvergi er þó fyrirstaða á vegum. Innlent 3.3.2006 07:57
Fundahlé í kjaradeilu slökkviliðsmanna Samningafundi Landssambands slökkviliðs-og sjúkrafutningamanna við fulltrúa ríkisins, var frestað hjá Ríkissáttasemjara um klukkan ellefu í gærkvöldi , eftir að hafa staðið í tíu klukkustundir. Fundi verður fram haldið eftir hádegi. Innlent 3.3.2006 07:07
Frekara klúður vegna Katrínar kemur í ljós Klúður embættismanna eftir að fellibylurinn Katrín skall á Bandaríkjunum er alltaf að koma betur og betur í ljós. Nú hefur AP-fréttastofan komist yfir myndband þar sem ríkisstjóri Louisiana fullvissar fulltrúa stjórnvalda um að flóðvarnir New Orleans hafi ekki brostið nokkrum klukkustundum eftir að fellibylurinn reið yfir. Erlent 3.3.2006 07:08
Al-Qaida hyggi á stórárás í Írak Hryðjuverkasamtökin al-Qaida hyggjast fremja stóra hryðjuverkaárás í Írak á næstunni. Þetta hefur fréttastofa CBS eftir bandarískum embættismönnum í landinu. Erlent 3.3.2006 07:05
Tyggjói klesst á dýrmætt málverk Tólf ára gamall óþekktarormur frá Detroit í Bandaríkjunum hefur verið rekinn úr skóla fyrir að hafa skemmt verðmætt málverk. Erlent 2.3.2006 22:39
Ólga vex vegna Nagorno-Karabakh Spenna er tekin að magnast á ný á milli Armena og Asera vegna hins umdeilda Nagorno-Karabakh-héraðs, sem er að mestu byggt fólki af armensku bergi brotnu enda þótt það sé í Aserbaídsjan. Erlent 2.3.2006 22:37
Atlaga gerð að fjölmiðlum í Kenía Stjórnvöld í Kenía hafa viðurkennt að hafa í gærkvöldi sigað öryggislögreglu sinni á höfuðstöðvar eins stærsta fjölmiðlafyrirtæksis landsins. Erlent 2.3.2006 22:34
Ljósmæður áhyggjufullar vegna stöðu mála Ljósmæður eru áhyggjufullar með að kjarabarátta þeirra muni dragast á langinn en enn hefur enginn fundur verið ákveðinn milli þeirra og sanminganefndar skipaðri af heilbrigðisráðherra, sem semur við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn. Innlent 2.3.2006 21:41
KGB enn á sveimi Öryggislögregla Hvíta-Rússlands, sem ber nafnið KGB, handtók í dag fjölmarga stjórnarandstæðinga og starfsmenn félagasamtaka. Erlent 2.3.2006 20:31
Fjölmennir minningartónleikar Hátt á tvöhundrað manns sóttu góðgerðartónleika í Ísafjarðarkirkju í gærkvöldi, sem haldnir voru til minningar um Þóreyju Guðmundsdóttir sem lést í bílslysi á Hnífdalsvegi í janúar. Innlent 2.3.2006 20:25
Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að fresta máli Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurasyni á meðan endurupptökubeiðni Hannesar er til meðferðar fyrir enskum dómstóli en málið verður tekið fyrir þar á morgun. Innlent 2.3.2006 20:10
Rússar réðu tilræðismann páfa Ítölsk þingnefnd, sem hefur rannsakað tilræðið við Jóhannes Pál páfa annan árið 1981, segir óyggjandi sannanir fyrir því að ráðamenn í Moskvu hafi staðið fyrir tilræðinu. Erlent 2.3.2006 19:14
Undirrituðu samstarfssamning Landhelgisgæslan og ríkislögreglustjóri gerðu með sér formlegan samstarfssamning í dag. Stofnanirnar tvær hafa lengi átt gott og mikið samstarf en formlegur samningur hefur ekki verið gerður fyrr en nú. Þau verkefni með kveðið er á í samningnum er meðal annars leit, björgun og almannavarnir, sameiginlegt bátaeftirlit, gagnkvæmur stuðningur stofnanna við lögregluaðgerðir á sjó og landi, siglingavernd og sameiginleg þjálfun. Innlent 2.3.2006 19:32
Samtökin Forma fá Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Forma, samtökum átröskunarsjúklinga á Íslandi, var veitt Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Ölmu Geirdal og Eddu Ýr Einarsdóttur, stofnendum Forma, verðlaunin alls eina milljóna króna. Lífið 2.3.2006 19:19
Bush virðist hafa logið Bush Bandaríkjaforseti virðist hafa sagt ósatt um að ekki hefði verið hægt að sjá fyrir skelfilegar afleiðingar fellibylsins Katrínar og að hann kynni að brjóta niður flóðvarnir New Orleans borgar. AP-fréttastofan hefur komist yfir myndbandsupptöku frá 28. ágúst þar sem embættismenn vara Bush við því að New Orleans borg kunni að fara á kaf eftir að fellibylurinn hafi gengið yfir. Erlent 2.3.2006 18:56
Blair styður Jowell Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í dag yfir stuðningi við Tessu Jowell, menningarmálaráðherra, og sagði hana ekkert hafa gert sem bryti í bága við siðareglur ráðherra í bresku ríkisstjórninni. Erlent 2.3.2006 18:29
Líkbrennslur loks heimilaðar Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp þar sem líkbrennslur eru heimilaðar í fyrsta sinn í sögu landsins. Erlent 2.3.2006 18:15
Skipað í embætti prests í Hallgrímskrikju Sr. Birgir Ásgeirsson hefur verið veitt embætti prests í Hallgrímskirkjuprestakalli. Alls sóttutíu umsækjendur um um embættið en umsóknarfrestur rann út 17. febrúar síðastliðinn. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni niðurstöðu valnefndar. Nefndin er skipuð fimm fulltrúum úr prestakallinu auk vígslubiskupsins í Skálholti. Innlent 2.3.2006 17:18
Búið að slökkva eld á Lynghálsi Búið er að slökkva eld í húsakynnum Stöðvar 2 og verið er að reykræsta húsið. Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar eldsins varð vart um fjögurleitið. Talið er að eldur hafi kviknað í eldhúsi en mikill reykur var í húsinu. Starfsfólk komst út í tæka tíð og enginn var fluttur á slysadeild. Allar útvarpsstöðvar duttu út vegna eldsins. Innlent 2.3.2006 16:57
Rúm fyrir álver og stækkun Forsætisráðherra gaf lítið fyrir hvatningar stjórnarandstæðinga um hægja á uppbyggingu álvera á Alþingi í dag. Hann sagði álver á Húsavík og stækkun í Straumsvík rúmast innan marka Kyoto bókunarinnar en efast um að orka fáist fyrir álver á Reykjanesi. Innlent 2.3.2006 16:51
Þrír stærstu bankar landsins styrkja stöðu sína gagnvart sveiflum Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings segir í nýrri skýrslu um næmi þriggja stærstu banka landsins, KB banka, Landsbankans og Íslandsbanka, að þeim hafi á síðastliðnum þremur árum tekist að bregðast með betri hætti við sveiflum á gengis- og vaxtamarkaði hér á landi. Segir m.a. í skýrslunni að fjölbreytt starfsemi bankanna hafi orðið til þess að þeir eru ekki jafn viðkvæmir fyrir breytingum og áður. Viðskipti innlent 2.3.2006 16:14
Eldur í húsakynnum Stöðvar 2 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað úr rétt í þessu vegna elds í húsakynnum Stöðvar 2 á Lynghálsi. Allt starfólk komst út við illan leik en talið er að eldur hafi kviknaði í í eldhúsi, hugsanlega út frá loftræstingu, en frá eldhúsinu leggur mikinn reyk. Allar útvarpsstöðvar eru dottnar út vegna eldsins. Reykkafarar eru komnir inn í húsið og verið er að slökkva eldinn. Innlent 2.3.2006 16:11
Gullæði á Norðurlandi Gullæði hefur gert vart við sig á Norðurlandi í kjölfar fyrirætlana Alcoa um álver á Húsavík. Mikið verður byggt, fasteignaverð þýtur upp og samgöngur verða bættar. Innlent 2.3.2006 15:54
Eigið fé Stoða jókst á milli ára Hagnaður fasteignafélagsins Stoða hf. nam rúmum 2 milljörðum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í ársuppgjöri félagsins. Þetta er 766 milljónum króna minna en árið á undan. Í árslok gerði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og varð félagið hluti af samstæðureikningi Stoða hf. frá yfirtökudegi, sem var 6. janúar sl. Þá hafa kaupin og lánveitingar til Atlas verið færðar í ársreikninginn. Viðskipti innlent 2.3.2006 15:25
Vígamenn á ferli í Bagdad Vígamenn í Írak víla nú ekki fyrir sér að ráðast á hverfi þar í landi sem hingað til hafa verið friðhelg. Mikil spenna er í landinu og mannfall hefur verið töluvert hvern dag síðan ein helgasta moska sjía-múslima í Írak var sprengd í loft upp í síðustu viku. Minnst þrettán féllu í árásum í höfuðborginni í morgun og undir hádegi var gerð árás á bílalest Adnas al-Dulaimi, helsta leiðtoga súnnía í Írak. Erlent 2.3.2006 14:47
DV braut siðareglur blaðamanna Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað að DV hafi gerst brotlegt á þriðju grein siðareglna Blaðamannafélagsins þegar það birti forsíðufyrirsögnina „Hafnfirskur gleraugnasali selur tæki sem á að lækna fuglaflensu" og fyrirsögn á bls. 8 þar sem stóð ,,Lækning við fuglaflensu í Hafnarfirði". Kemst Siðanefndin að þeirri niðurstöðu að brotið sé ámælisvert. Innlent 2.3.2006 14:41