Fréttir

Fréttamynd

Skýlaus krafa að hækka lægstu launin

Launahækkun til handa þeim lægstlaunuðu verður að vera skýlaus krafa við endurskoðun kjarasamninga í haust segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann segir fólkið á lægstu laununum hafa setið illilega eftir í launaþróun síðustu ára.

Innlent
Fréttamynd

Ekki talið að boðið verði upp á launahækkanir

Fyrsti formlegi samningafundurinn milli Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, verður í dag. Ekki er talið að boðið verði upp á tilteknar launahækkanir á fundinum en vonir standa þó til að kjaradeila ófaglærðra leysist áður en til aðgerða kemur í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan lækkar um tvö prósent

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um tvö prósent í viðskiptum í morgun. Hlutabréf í Landsbankanum hafa lækkað mest um rúm fjögur prósent. Næst mest er lækkunin á hlutabréfum í FL Group sem hafa lækkað um tæp fjögur prósent í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Ný frímerki með myndum af Bretadrottningu

Breska póstþjónustan gaf í morgun út átta ný frímerki með myndum af Elísabetu II Bretlandsdrottningu. Frímerkin eru gefin út í tilefni af áttatíu ára afmæli hennar næsta föstudag.

Erlent
Fréttamynd

Olíuverð hækkar enn

Olíuverð sveiflaðist nokkuð á mörkuðum í dag. Verðið stóð til skamms tíma í 70,85 dollurum á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum en lækkaði nokkuð og stendur nú í 70,75 sentum, sem er 35 sentum meira en í gær. Norðursjávarolía, sem afhent verður í júní, hækkaði um 5 sent í kauphöll Lundúna í Bretlandi. Til skamms tíma fór tunnan í 72,20 dollara, sem er metverð. Hún stendur nú í 71,51 dal.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Flóðin í Dóná virðast í rénun

Flóðin í Dóná virðast í rénun en þau hafa valdið miklum skemmdum á heimilum og ræktarlandi í Búlgaríu, Rúmeníu og Serbíu. Þar hefur áin flætt yfir bakka sína síðustu viku og er yfirborð Dónár enn hátt, en um helgina mældist yfirborð hennar það hæsta í hundrað og ellefu ár.

Erlent
Fréttamynd

Hagnaður Pepsi minnkar á milli ára

Bandaríska gosdrykkjafyrirtækið Pepsi Bottling Group Inc. skilaði 34 milljóna dollara hagnaði á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er 5 milljónum minna en á sama tíma á síðasta ári. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hækkaði um 14 sent eftir að greint var frá afkomu fyrirtækisins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Og Vodafone tekur í notkun „EDGE-tækni"

Og Vodafone hefur tekið í notkun svokallaða EDGE-tækni sem gerir viðskiptavinum í farsímaþjónustu fyrirtækisins mögulegt að nota símtæki sín með fjölbreyttari og hraðvirkari hætti en áður.

Innlent
Fréttamynd

Fiskaflinn helmingi minni en í fyrra

Afli íslenskra fiskiskipa fyrstu þrjá mánuði ársins er aðeins rétt rúmlega helmingur þess sem hann var á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Mestu munar um að loðnuveiði er mun minni í ár en í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Nýr framkvæmdastjóri TM Software

Stefán Þór Stefánsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá TM Software – Custom Development (áður Origo) af Einari Gunnari Þórissyni sem tekið hefur við nýju starfi hjá TM Software Healthcare. Stefán hefur víðtæka reynslu af ábyrgðarstörfum tengdum fjármálum og sölu- og markaðsmálum fyrirtækja.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aukið eftirlit í New York

Lögreglan í New York í Bandaríkjunum hefur enn aukið eftirlit til að herða á baráttunni gegn glæpum og hryðjuverkum í borginni. Búið er að koma fyrir eftirlitsmyndavélum með aðdráttarlinsum á fjölmörgum ljósastaurum. Lögregla í borginni segir að hægt verði að koma fyrir mörg hundruð vélum til viðbótar ef aukafjárveiting að jafnvirði rúmra sex milljarða íslenskra króna fáist frá ríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Fjölmargra saknað eftir að ferja sökk

Fjölmargra er saknað eftir að farþegaferja með allt að hundrað farþega sökk undan austurströnd Indónesíu í gærkvöld. Slæmt var í sjóinn á svæðinu. Í febrúar fórust 40 manns þegar ferja sökk á þeim stað þar sem slysið varð í gær.

Erlent
Fréttamynd

EDGE í notkun á fleiri stöðum

Og Vodafone hefur eflt farsímakerfi sitt en frekar í kringum höfuðborgarsvæðið með því að taka í notkun EDGE tækni sem gerir viðskiptavinum í farsímaþjónustu fyrirtækisins mögulegt að nota símtæki sín með fjölbreyttari og hraðvirkari hætti en áður. Nú hefur Og Vodafone lokið við uppsetningu á EDGE sambandi frá Úlfarsfelli við Mosfellsbæ og að Grundarhverfi á Kjalarnesi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hætt við sölu Ölgerðarinnar

Ekkert verður af fyrirhugaðri sölu Ölgerðarinnar og innflutningsfyrirtækisins Danóls þar sem tilboð reyndust ekki ásættanleg að mati eigenda. Þegar fyrirtækin voru sett í söluferli í lok febrúar var tekið fram af hálfu eigenda að þau yrðu seld saman eða hvort í sínu lagi, að því gefnu að ásættanlegt verð fengist.

Innlent
Fréttamynd

Viðræður hefjast í dag

Viðræður um kjör ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldraðra hefjast síðdegis í dag. Starfsmennirnir hafa tvisvar gripið til setuverkfalla á undanförnum vikum vegna óánægju með kjör sín.

Innlent
Fréttamynd

Braust inn í sex bíla

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Akureyri í nótt eftir að hann hafði brotist inn í sex bíla í bænum. Maðurinn hafði einhverja smámynt upp úr krafsinu.

Innlent
Fréttamynd

Stuðningmenn forseta Tsjad láta í sér heyra

Stuðningsmenn Idriss Deby, forseta Tsjad, söfnuðust saman á götum höfuðborgar landsins í gær en rétt um hálfur mánuður eru í kosningar þar í landi. Uppreisnarmenn reyndu í síðustu viku að velta forsetanum úr sessi en hann hefur verið við völd í 16 ár.

Erlent
Fréttamynd

Innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur

Karlmaður var handtekinn á þriðja tímanum í nótt fyrir tilraun til innbrots í tölvuverslun í Álfheimum. Lögreglumenn komu að honum þar sem hann var að reyna að spenna hurðina upp. Þjófurinn fékk að gista fangageymslur lögreglunnar í nótt og verður yfirheyrður í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sinueldar í Hafnarfirði

Tveir sinueldar voru kveiktir í Áslandi í Hafnarfirði í nótt. Að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru eldarnir minniháttar og voru þeir slökktir á skömmum tíma.

Innlent
Fréttamynd

57 létust í rútuslysi í Mexíkó

57 manns biðu bana þegar rúta ók út af fjallvegi í Mexíkó í gær. 60 farþegar voru í rútunni sem var aðeins með sæti fyrir 46 manns. Allir hinna látnu voru mexíkóskir ríkisborgarar á leið heim úr páskafríi í vesturhluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Hamas-liðar varaðir við að verja hryðjuverk

Bandarísk stjórnvöld hafa varað Hamas-hreyfinguna við því að verja hryðjuverk. Formælandi samtakanna sagði í gær að sjálfsvígsárás í Tel Aviv í Ísrael í gær hefði verið lögmæt sjálfsvörn.

Erlent
Fréttamynd

15 lík finnast í úthverfum Bagdad

15 lík fundust á tveimur stöðum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. 12 líkanna fundust í í suður hluta borgarinnar og þrjú í hverfi sjía-múslima. Að sögn lögreglu var fólkið handjárnað og síðan skotið til bana. Mörg hundruð múslimar hafa fallið eða særst í átökum í Írak síðustu vikur en upp úr sauð þegar einn mesti helgidómur sjía var sprengdur í loft upp í Samarra-borg í febrúar.

Erlent
Fréttamynd

Olíuverð í sögulegu hámarki

Heimsmarkaðsverð á olíu náði sögulegu hámarki í gær og var rúmir 70 dalir á tunnu. Ástæðan er sögð meðal annars kjarnorkudeila vesturveldanna við Írana.

Erlent
Fréttamynd

Flugskeytaárás á Gaza-borg

17 ára Palestínumaður beið bana þegar Ísraelsher gerði flugskeytaárás á bæinn Beit Lahiya í gærkvöldi. Herinn gerði einnig árás á meintar bækistöðvar palestínskra vígamanna í Gaza-borg, en að sögn talsmanns palestínskra yfirvalda féll enginn í þeirri árás.

Erlent
Fréttamynd

Flóðin hvergi í rénun

Vatnsborð Dónár hélt áfram að hækka í dag, íbúum á vatnasvæði hennar til enn frekara angurs og ama. Þá varð að rýma fjölda húsa í Georgíu vegna flóða.

Erlent
Fréttamynd

Hvalveiðisinnar í meirihluta?

Ríki sem eru hlynnt hvalveiðum hafa náð undirtökunum í Alþjóðahvalveiðiráðinu að mati breska blaðsins Independent. Sjávarútvegsráðherra segist fagna tíðindunum en kveðst þó vonlítill um að Íslendingar muni sækja gull í greipar ráðsins á ársfundi þess í sumar.

Erlent
Fréttamynd

Mannskæðasta sjálfsmorðsárásin í rúmt ár

Sextán ára gamall liðsmaður palestínsku samtakanna Heilagt stríð varð í dag níu manns að bana í Tel Aviv í Ísrael. Formælandi Hamas-hreyfingarinnar segir árásina, sem er sú mannskæðasta í rúmt ár, lögmæta sjálfsvörn.

Erlent
Fréttamynd

Fjórir í gæsluvarðhaldi vegna stórs fíkniefnamáls

Fjórir menn, þrír Íslendingar og einn Hollendingur, voru úrskurðaðir, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í þriggja vikna gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna eins stærsta fíkniefnamáls sem komið hefur upp hérlendis. Gríðarlegt magn fíkniefna fannst í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík á fimmtudagskvöld.

Innlent
Fréttamynd

Von á frekari bensínhækkunum

Bensínverð hefur hækkað um nærri þrettán krónur á einum mánuði og er bensínverð í hæstu hæðum og hvergi hærra en hér á landi. Búast má við frekari hækkunum á næstunni hér á landi vegna hækkana á heimsmarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Fuglinn ekki sýktur af H5N1

Fuglinn sem fannst dauður á Elliðavatni fyrr í mánuðinum var ekki sýktur með hinu mannskæða H5N1 afbrigði fuglaflensu. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem fram fór í Svíþjóð. Fuglinn fannst dauður í Elliðaárdal þann 8. apríl og ástæða þótti til sýnatöku og frekari rannsóknar.

Innlent