Fréttir

Fréttamynd

Risaflugvél brotlenti

Betur fór en á horfðist þegar bandarísk herflutningavél af gerðinni Lockheed C-5 Galaxy brotlenti við herflugvöllinn í Dover í Delaware í morgun. Sautján manns voru um borð og komust þeir allir lífs af.

Erlent
Fréttamynd

Sinubruna má líkja við hamfarir

Sinubruna eins og varð á Mýrum má líkja við hamfarir að mati sérfræðings. Lífríki undir sinunni skaðast einnig en allt að hundrað þúsund smádýr hafa við á hverjum fermetra lands.

Innlent
Fréttamynd

Óvenjulegir farþegar með Norrænu

Það voru heldur óvenjulegir farþegar sem komu með Norrænu til Færeyja í dag eða 3200 hænur sem sendar voru með skipinu frá Danmörku. Hænurnar sem eru fimmtán vikna gamlar munu búa á Velbastað eggjabúinu en gert er ráð fyrir að þær fari að verpa um páska. Eftir ellefu mánuði verða hænurnar svo sjósettar á ný með Norrænu en þá verða þær senda til slátrunar í Danmörku.

Erlent
Fréttamynd

Óttast ekki andstöðu við frumvarpið

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar verði að lögum núna í vor. Þetta segir hún þrátt fyrir að allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis geri athugasemdir við frumvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Maður féll af hestbaki austan við Selfoss

Maður féll af hestbaki austan við Selfoss í dag. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala- háskólasjúkrahúss til rannsókna en ekki er vitað með líðan hans. Þá valt bíll í Flóanum um áttaleitið í morgun en ökumaður sem var einn í bílnum var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur á Laugarvatnsvegi

Árekstur varð milli sendiferðarbíls og vörubíls á Laugarvatnsvegi rétt fyrir klukkan tvö í dag. Tildrög slyssins eru óljós en vörubíllinn valt út fyrir vef og beita þurfti klippum til að ná ökumanninum út.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í íbúðarhúsi að Hallgilsstöðum í Fnjóskadal

Allt tiltækt slökkvilið á Akureyri og í Þingeyjarsveit er nú á bænum Hallgilsstöðum í Fnjóskadal þar sem íbúðarhús stendur í ljósum logum. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er húsið alelda og litlar líkur taldar á að hægt verði að bjarga munum úr því. Enginn var inni í húsinu þegar eldurinn kom upp og ekki er vitað hver eldsupptökin voru.

Innlent
Fréttamynd

Keyrt á stúlku við Dunhaga

Keyrt var á stúlku í Dunhaga við Hagaskóla á níunda tímanum í morgun. Stúlkan, sem er fædd árið 1991, fór sjálf til skólahjúkrunarfræðings en hún var með áverka á höfði og hné. Stúlkan var síðan flutt á slysadeild til skoðunnar en ekki er vitað um líðan hennar.

Innlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn hefja niðurrif í vikunni

Fjölmennt lið Bandaríkjamanna, sem er sérþjálfað í niðurrifi herstöðva, kemur hingað til lands í vikunni til að rífa niður stjórnstöðvar hersins og fleira. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er um að ræða allt að 200 manna lið, sem meðal annars mun rífa niður tvær af þremur stjórnstöðvum hersins á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segist bjartsýn á að frumvarp hennar um Nýsköpunarmiðstöð verði að lögum í vor. Þetta sagði hún í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Valgerður svaraði þá fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, sem taldi að hún hefði stefnt í voða samkomulagi sem hafi verið að myndast um byggðastefnu.

Innlent
Fréttamynd

Tveir ökumenn mældust á 155 og 150 km hraða

Tveir ökumenn mældust á 155 og 150 km hraða á Suðurlandsvegi í vikunni en þar er 90 km hámarkshraði. Þá voru fimm aðrir ökumenn einnig stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á sömu slóðum. Þá valt jeppi á Sólheimaheiði. Ökumaður hans hlaut höfuðmeiðsl og var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Bíll hans er ónýtur eftir veltuna.

Innlent
Fréttamynd

Forsætisráðherra í opinbera heimsókn til Færeyja

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra heldur til Færeyja næstkomandi miðvikudag í opinbera heimsókn í boði þarlendra yfirvalda. Forsætisráðherra fer fyrir fjölmennri viðskiptanefnd til Færeyja og er mikill áhugi er sagður vera fyrir ferðinni hjá forsvarsmönnum íslensks atvinnulífs.

Innlent
Fréttamynd

Mikið um umferðarlagabrot

Frá hádegi á föstudaginn til mánudagsmorguns hafði lögreglan í umdæmi Álftaness, Garðabæ og Hafnarfirði afskipti af 48 ökumönnum vegna brota á umferðarlögum. Þar af voru 29 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Þá voru fimm umferðaróhöpp tilkynnt um heldina en þau voru öll slysalaus.

Innlent
Fréttamynd

Kærum vegna ölvunar á almannafæri fjölgar á Selfossi

Kærum vegna ölvunnar á almannafæri hefur fjölgað upp á síðkastið hjá Lögreglunni á Selfossi. Þá hefur kærum þar sem menn ólhlýðnast fyrirmælum lögreglu einnig fjölgað en eitt slíkt mál kom upp á Selfossi aðfaranótt sunnudags þar sem maður hafði í frammi ósæmilega hegðun og sló til lögreglumanns.

Innlent
Fréttamynd

Tryggingamiðstöðin vildi NEMI

Eftir lokun kauphallarinnar í Noregi föstudaginn 31. mars lýsti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) formlega við stjórn Nemi forsikring ASA (NEMI) vilja til að gera kauptilboð í allt hlutafé NEMI. TM á 9,77 prósenta hlut í NEMI.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stefnir í setuverkfall í vikunni

Ekkert hefur þokast í kjarabaráttu ófaglærðs starfsfólks á dvalarheimilum aldraðra. Það stefnir því allt í tveggja sólarhringa setuverkfall síðar í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjórn Borgarbyggðar þakkar góða framgöngu í slökkvistarfi

Bæjarstjórn Borgarbyggðar þakkar öllum þeim sem komu að slökkvistarfi á Mýrum fyrir ósérhlífni og ómetanlega framgöngu. Í fréttatilkynningu frá Bæjarstjórn Borgarbyggðar segir að með öflugri framgöngu og góðu samstarfi slökkviliða, lögreglu, ýmissa aðila sem buðu fram aðstoð sína og ekki síst íbúa í héraðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins.

Innlent
Fréttamynd

Hundruðir yfirgefa heimili sín

Hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín eftir að stífla gaf sig í bænum Duernkrut í Austurríki. En stíflan er í ánni March sem er við landamæri Austurríkis og Slóvakíu. Stíflan gaf sig í nótt eftir mikla vatnavexti. Vatn umlykur um helming bæjarins Duernkurt en fjöldi manna vinnur að björgunarstarfi.

Erlent
Fréttamynd

Hvetja Íraka til að mynda starfhæfa ríkisstjórn

Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, hvöttu Íraka til þess að mynda starfhæfa ríkisstjórn sem fyrst en þau eru nú stödd í Írak. Andstaða gegn Íraksstríðinu magnast í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Frumvarp Valgerðar varla afgreitt úr nefnd

Afar ólíklegt er að frumvarp iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Allir sjálfstæðismennirnir í nefndinni gera athugasemdir við frumvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Mál dómara gegn ríkinu þingfest í vikunni

Mál Guðjóns St. Marteinssonar héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu verður þingfest síðar í vikunni. Guðjón ákvað að höfða mál þegar úrskurður Kjaradóms um laun stjórnmála- og embættismanna var numinn úr gildi með lögum.

Innlent
Fréttamynd

Icelandic Group kaupir allt hlutafé í Saltur A/S

Icelandic Group hefur keypt allt hlutafé í Saltur A/S í Danmörku, sem á allt hlutafé í Jeka Fish A/S í Danmörku. Jeka Fish gekk nýlega frá kaupum á félaginu Atlantic Cod A/S. Kaupverðið er greitt með nýju hlutafé í Icelandic Group að nafnverði 135 milljónir króna.

Innlent