10 þúsund hermenn hafa særst Meira en tíu þúsund bandarískir hermenn hafa særst í Írak síðan ráðist var inn í landið og meira en þrettán hundruð hafa látið lífið. Þetta kemur fram í nýrri samantekt frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Erlent 5. janúar 2005 00:01
28 látnir í Írak Fimmtán fórust í sjálfsmorðssprengjuárás við lögregluskóla í borginni Hilla í Írak í morgun á svæði sem kallað er þríhyrningur dauðans. Fyrr um daginn féllu tveir óbreyttir borgarar í Bagdad þegar bílsprengja var sprengd við bandaríska herbílalest. Erlent 5. janúar 2005 00:01
6 látnir og 13 særðir Sex menn féllu í sjálfsmorðsárás sem gerð var fyrir stundu í borginni Bakúba í norðurhluta Íraks. Að minnsta kosti þrettán manns særðust í árásinni sem beindist gegn írökskum lögreglumönnum og öryggissveitum. Erlent 5. janúar 2005 00:01
Tveir létust í sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti tveir létust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í morgun. Árásarmaðurinn ók leigubíl sem sprakk við vegatálma lögreglunnar við veg sem liggur að höfuðstöðvum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar í Írak. Að minnsta kosti tuttugu og þrír eru sárir eftir árásina. Allawi sjálfur var víðsfjarri þegar árásin var gerð. Erlent 3. janúar 2005 00:01
Átján þjóðvarðliðar myrtir Árásarmaður myrti átján írakska þjóðvarðliða og óbreytta borgara í sjálfsmorðsárás fyrir norðan Bagdad í Írak í morgun. Mjög er óttast að árásir af þessum toga muni aukast til mikilla muna næstu vikurnar enda reyna uppreisnarmenn í Írak allt hvað þeir geta til að koma í veg fyrir að þingkosningar verði haldnar í landinu í lok janúar. Erlent 2. janúar 2005 00:01
43 féllu í Írak Alls féllu 43 fyrir hendi íraskra andspyrnumanna í gær. Af hinum föllnu voru flestir lögreglumenn. Árásirnar voru gerðar aðeins degi eftir að stærsti stjórnmálaflokkur súnní-múslima ákvað að bjóða ekki fram í kosningunum í janúar vegna stigvaxandi ofbeldis. Erlent 28. desember 2004 00:01
13 írakskir lögreglumenn drepnir Skæruliðar felldu þrettán írakska lögreglumenn og særðu tvo í geysiharðri árás sem þeir gerðu á lögreglustöð í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Margskonar vopnum var beitt og reyndu lögreglumennirnir að verjast en ekki fer sögum af mannfalli í röðum skæruliða. Erlent 28. desember 2004 00:01
Níu liggja í valnum Níu fórust og 39 særðust í sprengjuárás í Bagdad í gær. Leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks sjía var skotmark árásarmannsins en hann sakaði hins vegar ekki. Erlent 27. desember 2004 00:01
Níu látnir og 40 særðir í Bagdad Að minnsta kosti níu menn fórust og fjörutíu særðust þegar bílsprengja sprakk fyrir utan höfuðstöðvar helsta stjórnmálaflokks sjíta í Bagdad í Írak í morgun. Flokkurinn var stofnaður í stjórnartíð Saddams Husseins og voru leiðtogar hans í útlegð þar til Saddam var steypt af stóli. Erlent 27. desember 2004 00:01
Stærsti flokkur súnníta hættur við Stærsti flokkur súnníta í Írak hefur hætt við þátttöku í kosningunum sem fram eiga að fara þann 30. janúar næstkomandi. Talsmenn flokksins segja að ekki hafi verið orðið við kröfum sem flokkurinn setti fram og setti sem skilyrði fyrir þátttöku. Flokksmenn eru þrátt fyrir þetta ekki hvattir til að sniðganga kosningarnar. Erlent 27. desember 2004 00:01
14 létust og 33 særðust í Írak Fjórtán létust og þrjátíu og þrír særðust þegar tvær sprengjur sprungu í tveimur árásum suður af Bagdad í gærkvöld. Níu létust og þrettán særðust í sjálfsmorðsárás þegar bifreið hlaðin sprengiefnum ók inn í vegatálma. Þeir sem létust voru úr þjóðvarðliðinu og lögreglunni, auk nokkurra óbreyttra borgara. Erlent 23. desember 2004 00:01
Hættir við öll verkefni í Írak Einn stærsti bandaríski verktakinn í Írak, Contrack International Inc, hefur ákveðið að hætta við öll verkefni í landinu. Fyrirtækið hefur því sagt upp samningum að virði tuga milljóna dollara þar sem kostnaður við öryggisgæslu í Írak hefur rokið upp úr öllu valdi. Erlent 22. desember 2004 00:01
Mikil spenna í Mósúl Mikil spenna er í borginni Mósúl í Írak sem er í herkví eftir að tuttugu og tveir létust þar í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. Óttast er að uppreisnarmenn hyggi á nýja hrinu árása. Erlent 22. desember 2004 00:01
Erfitt að bera kennsl á líkin Marga daga tekur að bera kennsl á lík þeirra sem fórust í sprengjuárás á messatjald á herstöð í Írak í gær. Tuttugu og tveir fórust í árásinni. Erlent 22. desember 2004 00:01
Árásin í Mosul sjálfsmorðsárás? Ekki er víst að flugskeyti hafi hæft matsal bandarískrar herstöðvar eins og í fyrstu var talið. Samtökin Ansar al-Sunnah segja að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Verið er að rannsaka málið. Erlent 22. desember 2004 00:01
Blair óvænt til Bagdad Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór í óvænta heimsókn til Bagdad í gær og fundaði með Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar landsins. Þetta var þriðja heimsókn Blairs til Íraks og sú fyrsta síðan Saddam Hussein var handtekinn fyrir ári síðan. Erlent 21. desember 2004 00:01
Yfir 20 létust í sprengjuárás 22 létust og rúmlega 50 særðust í sprengjuárás á bandaríska herstöð í borginni Mosul í norðurhluta Íraks í gær.Samtökin Ansar al-Sunnah hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, en þau eru sögð vilja koma álíka stjórnarfari á í Írak og talibanar höfðu í Afganistan. Erlent 21. desember 2004 00:01
Sjítar vilja ekki hefnd Leiðtogar sjíta í Írak biðja fylgismenn sína um að sýna stillingu og hefna ekki sjálfsmorðsárásanna sem urðu 60 manns að bana í gær. Talið er víst að sprengjunum tveimur, sem sprungu annars vegar í Najaf og hins vegar Karbala í gær, hafi verið komið fyrir af öfgasinnuðum súnní-múslimum. Erlent 20. desember 2004 00:01
Íraskir hermenn ekki tilbúnir George W. Bush, forseti Bandaríkjanna viðurkenndi í gær að íraskir hermenn væru ekki tilbúnir til þess að leysa bandarískar hersveitir í Írak af hólmi. Erlent 20. desember 2004 00:01
Kosningastarfsmenn drepnir í Írak Öflug bílsprenging sprakk fyrir stundu í borginni Kerbala í Írak. Í það minnsta tíu fórust. Þrír starfsmenn kjörstjórnar fyrir kosningarnar í næsta mánuði voru drepnir í Bagdad fyrr í morgun. Erlent 19. desember 2004 00:01
Þekktasta fórnarlambið á batavegi Þekktasta fórnarlamb stríðsins í Írak er á batavegi. Ali Abbas, drengurinn sem missti hendurnar þegar sprengja lenti á heimili hans í Bagdad, vill snúa aftur heim til að starfa með öðrum sem misst hafa útlimi. Erlent 19. desember 2004 00:01
48 látnir og 10 særðir í Najaf Að minnsta kosti 48 eru látnir og 90 særðir eftir sjálfsmorðsárás í hinni heilögu borg Najaf í Írak í dag. Árásarmaðurinn ók bíl upp að strætisvagnastöð, þar sem mikill mannfjöldi var samankominn, og sprengdi sig þar í loft upp. Erlent 19. desember 2004 00:01
Tugir létust í Najaf og Karbala Mesta mannfall á einum degi í Írak í nokkra mánuði varð í gær þegar tvær sprengjur sprungu í helgustu borgum sjíamúslima. Þrír starfsmenn kosninganefndar voru skotnir til bana. Myndband með tíu íröskum gíslum sýnt. Erlent 19. desember 2004 00:01
62 liggja í valnum eftir daginn Sextíu og tveir liggja í valnum eftir hrinu grimmdarlegra árása í Írak í dag. Skotmörk hryðjuverkamannanna í dag voru helgistaðir sjíta í borgunum Najaf og Kerbala. Tilgangurinn er að sögn stjórnmálaskýrenda að reka fleyg á milli sjíta og súnníta í von um trúarbragðastríð. Erlent 19. desember 2004 00:01
Unglingsstúlka lést í sprengjuárás Unglingsstúlka lést þegar sprengja sprakk í vegkanti í þann mund sem skólarúta átti leið hjá í Mósúl í Írak í dag. Sex særðust í árásinni, sumir mjög alvarlega. Sprengjutilræðinu virðist hafa verið beint gegn bandarískum hermönnum sem óku rétt á undan skólabílnum. Erlent 18. desember 2004 00:01
Þrjár árásir á kosningaskrifstofur Tveir hafa látist og níu særst í þremur árásum sem gerðar hafa verið á kosningaskrifstofur í Írak í dag. Sú mannskæðasta varð í borginni Dudsjæl í norðurhluta landsins þar sem tveir féllu. Erlent 18. desember 2004 00:01
Samstarfsmaður Zarqawis drepinn Náinn samstarfsmaður hryðjuverkamannsins alræmda Abu Musabs al-Zarqawis hefur verið drepinn af írökskum öryggissveitum að sögn Iyads Alllawis, forsætisráðherra bráðbirgðastjórnarinnar í Írak. Maðurinn, Hassan Ibrahim Farhan að nafni, er meðlimur al-Kaída hryðjuverkasamtakanna og er sagður hafa staðið fyrir fjölda mannnrána og aftaka í Írak að undanförnu. Erlent 14. desember 2004 00:01
Hinir staðföstu halda heim Uppreisnarmenn í Írak halda áfram árásum sínum og er lögregla vinsælt skotmark. Fyrir vikið fækkar í röðum írakskra sveita og hinir staðföstu halda heim á leið. Erlent 14. desember 2004 00:01
Sjálfsmorðsárás við græna svæðið Einn eða tveir eru taldir hafa farist í sjálfsmorðssprengjuárás við græna svæðið í Bagdad fyrir stundu. Þetta er annan daginn í röð sem öflug sprenging skekur græna svæðið þar sem ríkisstjórn landsins, erlend sendiráð og herstjórnin eru til staðar. Tólf eru sagðir sárir, sumir hverjir alvarlega, samkvæmt fyrstu fregnum. Erlent 14. desember 2004 00:01
79 listar í kosningunum í Írak Sjálfsmorðsárás var gerð á græna svæðið í Bagdad í morgun, annan daginn í röð. Árásin var nákvæmlega eins og gerð á sama stað. Sjötíu og níu listar hafa verið lagðir fram fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar í Írak sem haldnar verða í næsta mánuði. Erlent 14. desember 2004 00:01