Fréttir
Starfshópur enn ekki skipaður vegna brotthvarfs Varnarliðsins Enn hefur ekki verið skipaður samráðshópur um aðgerðir á Suðurnesjum eftir að Varnarliðið hverfur á braut. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Innlent 24.4.2006 22:57
Stofnandi Enron bar vitni Kenneth Lay, stofnandi orkufyrirtækisins Enron, bar í dag vitni í fjársvikamáli sem hefur verið höfðað gegn honum vegna gjaldþrots fyrirtækisins. Hann neitaði því að hafa logið að fjárfestum um fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Erlent 24.4.2006 22:25
Stuðningur við Bush Bandaríkjaforseta aldrei minni Stuðningur við Bush Bandaríkjaforseta hefur aldri verið minni samkvæmt nýrri skoðanakönnun CNN. Aðeins 32% Bandaríkjamanna eru sátt við frammistöðu forsetans og 60% Bandaríkjamanna ósátt. Erlent 24.4.2006 22:15
Hryðjuverkaárás í Egyptalandi Að minnsta kosti 30 fórust og um 160 særðust, þar af fjölmargir lífshættulega, þegar þrjár sprengjur sprungu á veitingastað, kaffihúsi og í stórmarkað í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. Mubarak Egyptalandsforseti segir þetta hryðjuverk sem verði að refsa fyrir. Erlent 24.4.2006 22:08
Þingið í Nepal verður endurreist Konungur Nepals ætlar að endurreisa þingið í landinu. Með því vill hann aftur koma á lýðræði í landinu og friði eftir stanslaus átök í þrjár vikur. Erlent 24.4.2006 22:30
Kjaradeilan í hnút Álfheiður Bjarnadóttir, talskona viðræðunefndar starfsmanna á dvalar- og hjúrkunarheimilum, segir kjaradeiluna í hnút og starfsfólk sé farið að leggja drög að uppsögnum. Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu funduðu í dag en án árangurs. Innlent 24.4.2006 20:10
Minnst 30 fórust í sprengingum í Egyptalandi Að minnsta kosti 30 fórust og um 150 særðust í þremur sprengingum í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. Erlent 24.4.2006 18:57
Óhæfuverk í Írak Á meðan ráðamenn í Írak ræða skipan nýrrar ríkisstjórnar hafa minnst átta Írakar fallið í röð sprengjuárása í höfuðborginni Bagdad í dag. Þá fundust 17 lík í borginni í dag og bendir allt til þess að fólkið hafi verið pyntað áður en það var myrt. Erlent 24.4.2006 16:41
Engin rök fyrir sölu grunnnetsins hafa staðist Engin rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að selja grunnnet Símans með fyrirtækinu hafa staðist. Þessu hélt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, fram á Alþingi í dag. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að allir þeir ráðgjafar sem leitað hafi verið til við söluna hafi verið sammála um að réttast væri að selja Símann og grunnetið saman. Innlent 24.4.2006 17:19
Óttast ekki refisaðgerðir Ahmadinejad, Íransforseti, gaf í dag í skyna að til greina kæmi að Íranar segi sig úr Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni ef aðild að henni geri ekkert gagn. Stofnunin vísaði kjarnorkudeilunni til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í síðasta mánuði. Íranar hafa frest fram á föstudag til að hætta auðgun úrans. Erlent 24.4.2006 16:36
Viðsnúningur á markaði Greiningardeild KB banka segir mikla lækkun hafa átt sér stað á með mikilli gengisveikingu krónunnar og lækkunum á verði skulda- og hlutabréfa á mörkuðum að undanförnu. Í hálf fimm fréttum bankans segir að frá byrjun síðasta mánar hafi krónan veikst um tæp 19 prósent á sama tíma og Úrvalsvísitalan hafi lækkað um tæp 15 prósent. Viðsnúningur hafi hins vegar orðið á þróuninni á föstudag þegar krónan styrktist um 2,1 prósent í metviðskiptum, sem námu 63,2 milljörðum króna. Viðskipti innlent 24.4.2006 17:00
Árás Maóista hrundið Öryggissveeitum í Nepal tókst í dag að hrinda árás mörg hundruð Maóista á litla borg í austur hluta landsins. Árásin hófst í nótt og skiptust uppreinsar- og hermenn á skotum í margar klukkustundir. Þegar upp var staðið lágu fimm Maóistar og einn öryggissveitarmaður í valnum. Enn hefur verið sett á útgöngubann í höfuðborginni Katmandu í dag, þar sem tugþúsundir hafa undanfarna daga mótmælt alræðisvaldi Gyanendra konungs. Erlent 24.4.2006 16:32
Sýknaðir vegna banaslyss að Kárahnjúkum Héraðsdómur Austurlands sýknaði í dag fimm yfirmenn að Kárahnjúkum vegna ákæru um að þeir bæru ábyrgð á því að ungur maður lést í vinnslysi við Kárahnhjúkastíflu í mars 2004. Innlent 24.4.2006 16:59
Abbas hótar Hamas-liðum Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ætlar ekki að reka nýskipaða heimastjórn Hamas-liða þó lög heimili honum það. Hann sagði Hamas-liða verða að gera sér það ljóst að þeim sé nauðugur sá kostur að hefja friðarviðræður við ísraelsk stjórnvöld. Erlent 24.4.2006 16:25
Ökukennslusvæði byggt á Akranesi Ökukennslusvæði verður byggt á Akranesi en þar munu ökunemar og þeir sem vilja auka ökuleikni sína geta æft sig á sérútbúnu svæði. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag. Innlent 24.4.2006 16:46
Húsnæðisvelta virðist á niðurleið Húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu virðist vera á hraðri niðurleið og var minni í síðustu viku en í lægðinni miklu í janúar. Innlent 24.4.2006 15:39
Segir LN hafa slitið kjaraviðræðum við náttúrufræðinga Félag íslenskra náttúrufræðinga segir launanefnd sveitarfélaga hafa slitið kjaraviðræðum við sig á dögunum en samningar hafa verið lausir frá því í nóvember 2004. Um er að ræða náttúrufræðinga sem starfa að skipulagsmálum, heilbrigðiseftirliti og hjá náttúrustofum. Innlent 24.4.2006 15:03
Hættir við kaup á Liverpool Norsku viðskiptajöfrarnir Øystein Stray Spetalen og Petter Stordalen eru sagðir hættir við að gera tilboð í ráðandi hlut í breska knattspyrnufélagið Liverpool. Að sögn norska viðskiptablaðsins Dagens Næringsliv þótti þeim félagið ekki álitlegur kostur í bili. Viðskipti erlent 24.4.2006 14:43
Telur skuggagjald vænlegri leið en veggjald fyrir ný göng Stjórnarformaður Spalar segir að ráðist verði í ný Hvalfjarðargöng á næstu fjórum til fimm árum til að anna þeirri auknu umferð sem hefur verið um göngin. Hann telur skuggagjald vænlegri leið en veggjald fyrir hin nýju göng. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari lækkun veggjalda í núverandi göng. Innlent 24.4.2006 14:40
Einkaneysla jókst í mars Svo virðist sem einkaneysla hafi aukist töluvert í síðasta mánuði að því er fram kemur í upplýsingum um greiðslukortaveltu á vef Seðlabankans, að mati greiningardeildar Glitnis. Deildin bendir á að á vefnum komi fram að heildarvelta kreditkorta hafi numið 18,8 milljörðum króna í mars, sem sé 16 prósenta aukning miðað við sama mánuð í fyrra. Viðskipti innlent 24.4.2006 13:23
Ólíklegt að RÚV-frumvarpi verði frestað fram á haust Formaður menntamálanefndar telur ólíklegt að orðið verði við þeim kröfum stjórnarandstöðunnar að frumvarpið um Ríkisútvarpið verði ekki samþykkt á þessu þingi heldur frestað fram á haust. Þingflokksformaður Vinstri - grænna segir nauðsynlegt að gera það vegna nýrra gagna sem fram hafi komið í málinu. Innlent 24.4.2006 13:01
Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra á elliheimilum Samningafundur í kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum hefst klukkan tvö hjá ríkissáttasemjara. Það eru fulltrúar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem sitja fundinn en þeir reyna að ná sáttum fyrir föstudag til að koma í veg fyrir að vikulangt setuverkfall skelli á og í framhaldinu fjöldauppsagnir. Innlent 24.4.2006 12:43
Gengi hlutabréfa lækkaði í Japan Gengi hlutabréfabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 2,8 prósent og er það mesta lækkun vísitölunnar á einum degi síðan í janúar á þessu ári. 18. janúar sl. lækkaði vísitalan um 2,9 prósent. Viðskipti erlent 24.4.2006 10:05
Vísitala byggingarkostnaðar 329,4 stig Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan apríl, er 329,4 stig og hefur hún hækkað um 1,07 prósent frá síðasta mánuði. Vísitalan gildir fyrir maí. Að sögn Hagstofunnar hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,3 prósent síðastliðna 12 mánuði. Viðskipti innlent 24.4.2006 09:25
Vilja ræða Rúv frumvarpið í sumar Fulltrúar Vinstri-grænna og Samfylkingar í menntamálanefnd hafa sent formanni nefndarinnar bréf þar sem farið er fram á að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið verði ekki samþykkt á þessu þingi heldur unnið á ný í sumar. Þá vilja þeir að kannað verði sérstaklega hvort Ríkisútvarpið verði gert að sjálfseignarstofnun og hvernig hægt sé að halda öllum kostum hlutafélagsformsins en sneiða af ókostina. Innlent 24.4.2006 09:02
Ungverska stjórnin hélt velli Jafnaðarmannastjórnin í Ungverjalandi hélt velli í þingkosningum í landinu, en síðari umferð þeirra fór fram í dag. Erlent 23.4.2006 19:15
Björgólfur Thor 32. auðugasti maður Bretlands Breska blaðið Sunday Times metur eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar á liðlega 214 milljarða króna og segir þær hafa fjórfaldast á einu ári. Hann er samkvæmt þessu þrítugasti og annar ríkasti maður Bretlandseyja. Erlent 23.4.2006 19:13
Fréttablaðið fimm ára Fréttablaðsmenn fagna í dag fimm ára afmæli blaðsins. Gunnar Smári Egilsson segir sterka stöðu þess nú ekki frábrugðna því sem hann hefði getað ímyndað sér þegar farið var af stað með blaðið. Innlent 23.4.2006 18:45
Rúnar Helgi fékk þýðingarverðlaunin Rúnar Helgi Vignisson hlaut í dag Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Barndómur eftir J.M. Coetzee. Rúnar Helgi tók við sigurlaununum úr hendi herra Ólafs Ragnars Grímssonar forseta á Gljúfrasteini nú síðdegis. Innlent 23.4.2006 17:44
Vilja auka val, gæði og árangur í þjónstu borgarinnar Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynntu í morgun fjölskyldustefnu sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Markmið hennar er að sögn frambjóðenda flokksins að auka val, gæði og árangur í þjónustu Reykjavíkurborgar. Sjálfstæðismenn kynntu líka niðurstöður viðhörfskönnunar sem bendir mjög eindregið til þess að borgarbúar vilji eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Innlent 23.4.2006 16:27