Fréttir
Ætluðu ekki að deyja sjálfir Hryðjuverkamennirnir sem sprengdu sjálfa sig, lestarnar og strætisvagninn í London þann 7. júlí, voru leiddir í gildru. Þeir ætluðu sér aldrei að deyja sjálfir heldur skilja eftir sprengjurnar og fara. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. Erlent 13.10.2005 19:32
Pakistönum ekki um að kenna Bretar ættu ekki að saka erlendar þjóðir um að hafa áhrif á árásarmennina í Lundúnum, segir sendiherra Pakistana hjá Sameinuðu þjóðunum. Þrír af mönnunum sem taldir eru bera ábyrgð á hryðjuverkunum í borginni sjöunda júlí eru af pakistönskum uppruna og einn sótti þar trúarlegan skóla að því er fram kemur á fréttavef BBC. Erlent 13.10.2005 19:32
Gistu í hellinum Sjö skátar gengu ríflega 40 kílómetra til að safna peningum fyrir ferð á skátamót í London. Þeir gistu í 100 metra löngum helli. Innlent 13.10.2005 19:32
17 létust þegar rúta fór út af Sautján manns létust og þrjátíu og átta slösuðust, þar af átta alvarlega, þegar rúta féll hundrað og tuttugu metra niður dal í suðurhluta Kína í gærkvöld. Alls voru fimmtíu og fimm manns í rútunni en slysið átti sér stað eftir að bílstjóri rútunnar missti stjórn á henni. Erlent 13.10.2005 19:32
Friðarvon í Aceh Ríkisstjórn Indónesíu og uppreisnarmenn frá Aceh-héraði sættust á það í gær að skrifa í næsta mánuði undir formlegt friðarsamkomulag. Erlent 13.10.2005 19:32
Vopnahléinu lokið Átök hafa haldið áfram á Gaza-svæðinu í dag og vopnahléinu, sem staðið hefur í fimm mánuði, lokið. Einn leiðtogi innan Hamas-samtakanna var skotinn til bana þegar hann reyndi að komast inn í landnemabyggðir gyðinga í suðurhluta Gaza um hádegisbil í dag. Erlent 13.10.2005 19:32
Íbúar Suðurgötu reiðir Strætó Með breyttu leiðarkerfi Strætó, sem tekur gildi á laugardag, fjölgar ferðum strætisvagna um Suðurgötu í Reykjavík, íbúum götunnar til sárrar óánægju. Innlent 13.10.2005 19:32
Mega ekki bera vopn Öryggisverðir hafa á sér mismikinn búnað eftir því hvar þeir starfa að sögn Snorra Sigurðssonar, þjónustustjóra hjá Securitas. Verðirnir mega ekki bera vopn lögum samkvæmt, en það má einungis lögregla að sögn Snorra. Innlent 13.10.2005 19:32
Al-Qaida ætlar að ná völdum Að minnsta kosti 70 létust og um 160 særðust í sjálfsmorðssprengingu í Írak í gær. Árásum hefur fjölgað mjög í landinu að undanförnu og hafa hryðjuverkasamtökin Al-Qaida sagt að þeim linni ekki fyrr en samtökin ná völdum í landinu. Erlent 13.10.2005 19:31
Fjórmenningarnir leiddir í gildru? Grunur leikur á að hryðjuverkamennirnir sem sprengdu sig í loft upp í London í síðustu viku, hafi verið leiddir í gildru. Þetta kemur fram í norska dagblaðinu <em>Aftenposten</em>. Erlent 13.10.2005 19:31
Tólf látnir eftir flóð í Indlandi Að minnsta kosti tólf fórust og um 150.000 heimili eyðilögðust vegna flóða í norðausturhluta Indlands í morgun. Alls hafa nú yfir 220 látist af völdum flóða í landinu frá því regntímabilið hófst í vor. Erlent 13.10.2005 19:31
Bindisleysið kostaði hann leigubíl Bindisleysi varð til þess að Örnólfur Thorlacius var næstum orðinn of seinn til að halda munnlegt stúdentspróf fyrir um fjörutíu árum. Hann rifjar upp söguna í kjölfar fréttar um bindislausa forkolfa íslensks viðskiptalífs. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:32
Skotið á smyglara Líbanska lögreglan skiptist á skotum við smyglara meðan sýrlensk yfirvöld handtóku líbanska fiskimenn í nýrri hrinu landamæraátaka ríkjanna tveggja. Bera átökin vott um vaxandi ólgu í samskiptum ríkjanna eftir að Sýrlendingar neyddust til þess að láta af áratugalangri hersetu í Líbanon í apríl. Erlent 13.10.2005 19:32
Atvinnulausum fækkar Atvinnuleysi eykst í höfuðborginni en minnkar úti á landi samkvæmt útreikningum Vinnumálastofnunar fyrir síðasta mánuð. Innlent 13.10.2005 19:32
Þrír á slysadeild eftir slagsmál Þrír voru fluttir á slysadeild í nótt með minniháttar meiðsl eftir slagsmál í miðbæ Reykjavíkur. Þá var einn tekinn með íblöndundarefni til að drýgja amfetamín. Innlent 13.10.2005 19:31
Blóði drifin helgin að baki Helgin sem nú er á enda var ein sú blóðugasta í Írak frá því að ráðist var inn í landið vorið 2003. Í það minnsta 170 manns hafa beðið bana í hryðjuverkaárásum undanfarna viku. Erlent 13.10.2005 19:32
Meðvitundarlaus eftir árás Tveir menn á þrítugsaldri gengu í skrokk á manni fyrir utan skemmtistaðinn Krúsina í miðbæ Ísafjarðar um þrjúleytið aðfaranótt sunnudags. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild sjúkrahússins á Ísafirði eftir árásina.<span lang="EN-US" style="COLOR: black; FONT-FAMILY: Helv; mso-ansi-language: EN-US"></span> Innlent 13.10.2005 19:32
Handfrjáls búnaður líka hættulegur Fjórum sinnum meiri líkur eru á að ökumaður sem talar í farsíma undir stýri lendi í umferðarslysi en aðrir ökumenn. Virðist þá engu skipta hvort notaður er handfrjáls búnaður. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem birt var í <em>The British Medical Journal</em> fyrr í vikunni. Innlent 13.10.2005 19:32
Saddam verður ákærður Saddam Hussein verður ákærður fyrir fjöldamorð gegn sjíum árið 1982. Þetta verður fyrsta dómsmálið sem höfðað verður gegn einræðisherranum fyrrverandi. Erlent 13.10.2005 19:32
Tíu Kúrdar drepnir í Tyrklandi Tíu uppreisnarmenn úr röðum Kúrda voru drepnir í árás tyrkneska hersins í í suðausturhluta Tyrklands í dag. Árásin var gerð í kjölfar sjálfsmorðsárásar í borginni Kusadasi í gær sem talið er að hafi verið skipulögð af skæruliðasamtökum Kúrda. Erlent 13.10.2005 19:31
Sílamávar aflífaðir Lögreglan í Reykjanesbæ þurfti að aflífa um 40 sílamáva í Sandgerði síðdegis í fyrradag. Sílamávarnir höfðu fengið á sig grút sem óþekkt skip losaði í sjóinn úti fyrir Sandgerði. Innlent 17.10.2005 23:42
Líkamsárásarkæra á Blönduósi Kona hefur kært aðra konu fyrir líkamsárás í félagsheimilinu á Blönduósi í nótt. Árásin er ekki talin vera alvarleg en svo virðist sem um smá stympingar hafi verið að ræða. Þá voru ellefu teknir fyrir hraðakstur í sérstöku verkefni Ríkislögreglustjóra í umdæminu í gærdag. Innlent 13.10.2005 19:31
Verið að fara yfir samninginn Félagsmálaráðherra segir að verið sé að fara yfir lánasamning á milli Íbúðalánsjóðs og bankanna og vel geti verið að þar þurfi að skerpa einhverjar reglur. Innlent 13.10.2005 19:32
Flest bendir til tengsla al-Kaída Hryðjuverkamaður frá al-Kaída í haldi Bandaríkjamanna hefur borið kennsl á Mohammed Sidique Khan, einn fjórmenninganna sem taldir eru bera ábyrgð á sprengingum sem urðu 55 að bana í Lundúnum. Erlent 13.10.2005 19:32
R-listinn er að liðast í sundur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir R-listan vera að liðast í sundur. Innlent 13.10.2005 19:32
5 mánaða vopnahléi lokið Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segir herinn mega beita öllum brögðum til að koma herskáum Palestínumönnum frá. Það sé nauðsynlegt ef friður eigi að nást. Fimm mánaða vopnahléi er því lokið. Erlent 13.10.2005 19:32
Hundruð hafa flúið heimili sín Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíka og eyðilagt tugi húsa. Hundruð hafa flúið heimili sín vegna fellibylsins Emily og gista nú þúsundir í athvörfum. Erlent 13.10.2005 19:31
Farþegaflugvél fórst Ekki er vitað hversu margir fórust er farþegaflugvél af gerðinni Anatonov fórst skömmu eftir flugtak í gærkvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu. Þá er ekki heldur vitað hversu margir voru um borð en þó svo að á farþegaskránni hafi verið 35 og tíu manna áhöfn er vel hugsanlegt að þeir hafi verið fleiri því áhöfnum flugvéla er oft mútað til að taka aukafarþega. Erlent 13.10.2005 19:31
Stórveldi með þrjá starfsmenn Ferskir vindar blása um starfsemi Kaupfélags Eyfirðinga í upphafi nýrrar aldar og félagið fer ótroðnar slóðir í markmiði sínu að bæta búsetuskilyrði og efla byggð í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Beinn atvinnurekstur KEA heyrir sögunni til en fjárhagslegur styrkur gerir rödd félagsins sterka. Innlent 13.10.2005 19:32
Yfirlýsing Össurar sögð heimskuleg Oddvitar flokkanna sem standa að Reykjavíkurlistanum gefa lítið fyrir þá skoðun Össurar Skarphéðinssonar að Samfylkingin eigi að bjóða fram R-lista hvort sem samstarfsflokkarnir taki þátt í framboðinu eður ei. Árni Þór Sigurðsson segir yfirlýsinguna heimskulega. Innlent 13.10.2005 19:32
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti