Fréttir
D-listinn klofnaði í afstöðu sinni D-listi Sjálfstæðisflokksins í Árborg klofnaði í afstöðu sinni til samnings um Miðjuna á Selfossi, á fundi bæjarstjórnar Árborgar í gær. Bæjarstjórn samþykkti samning við Miðjuna ehf. um kaup á landi og sölu á byggingarrétti í miðbæ Selfoss, með 8 atkvæðum gegn 1. Annar tveggja bæjarfulltrúa D-listans samþykkti samninginn, en hinn greiddi atkvæði á móti. Innlent 13.4.2006 17:27
Sótti slasaðan sjómann af spænskum togara TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti í dag slasaðan sjómann af spænskum togara sem staddur var 210 sjómílur suðvestur af Reykjanesi á karfaveiðum. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni er maðurinn með alvarlega brjóstholsáverka. Innlent 13.4.2006 16:42
Flutningaskip strandaði eftir að áhöfnin sofnaði Grunur leikur á að áhöfn rússnesks timburflutningaskips, sem strandaði við norðurströnd Sjálands í Danmörku í nótt, hafi sofnað á vaktinni. Erlent 13.4.2006 16:16
Drápu eftirýstan al-Qaida liða í Pakistan Félagi í al-Qaida samtökunum sem eftirlýstur hefur verið vegna aðildar að sprengingunni í sendiráði Bandaríkjanna í Kenía árið 1998 var skotinn til bana í Pakistan, nærri afgönsku landamærunum, í gærkvöld. Þetta er haft eftir innanríkisráðherra Pakistans. Erlent 13.4.2006 16:03
Fjöldaslagsmál í tengslum við knattspyrnuleik í Danmörku Til átaka kom á milli áhangenda dönsku knattspyrnuliðanna OB og Horsens sem áttust við í Óðinvéum í dag. Gestirnir frá Horsens létu ófriðlega strax við komuna á brautarstöðina í Óðinsvéum og ollu þar skemmdum en síðan héldu þeir á knæpu þar sem stuðningsmenn OB sátu. Erlent 13.4.2006 15:56
Ekki alvarlega slasaður Bifhjólamaðurinn, sem fluttur var á slysadeild eftir að hann kastaðist af hjóli sínu á vélhjólamóti við Vesturlandsveg, er ekki talinn alvarlega slasaður. Innlent 13.4.2006 14:51
Bifhjólamaður fluttur á slysadeild Bifhjólamaður slasaðist á öðrum tímanum í dag á keppnismóti sem er nú í gangi við Vesturlandsveg. Sjúkrabíll er nú á leið með manninn á slysadeild Landspítla-háskólasjúkrahús en ekki er vitað um hvers kyns meiðsl hans eru. Maðurinn slasaðist þegar hann tók heljarstökk á hjóli sínu og lenti á bakinu. Innlent 13.4.2006 14:00
Vilja ekki sjá Playboy í Indónesíu Indónesíska lögreglan hefur beðið útgefendur tímaritsins Playboy um að hætta dreifingu þess í landinu. Fyrsta hefti tímaritsins kom út í Indónesíu fyrir nokkru og brugðust þá heittrúaðir múslimar hart við. Víða um landið voru kröfugöngur haldnar og í höfuðborginni Jakarta var grjóti látið rigna yfir skrifstofur Playboy. Erlent 13.4.2006 13:11
Þriggja bíl árekstur á Kárahnjúkum Þriggja bíla árekstur varð á Kárahnjúkum um klukkan ellefu í morgun þegar pallbíll lenti aftan á öðrum pallbíl og því næst keyrði stór flutningabíll aftan á pallbílana. Slæmt skyggni og hálka var þar sem áreksturinn átti sér stað. Innlent 13.4.2006 13:32
Lögðu undir sig stjórnarráðið í Ramallah Hópur herskárra Palestínumanna lagði undir sig stjórnarráðið í Ramallah í morgun. Mennirnir, sem voru um tuttugu talsins og allir gráir fyrir járnum, hertóku skrifstofurnar í rúma klukkustund en að lokum sannfærðu lögreglumenn þá um að leggja niður vopn. Erlent 13.4.2006 13:06
Björguðu fjölskyldu í bíl á Hellisheiði eystri Björgunarsveitir á Vopnafirði og Jökuldal komu í morgun þriggja manna fjölskyldu til bjargar sem fest hafði bíl sinn á Hellisheiði milli Vopnafjarðar og Héraðs. Innlent 13.4.2006 12:01
30 hafa farist í aurskriðum í Kólumbíu Óttast er að allt að þrjátíu manns hafi farist í aurskriðum í Kólumbíu í gær. Mikil úrkoma hefur verið í suðvesturhluta landsins að undanförnu og því hafa ár flætt yfir bakka sína svo um munar. Erlent 13.4.2006 12:09
Fjársöfnun hafin fyrir dómsmál gegn ríkinu Áhugahópur um verndun Þjórsárvera hefur hafið fjársöfnun vegna dómsmáls sem hópurinn rekur gegn Landsvirkjun og stjórnvöldum. Gjafsókn fæst ekki, en lagaákvæði um gjafsókn var breytt á meðan umsókn frá hópnum lá fyrir hjá gjafsóknarnefnd. Innlent 13.4.2006 12:05
Íran orðið kjarnorkuveldi Forseti Írans, lýsti því yfir í morgun að Íran væri orðið kjarnorkuveldi og klerkastjórnin myndi ekki gefa þumlung eftir í viðræðum um kjarnorkuáætlun sína. Forstjóri Alþjóða-kjarnorkumála-stofnunarinnar kom til Teheran í gær til að freista þess að telja Írönum hughvarf. Erlent 13.4.2006 12:01
Seðlabankinn ekki einn á verðbólguvaktinni Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður Fjárlaganefndar, neitar því að Seðlabankinn hafi staðið einn á verðbólguvaktinni, eins og ASÍ heldur fram. Hann segir gagnrýnina einungis réttmæta hvað varði launakostnað hins opinbera. Innlent 13.4.2006 11:56
55 teknir fyrir of hraðan akstur nærri Blönduósi Lögreglan á Blönduósi hafði í nógu að snúast við umferðareftirlit í gær ef marka má fjölda þeirra sem teknir voru fyrir of hraðan akstur. Alls voru 55 stöðvaðir frá hádegi í gær og fram yfir miðnætti en sá sem hraðast ók var á um 140 kílómetra hraða á klukkustund. Innlent 13.4.2006 10:03
Enn allt í hnút í ítölskum stjórnmálum Enn er allt í hnút í ítölskum stjórnmálum eftir þingkosningarnar sem haldnar voru í landinu í vikubyrjun. Silvio Berlusconi neitar sem fyrr að viðurkenna ósigur sinn heldur segir hann alla framkvæmd kosninganna meingallaða. Erlent 13.4.2006 10:01
Umferðarslys á Ólafsfjarðarvegi í gær Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á Ólafsfjarðarvegi gærkvöld. Bílarnir komu úr gangstæðri átt og valt annar þeirra þegar þeir rákust saman. Innlent 13.4.2006 10:05
ElBaradei í Íran vegna kjarnorkudeilu Mohammed ElBaradei, forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, er kominn til Írans til að þrýsta á þarlenda ráðamenn að hætta við kjarnorkuáform sín. Erlent 13.4.2006 09:55
Skafrenningur og hálka er víða á þjóðvegum landsins Skafrenningur og hálka er víða á þjóðvegum landsins. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, hálkublettir eru á Fróðárheiði. Innlent 13.4.2006 09:53
Skíðafæri gott víða um land Skíðasvæði eru opin víða um land í dag, nægur er snjórinn og færi er víðast hvar gott. Skíðavikan á Ísafirði fer vel af stað. Þar er troðinn þurr snjór, heiðskýrt og logn. Innlent 13.4.2006 09:42
Þrír handteknir vegna fíkniefna í Hafnarfirði Um hundrað grömm af amfetamíni og tíu grömm af hassi fundust við húsleit í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þrír menn voru handteknir en þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum. Málið telst upplýst. Nóttin var annars róleg hjá lögreglu víða um land. Fjórir sátu inni í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík vegna ölvunar og einn ökumaður var stöðvaður af lögreglunni í Kópavogi vegna gruns um ölvun við akstur. Innlent 13.4.2006 09:21
Provenzano þögull sem gröfin Bernardo Provenzano, yfirmaður mafíunnar á Sikiley, hefur verið þögull sem gröfin síðan hann var handtekin í gær. Hann hefur verið á flótta í rúma fjóra áratugi. Provenzano var fluttur til Palermo í dag. Erlent 12.4.2006 21:54
Flugvél lent á Prestwick-flugvelli vegna sprengjugabbs Engin sprengja fannst um borð í flugvél lággjaldaflugfélagsins Ryanair sem beint var á Prestwick-flugvöll rétt utan við Glasgow í Skotland í dag. Um gabb var að ræða. Erlent 12.4.2006 21:48
Berlusconi segir kosningasvik hafa átt sér stað Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi bandalags hægriflokka, segir víðtæk kosningasvik hafa átt sér stað í þingkosningunum á sunnudag og mánudag. Romano Prodi, leiðtogi bandalags mið og vinstri flokka, segir tímabært að Berlusconi víki. Erlent 12.4.2006 21:43
Tugmilljarða tekjuauki útgerðarinnar Tekjur útgerða landsins af útflutningi sjávarafurða á ársvísu hafa aukist um fjörutíu milljarða króna vegna veikingar krónunnar frá áramótum. Innlent 12.4.2006 21:14
Fluttur á slysadeild eftir bílveltu Ökumaður fólksbíls var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir árekstur á Ólafsfjarðarvegi í kvöld. Bíll sem kom úr norðri lenti utan í bíl á leið í gagnstæða átt, fór út af veginum og valt áður en hann stöðvaðist á toppnum. Innlent 12.4.2006 21:55
Fór með kornabarn í innbrotsleiðangur Karlmaður var handtekinn eftir að hafa brotist inn í tvo bíla í Laugardalnum síðdegis í dag. Það vakti athygli sjónarvotts að maðurinn ýtti barnavagni á undan sér þegar hann hljóp frá öðrum bílnum. Innlent 12.4.2006 21:43
Bensínreikningurinn hækkar um 30 þúsund Bensínreikningur meðal bíleigandans hefur hækkað um þrjátíu þúsund krónur frá áramótum vegna verðhækkana á bensíni. Innlent 12.4.2006 21:16
Sveitarfélögum hefur fækkað um 20% Sveitarfélögum landsins hefur fækkað um rúmlega fimmtung síðustu fjögur árin. Sveitarfélög landsins voru 105 talsins árið 2002 en eru nú aðeins 79 eftir sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps. Innlent 12.4.2006 21:01