Fréttir
Maður lést í umferðarslysi Eldri maður lést í árekstri pallbíls og rútu við Minni-Borg í Grímsnesi laust eftir klukkan hálf tvö í gærdag. Þrír farþegar rútunnar meiddust og voru fluttir á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykavík til skoðunar. Maðurinn sem lést ók pallbílnum og var einn á ferð. Talið er að hann hafi látist samstundis. Innlent 13.10.2005 19:27
Hlutabréf greidd í dag Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og aðrir lykilstjórnendur sem keyptu nýverið hlutabréf í bankanum fyrir þrjá komma tvo milljarða króna eiga að greiða fyrir kaupin í dag. Innlent 13.10.2005 19:27
Viðgerðum ekki nærri lokið Viðgerðir eru í fullum gangi á vegum sem skemmdust í vatnsviðrinu á Austurlandi um helgina. Vegurinn um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða fór í sundur eftir skriðu og að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar á Reyðarfirði gengur viðgerðin sæmilega. Innlent 13.10.2005 19:27
Lyf og heilsa styrkir PSÍ Parkinsonssamtök Íslands, PSÍ, hafa gert tveggja ára samstarfssamning við Lyf og heilsu um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili samtakanna. Innlent 13.10.2005 19:27
Tvíkjálkabrotinn fær bætur Ungir bræður voru fyrir helgi dæmdir í hálfsársfangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að berja mann og sparka ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá þannig að hann tvíkjálkabrotnaði og hlaut önnur meiðsl. Árásin átti sér stað á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri, aðfararnótt 17. júní í fyrra. Innlent 13.10.2005 19:27
Fólk veit lítið um ráðherra Um það bil helmingur landsmanna hefur ekki hugmynd um hvaða ráðherra gegnir hvaða ráðherraembætti, samkvæmt könnun, sem Morgunblaðið greinir frá. Vitneskja fólks er greinilega mismunandi eftir aldri og menntun. Þannig veit fleira roskið fólk og menntað fólk hvaða ráðherra gegnir hvaða embætti og fleiri karlar hafa það á hreinu en konur. Innlent 13.10.2005 19:27
Eldur í eldhúsi við Rauðarárstíg Á áttunda tímanum í kvöld varð eldur laus í eldhúsi íbúðar sem stendur við Rauðarárstíg. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði Reykjavíkur voru tveir slökkvibílar sendir á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. Innlent 13.10.2005 19:27
Íbúðalánasjóður lánar stofnunum Íbúðalánasjóður hefur lánað Sparisjóðunum og öðrum lánastofnunum rúma áttatíu milljarða króna, til að endurlána viðskiptavinum sínum. Lán Íbúðalánasjóðs eru ríkistryggð og upphæðin nemur allt að því helmingi allra skulda ríkissjóðs. Innlent 13.10.2005 19:27
Óheimilt að gera verðkönnun Fréttablaðinu er óheimilt að framkvæma verðkönnun í fríhafnarverslunum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og ganga þannig úr skugga um að yfirlýsingar forsvarsmanna hennar um verðlag og samkeppnishæfi stöðvarinnar séu réttar. Innlent 13.10.2005 19:27
Fundu 40.000 ára gömul fótspor Breskir vísindamenn telja sig hafa fundið sönnun þess að fyrstu mennirnir hafi verið komnir til Ameríku fyrir 40 þúsund árum, það er 26.500 árum fyrr en hingað til hefur verið talið. Erlent 13.10.2005 19:28
Foo Fighters á Íslandi Ísland er uppáhaldsstaðurinn okkar að spila á í heiminum, segir Dave Grohl, söngvari Foo Fighters. Tónleikar með hljómsveitinni verða haldnir í Egilshöllinni annað kvöld. Innlent 13.10.2005 19:27
Stjórnandi sambýlis stal frá íbúum Lögregla rannsakar meintan fjárdrátt konu sem stýrði sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík. Konan tók út vörur til eigin nota á reikning sambýlisins. Þetta er annað málið sem kemur upp á skömmum tíma þar sem stolið er frá íbúum sambýlis. Innlent 13.10.2005 19:27
Stálpípuverksmiðja í Helguvík? Forsvarsmönnum Stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík hefur verið gefinn lokafrestur út mánuðinn til að klára fjármögnun verksmiðjunnar. Liðin eru rúm þrjú ár frá því forsvarsmenn International Pipe and Tube og Ellert Eiríksson þáverandi bæjarstjóri skrifuðu undir samninga um byggingu verksmiðjunnar í Helguvík. Innlent 13.10.2005 19:27
Fjármálaeftirlitið samþykkir kaup Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup eignarhaldsfélagsins Milestone á 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Íslandsbanka. Samkeppnisstofnun hefur einnig samþykkt kaupin og verður Sjóvá því ekki hluti af samstæðureikningi Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi heldur bókað sem hlutdeildarfélag. Innlent 13.10.2005 19:27
Samfylking fær bestu bitana Ný tillaga framsóknarmanna vegna áframhaldandi samstarfs R-listans í Reykjavík gerir ráð fyrir að Samfylkingin fái fyrsta val um borgarstjóra, formann borgarráðs og forseta borgarstjórnar samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Innlent 13.10.2005 19:27
Kortafyrirtæki styrkir sendiráð Bandaríkjamenn halda upp á þjóðhátíðardag sinn, fjórða júlí, í dag, og af því tilefni bjóða sendiherrar Bandaríkjanna um allan heim, völdum mönnum úr hópi innfæddra til teitis í sendiráðum sínum síðdegis. Innlent 13.10.2005 19:27
Störfuðu lögum samkvæmt KPMG Endurskoðun sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna ákæru Ríkislögreglustjóra á hendur starfsmanni fyrirtækisins í Baugsmálinu. Fram kemur að starfsmanninum sé gefið að sök að hafa áritað ársreikninga Baugs hf. fyrir árin 2000 og 2001 án fyrirvara, en Ríkislögreglustjóri telji tilteknar upplýsingar ekki hafa verið settar fram í samræmi við lög. Innlent 13.10.2005 19:27
Allt fyrir Clint Tugir ungra manna fylgdu eftir ameríska draumnum og mættu í áheyrnarprurfur í Keflavík í gærkvöldi fyrir stórmynd Clint Eastwood, Flags of our fathers. Leitað var að aukaleikurum í myndina og þeir sem verða valdir munu leika hermenn í myndinni. Innlent 13.10.2005 19:27
Þorkell forstöðumaður Þorkell Ágústsson hefur verið skipaður forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa frá 1. september 2005. Innlent 13.10.2005 19:27
Grundvallarmálin í Gleneagles Upptakturinn að leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja heims og Rússlands hefur verið í lengra lagi og vakið nánast meiri athygli en sjálfur fundurinn. Á morgun koma leiðtogarnir loks saman í Gleneagles og taka ákvarðanir sem gætu haft veruleg áhrif á líf stórs hluta heimsbyggðarinnar. Málin í brennidepli eru aðstoð við fátækustu ríki og hlýnun jarðar. Erlent 13.10.2005 19:28
Segir fleiri spurningar vakna Helgi Hjörvar segir það vekja upp spurningar að Ker hafi skrifað undir afsal að flokksskrifstofum Framsóknar um það leyti sem Búnaðarbanki var seldur árið 2002. Aðdróttanir úr lausu lofti gripnar segja framsóknarmenn sem keyptu húsið 1997.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:28
Ástandið í Angóla Niðurfelling skulda er eitt umræðuefnið á fundinum í Gleneagles. Eitt þeirra ríkja sem græða myndu á niðurfellingu skulda er Angóla. Í Lúanda búa fjórar milljónir, en borgin var bara byggð fyrir fjögur hundruð þúsund. Erlent 13.10.2005 19:27
Vatnsveður og umferð um helgina Ljóst er að tjón sem varð í vatnsveðrinu á Austfjörðum í gær nemur mörgum milljónum króna. Þó nokkuð af vegfarendum um Vesturland sluppu án meiriháttar meiðsla í slysum, sem rakin eru til óveðursins. Innlent 13.10.2005 19:27
Nauðganir um helgina Beðið er eftir rannsóknargögnum í báðum nauðgunarmálunum sem komu upp um helgina. Maður er grunaður um nauðgun á Höfn í Hornafirði, en enginn hefur verið handtekinn vegna nauðgunar í Ólafsvík. Innlent 13.10.2005 19:27
Rán á sendiherra veikir samskipti Ránið á sendiherra Egyptalands í Írak um helgina mun hafa veruleg áhrif á samskipti Íraka við aðrar Arabaþjóðir að mati írakskra stjórnmálamanna. Erlent 13.10.2005 19:27
Langt í þingfestingu í Baugsmálinu Einn og hálfur mánuður líður frá því að sakborningum í Baugsmálinu eru birtar ákærur og málið er þingfest. Ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar eru báðir komnir í frí og er það líkleg skýring á þessum langa tíma. Þegar Sindri Sindrason spurði dómsmálaráðherra hvort þetta teldust ásættanleg vinnubrögð lauk símtalinu skyndilega. Innlent 13.10.2005 19:27
Mikil spenna í Edinborg Mikil spenna ríkir í Edinborg þar sem þúsundir mótmælenda hafa komið saman til að mótmæla fundi leiðtoga G-8 ríkjanna, átta helstu iðnríkja heims. Erlent 13.10.2005 19:27
Veikri fjölskyldu vísað úr landi Flóttamálaráðherra Danmerkur, Rikke Hvilshöj, ætlar sjálf að hlutast til um að geðsjúkri fjölskyldu verði vísað úr landi og send til síns heims, í Kosovo. Danskir fjölmiðlar greina frá þessu og vekja athygli á því að Danmörk sé samkvæmt reglum Sameinuðu þjóðanna skuldbundin til að vísa ekki geðsjúkum úr landi geti þeir ekki hlotið viðeigandi meðferð í heimalandi sínu. Erlent 13.10.2005 19:27
Bush varar Blair við væntingum Tony Blair ætti ekki að búast við neinum greiðum á fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims. Þetta segir George Bush og segir stuðning Blairs við Íraksstríðið alls ekki þýða að hann fái eitthvað í staðinn. Erlent 13.10.2005 19:27
Orka jarðar Landsmót skáta 2005 fer fram á Úlfljótsvatni 19. til 26. júlí næstkomandi en það er haldið þriðja hvert ár. Landsmótið er ein stærsta útisamkoma sem haldin er á Íslandi og búast skipuleggjendur mótsins við um 4-5000 manns alla vikuna. Innlent 13.10.2005 19:27