Allir á völlinn Kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur klukkan 14 í dag mjög mikilvægan leik gegn Frökkum í undankeppni EM í knattspyrnu. KSÍ setur markið hátt, stefnan er að bæta aðstóknarmetið á Laugardalsvelli á kvennalandsleik. Aðsóknarmetið er 2.974 manns sem sáu leik Íslands og Englands árið 2005. Fótbolti 16. júní 2007 06:00
Það vilja allir vinna okkur Ásgeir Gunnar Ásgeirsson starfar sem sölumaður hjá Góu-Lindu í sumar en stundar þar að auki tannlæknanám. „Það er kannski smá kaldhæðni í því að vera að selja nammi og vera svo í tannlækningum,“ sagði Ásgeir í léttum tón en hann skoraði fyrra mark FH í 2-0 sigrinum á KR. Fótbolti 16. júní 2007 05:15
Meira en helmingur markanna gegn KR Guðmundur Sævarsson, bakvörðurinn knái í FH, skoraði í fyrrakvöld annað mark sinna manna gegn KR í Vesturbænum. Það var hans ellefta mark í efstu deild á ferlinum en þar af hefur hann skorað sex þeirra á móti KR. Guðmundur skoraði þrennu í 7-0 sigrinum fræga á Kaplakrikavelli í lokaleik umferðarinnar 2002 og þar að auki hefur hann skorað þrívegis í Vesturbænum. Fótbolti 16. júní 2007 03:15
Í byrjunarliðinu í haust? Stephen Frail, aðstoðarþjálfari Hearts, fer fögrum orðum um unglingalandsliðsmanninn Eggert Gunnþór Jónsson sem er á mála hjá félaginu. Frail vonast til að Eggert fái fleiri tækifæri til að sýna sig á næsta tímabili en hann kom við sögu í fimm leikjum liðsins í vetur. Fótbolti 16. júní 2007 02:15
Teitur orðlaus yfir lánleysi sinna manna "Það er ennþá einu sinni helvíti súrt að tapa þessu því mér fannst við eiga svo mikið af tækifærum í fyrri hálfleiknum - algjörum dauðafærum - að það er alveg ferlega súrt að tapa þessu," sagði Teitur Þórðarson í viðtali á Sýn eftir tap hans manna í KR gegn FH í kvöld. Íslenski boltinn 14. júní 2007 22:22
Herbragð Ólafs gekk upp gegn KR "Við lögðum upp með að sækja grimmt á þá strax í byrjun þar sem þeir eru særðir og með lítið sjálfstraust og það tókst mjög vel. Reyndar vorum við heppnir að fá ekki á okkur eitt, tvö eða jafnvel þrjú mörk í fyrri hálfleik - en í seinni var þetta ekki nokkur spurning," sagði þjálfari FH eftir sigurinn á KR í kvöld. Íslenski boltinn 14. júní 2007 22:11
Ófarir KR halda áfram Ófarir KR í Landsbankadeildinni halda áfram og í kvöld þurfti liðið að sætta sig við enn eitt tapið - Nú á heimavelli gegn Íslandsmeisturum FH 2-0. FH gerði út um leikinn með tveimur mörkum á fyrstu 20 mínútum leiksins og hélt fengnum hlut eftir það. KR-ingar áttu nokkur ágætis færi til að skora en lánleysi liðsins það sem ef er leiktíðinni er algjört og situr það á botninum með aðeins eitt stig eftir sex umferðir. Íslenski boltinn 14. júní 2007 21:47
Öruggur sigur Blika á ÍA Breiðablik vann í kvöld sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu þegar liðið vann öruggan sigur á ÍA á heimavelli. Keflvíkingar lögðu Framara 2-1 í Keflavík og þá vann Fylkir 1-0 sigur á HK í Árbænum. Íslenski boltinn 14. júní 2007 21:25
FH yfir í hálfleik Íslandsmeistarar FH hafa yfir 2-0 í hálfleik gegn KR í leik liðanna í Frostaskjóli. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og komust í 2-0 eftir 19 mínútur með mörkum Ásgeiri Ásgeirssonar og Guðmundar Sævarssonar. KR-ingar hafa þó verið mjög aðgangsharðir eftir það og eru í raun klaufar að vera ekki búnir að skora. Íslenski boltinn 14. júní 2007 20:48
FH komið í 2-0 í vesturbænum Hrakfarir KR-inga í Landsbankadeildinni virðast engan endi ætla að taka en liðið er komið undir 2-0 gegn FH á heimavelli þegar aðeins 20 mínútur eru liðnar af leiknum. Flautað hefur verið til hálfleiks í leikjunum sem hófust klukkan 19:15. Íslenski boltinn 14. júní 2007 20:21
KR - FH í beinni á Sýn Stórleikur KR og FH í sjöttu umferð Landsbankadeildarinnar hefst nú klukkan 20 og er sýndur beint á Sýn. KR-ingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda því þeir verma botnsæti deildarinnar eftir verstu byrjun í sögu félagsins í efstu deild. Klukkan 19:15 hófust leikir Breiðabliks og ÍA, Fylkis og HK og Keflavíkur og Fram. Íslenski boltinn 14. júní 2007 19:52
Blikar ósáttir við aganefndi KSÍ Knattspyrnudeild Breiðabliks gaf í dag út yfirlýsingu vegna úrskurðar aganefndar KSÍ í tengslum við leikbönn sem þeir Tryggvi Guðmundsson hjá FH og Valur Fannar Gíslason hjá Fylki fengu í kjölfar handalögmála sinna í leik á dögunum. Þykir Blikum vera ósamræmi í úrskurðum aganefndar, sem dæmdi leikmann liðsins í tveggja leikja bann vegna brots í leik liðsins gegn Fylki í síðasta mánuði. Íslenski boltinn 14. júní 2007 17:18
Sjötta umferðin klárast í kvöld Í kvöld klárast sjötta umferðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu þegar spilaðir verða fjórir leikir. Stórleikur kvöldsins er án efa viðureign KR og FH í vesturbænum, en þar eigast við liðin í efsta og neðsta sæti deildarinnar. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 19:45. Íslenski boltinn 14. júní 2007 16:49
Helgi Sig: Mikilvægt að halda í við FH "Það er gaman að skora og ekki verra að vinna leikinn, því við vorum búnir að gera tvö jafntefli og alveg kominn tími á sigur," sagði markaskorarinn Helgi Sigurðsson í samtali við Sýn eftir leik Vals og Víkings í kvöld. Helgi skoraði tvívegis í leiknum. Íslenski boltinn 13. júní 2007 22:22
Maggi Gylfa: Valur átti skilið að vinna Magnús Gylfason, þjálfari Víkings, viðurkenndi að lið Vals hefði átt skilið að sigra í leik liðanna í Landsbankadeildinni í kvöld. Hann sagðist í samtali við Sýn hafa verið óhress með fyrsta mark Vals þar sem hann vildi meina að uppbótartíminn hefði verið liðinn þegar Pálmi Rafn skoraði. Íslenski boltinn 13. júní 2007 22:15
Öruggur sigur Vals á Víkingi Valsmenn unnu í kvöld öruggan 3-1 sigur á Víkingi í fyrsta leik sjöttu umferðar Landsbankadeildarinnar. Valsmenn voru sterkari aðilinn í leiknum og sigurinn fyllilega verðskuldaður. Helgi Sigurðsson skoraði tvö marka Vals, það fyrra úr víti og Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrsta mark liðsins rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Sinisa Kekic minnkaði muninn fyrir Víking með marki úr víti 15 mínútum fyrir leikslok. Íslenski boltinn 13. júní 2007 21:54
3-0 fyrir Val Valsmenn eru komnir í 3-0 gegn Víkingi á Laugardalsvellinum eftir rúmlega tíu mínútna leik í síðari hálfleik. Helgi Sigurðsson skoraði annað mark Valsmanna úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að skot Valsmanna fór í höndina á varnarmanni Víkinga og skoraði svo þriðja markið aðeins tveimur mínútum síðar eftir laglega skyndisókn. Þetta er fimmta mark Helga á leiktíðinni. Íslenski boltinn 13. júní 2007 21:12
Valsmenn 1-0 yfir á Laugardalsvelli Valsmenn hafa yfir 1-0 gegn Víkingum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrsta leik sjöttu umferðar Landsbankadeildarinnar. Pálmi Rafn Pálmason skoraði mark Valsmanna í uppbótartíma eftir að liðið hafði verið með yfirburði á síðustu mínútunum. Bæði lið hefðu auðveldlega geta verið búin að ná forystunni áður en kom að marki Pálma, en leikmenn höfðu ekki heppnina með sér fyrir framan markið. Íslenski boltinn 13. júní 2007 20:46
Valur - Víkingur í beinni í kvöld Sjötta umferðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu hefst í kvöld með leik Vals og Víkings á Laugardalsvelli. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Sýn. Valsmenn eru í öðru sæti deildarinnar en Víkingur í 3.-5. sæti. Valsmenn hafa aðeins unnið 1 af fyrstu 3 heimaleikjum sínum til þessa, en Víkingar hafa unnið báða útileiki sína. Íslenski boltinn 13. júní 2007 18:51
Var aldrei ætlunin að slá mann í andlitið Aganefnd KSÍ felldi í gær þann dóm að þeir Tryggvi Guðmundsson úr FH og Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason skyldu fá eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem þeir fengu í leik liðanna um helgina. Íslenski boltinn 13. júní 2007 06:45
Eggert frá út tímabilið Framarar urðu fyrir miklu áfalli í leiknum gegn HK þegar Eggert Stefánsson meiddist illa. Í ljós hefur komið að Eggert er með slitið krossband og hann leikur því ekki meira á þessari leiktíð. Eggert hafði verið að spila vel í uppafi leiktíðar og náði ágætlega saman við Reynir Leósson. Spurning hver fær það verðuga verkefni að leysa Eggert af hólmi það sem eftir lifir sumars. Íslenski boltinn 13. júní 2007 06:00
Tölfræðin ekki hliðholl KR KR er aðeins með eitt stig í Landsbankadeildinni eftir fimm umferðir. KR er fimmtánda liðið sem nær svo slökum árangri síðan tíu lið byrjuðu að spila í efstu deild árið 1977. Þrettán þessara liða hafa fallið úr efstu deild og tíu þeirra hafa endað í tíunda sæti. Aðeins eitt lið hefur bjargað sér og það var ÍA árið 2006 en þá unnu Skagamenn leik númer sex og sjö. Íslenski boltinn 12. júní 2007 07:00
Lítill áhugi hjá feitustu bitunum Teitur Þórðarson situr á heitasta stólnum þegar staðan í Landsbankadeild karla er skoðuð. Vesturbæjarrisinn blundar vært á botni deildarinnar og háværar raddir heyrast nú um að nóg sé komið. Íslenski boltinn 12. júní 2007 06:15
Sigurður velur hópinn sem mætir Frökkum og Serbum Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í dag leikmannahóp sinn fyrir leikina gegn Frakklandi og Serbíu í undankeppni EM 2009 í Finnlandi. Íslenska liðið mætir sterku liði Frakka 16. júní og Serbum þann 21. júní en báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvellinum. Fótbolti 11. júní 2007 15:24
Þórður Guðjóns: Meiri sigurvilji hjá okkur en KR "Þetta var glæsilegur leikur hjá liðsheildinni í dag og þetta er það sem við höfum verið að leggja upp í allan vetur. Við gáfum lítil færi á okkur í dag og leikmenn lögðu sig alla fram, svo þetta gekk fullkomlega upp hjá okkur," sagði Þórður Guðjónsson leikmaður ÍA í viðtali á Sýn í kvöld. Íslenski boltinn 10. júní 2007 22:26
Pétur Marteinsson: Gríðarlega erfið staða "Við erum búnir að eiga afspyrnuslaka byrjun í deildinni. Við skorum ekki úr færunum okkar, fáum ekki nógu mörg færi og svo erum við að fá alltof ódýr mörk á okkur," sagði Pétur Hafliði Marteinsson hjá KR í samtali við Sýn eftir tap liðsins gegn Skagamönnum í kvöld. Íslenski boltinn 10. júní 2007 22:07
Öruggur sigur Skagamanna á KR KR-ingar sitja áfram einir á botni Landsbankadeildar karla eftir að liðið steinlá 3-1 fyrir ÍA á Skipaskaga í kvöld. Bjarni Guðjónsson kom ÍA yfir eftir um 20 mínútna leik og Helgi Pétur Magnússon skoraði annað mark heimamanna á síðustu andartökum fyrri hálfleiks. Íslenski boltinn 10. júní 2007 21:52
FH tapar fyrstu stigunum í áflogaleik Íslandsmeistarar FH töpuðu í kvöld sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið varð að láta sér lynda markalaust jafntefli við Fylki á heimavelli sínum í Kaplakrika. Tryggvi Guðmundsson og Valur Fannar Gíslason fengu báðir rautt spjald undir lok leiksins fyrir að skiptast á hnefahöggum. Þá vann HK góðan 2-1 sigur á Fram í uppgjöri nýliðanna í deildinni. FH er áfram á toppnum með 13 stig en Fram er í næst neðsta sæti með tvö stig og er án sigurs. Íslenski boltinn 10. júní 2007 21:12
3-0 fyrir ÍA gegn KR - Kári skoraði eftir 15 sekúndur KR-ingar eru komnir í mjög vond mál í leiknum gegn ÍA á Skaganum þar sem Kári Steinn Reynisson skoraði þriðja mark Skagamanna eftir aðeins 15 sekúndna leik í síðari hálfleik. Teitur Þórðarson gerði tvær breytingar á liði sínu í hálfleik en hans menn fengu blauta tusku í andlitið strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og því á brattann að sækja fyrir þá svarthvítu. Íslenski boltinn 10. júní 2007 21:02
Skagamenn 2-0 yfir gegn KR í hálfleik Staðan er ekki góð hjá botnliði KR þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðsins við ÍA á Skaganum í fimmtu umferð Landsbankadeildarinnar. Skagamenn hafa yfir 2-0 í hálfleik og hafa nýtt færi sín vel gegn hugmyndasnauðum KR-ingum. Bjarni Guðjónsson og Helgi Pétur Magnússon skoruðu mörk ÍA. Skagamenn hafa átt 7 skot að marki KR og 2 á rammann en KR hefur átt 4 skot og ekker þeirra rataði á markið. Íslenski boltinn 10. júní 2007 20:47