Grátbað um að lífi sínu yrði þyrmt Að minnsta kosti ellefu manns létust og um tuttugu særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í námunda við græna svæðið í Bagdad um klukkan sex í morgun. Sjónvarpsstöðin al-Jazeera birti í gær myndir af bandarískum ríkisborgara sem írakskir uppreisnarmenn rændu á mánudaginn. Hann grátbað um að lífi sínu yrði þyrmt Erlent 14. apríl 2005 00:01
Hryðjuverkamenn herða árásir sínar Hryðjuverkamenn í Írak virðast vera að herða árásir sínar en verulega hafði dregið úr þeim eftir þingkosningarnar í landinu. Fjölmargar skotárásir og sprengjutilræði voru gerð í Írak í dag og státa al-Qaida hryðjuverkasamtökin af því að bera ábyrgðina. Erlent 14. apríl 2005 00:01
Sambærilegt falli Berlínarmúrsins Fall styttu Saddams Husseins í Bagdad fyrir tveimur árum er sambærilegt falli Berlínarmúrsins, að mati George Bush Bandaríkjaforseta. Á fundi með bandarískum hermönnum í Texas í gær sagði Bush að talað yrði um fallið á styttu Saddams í Bagdad í sömu andrá og fall Berlínarmúrsins þegar fram líða stundir. Erlent 13. apríl 2005 00:01
Níu létust í sprengingu Níu manns féllu í valinn og fjórir særðust þegar bílsprengja sprakk nærri borginni Kirkuk í Írak í morgun. Allir þeir sem létust voru starfsmenn olíufyrirtækis í nágrenninu. Sprengjan sprakk þegar öryggisverðir fyrirtækisins reyndu að aftengja hana. Erlent 13. apríl 2005 00:01
Vill taka þátt í stjórnarsamstarfi Iyad Allawi, fráfarandi forsætisráðherra Íraks, lýsti í dag yfir vilja sínum til að starfa með nýrri ríkisstjórn landsins. Hann hafði áður sagst ætla að sitja í stjórnarandstöðu í kjölfar kosninganna sem fram fóru í Írak í janúar. Erlent 10. apríl 2005 00:01
Sendiráðsmanni rænt í Írak Starfsmanni pakistanska sendiráðsins í Írak virðist hafa verið rænt. Stjórnvöldum hafa borist óstaðfestar fregnir þess eðlis að hann sé í haldi og eru í viðræðum um að fá hann lausan. Erlent 10. apríl 2005 00:01
Fimmtán hermenn teknir af lífi Fimmtán hermenn fórust í skotárás uppreisnarmanna í Bagdad í morgun. Hermennirnir, sem voru allir írakskir, voru í bíl sem uppreisnarmennirnir þvinguðu af veginum, ráku hermennina út og tóku af lífi. Erlent 9. apríl 2005 00:01
Stjórnarskráin tilbúin í ágúst Búist er við að ný stjórnarskrá fyrir Írak verði tilbúin um miðjan ágúst. Þetta var haft eftir hinum nýkjörna forseta landsins, Jalal Talabani, í dag. Tíu vikur eru liðnar síðan kosningar fóru fram í Írak og enn á eftir að mynda ríkisstjórn. Stefnt er að nýjum þingkosningum í lok þessa árs. Erlent 8. apríl 2005 00:01
Ráðist á flutningabílstjóra í Írak Hópur byssumanna gerði árás á sex tyrkneska flutningabíla rétt norður af borginni Kirkuk í Írak í nótt. Eins bílstjóra er saknað og er jafnvel talið að honum hafi verið rænt. Fjórir bílstjórar særðust og voru fluttir á sjúkrahús. Erlent 8. apríl 2005 00:01
Öflug sprenging nærri flugvellinum Tveir féllu í valinn þegar bílsprengja sprakk nærri alþjóðaflugvellinum í Bagdad í morgun. Sprengingin var mjög öflug og heyrðist langar leiðir að sögn vitna í nágrenninu. Erlent 5. apríl 2005 00:01
Talsmaður þingsins loks valinn Talsmaður írakska þingsins hefur loks verið valinn eftir margra daga samningaviðræður. Súnnítinn Hajim Al-Hassani varð fyrir valinu og þar með hefur verið staðið við það loforð að súnnítar fengju með einhverjum hætti að koma að myndun nýrrar ríkisstjórnar í landinu. Erlent 4. apríl 2005 00:01
Einstakt mál í sænskri réttarsögu Tveir Írakar á þrítugsaldri voru í dag ákærðir í Svíþjóð fyrir að skipuleggja sjálfsmorðsárás sem kostaði á annað hundrað manns lífið í Erbil í norðurhluta Íraks. Mál af þessum toga hefur aldrei komið til kasta sænskra dómstóla áður. Erlent 4. apríl 2005 00:01
Myndband með rúmensku gíslunum Al Jazeera fréttastofan birti í gær myndband af þremur rúmenskum fjölmiðlamönnum sem var rænt í Írak á mánudaginn. Á myndbandinu sést jafnframt fjórði maðurinn sem er bandarískur ríkisborgari. Erlent 31. mars 2005 00:01
Fimm þjóðvarðliðar féllu Fimm írakskir þjóðvarðliðar féllu í valinn í sjálfsmorðsárás nærri borginni Kirkuk í morgun. Þó nokkrir slösuðust í árásinni sem var gerð við eftirlitsstöð írakska hersins. Erlent 31. mars 2005 00:01
Fjöldi vannærðra barna tvöfaldast Meira en fjórðungur barna í Írak þjáist af viðvarandi vannæringu og fjöldi vannærðra barna undir fimm ára aldri hefur tvöfaldast síðan ráðist var inn í landið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Erlent 31. mars 2005 00:01
Kona og barn á meðal látinna Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að kastaðist í kekki á milli bandarískra hermanna og hóps andspyrnumanna í borginni Mosul í Írak í dag. Að sögn talsmanns íröksku lögreglunnar er kona og barn á meðal látinna. Auk þeirra sem féllu liggja fimm sárir. Erlent 30. mars 2005 00:01
Nokkur tonn sprengiefna haldlögð 131 meintur skæruliði var handtekinn í skyndiárás bandarískra og írakskra hermanna nærri borginni Kerbala í dag. Lagt var hald á gríðarlegt magn sprengiefnis og tækja og tóla til sprengjugerðar og að sögn yfirmanns innan bandaríkjahers er um að ræða nokkur tonn af sprengiefni. Erlent 26. mars 2005 00:01
Blóðbaðið heldur áfram Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tuttugu eru særðir eftir tvær sjálfmorðsárásir í Írak í dag. Ellefu hinna látnu voru sérsveitarmenn innan íröksku lögreglunnar sem létust þegar maður sprengdi sig í loft upp við eftirlitsstöð í borginni Ramadí. Þrír hinna særðu eru óbreyttir borgarar. Erlent 25. mars 2005 00:01
Írak: Hvað kemur það okkur við? Af hverju kemur Íslendingum við hvað gerist í Írak? Og af hverju er Írak alltaf í fréttum? Erlent 22. mars 2005 00:01
Von á frekari stríðsátökum? Mörg mikilvæg deilumál eru óútkljáð í Miðausturlöndum og vegurinn fram á við virðist þyrnum stráður. Spurningin er hvort hægt verði að leysa þessar deilur á friðsamlegan hátt eða má búast við frekari stríðsátökum? Erlent 22. mars 2005 00:01
Rasmussen óvænt til Íraks Danir munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða ríkisstjórn Íraks í öryggismálum. Þetta sagði Anders Fogh-Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, þegar hann kom í óvænta heimsókn til Íraks í dag. Erlent 17. mars 2005 00:01
Brösug stjórnarmyndun í Írak Það gengur brösuglega að koma á starfhæfri stjórn í Írak. Trúarhópar og þjóðernisbrot deila sín á milli og á sama tíma fækkar í fjölþjóðahernum þegar bandamenn heltast úr lestinni. Erlent 16. mars 2005 00:01
Sprengingar fyrir þingfund Fréttir voru að berast af sprengingum við græna svæðið í Bagdad þar sem margar helstu stofnanir Íraka eru staðsettar. Sprengingin varð aðeins nokkrum mínútum fyrir fyrsta þingfund írakska þingsins sem fer fram í nágrenninu. Erlent 16. mars 2005 00:01
Ítalskir hermenn kallaðir heim Ítalir ætla að hefja brottfluttning herliðs síns frá Írak þegar í september á þessu ári. Þetta sagði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, í gær. Ummælin koma mjög á óvart því að hingað til hafa ítölsk stjórnvöld sagst ætla að halda herliði landsins í Írak þangað til Írakar geti sjálfir séð um öryggi lands síns. Erlent 16. mars 2005 00:01
Verktakar fórust í sprengingu Tveir verktakar fórust þegar sprengja sprakk í vegkantinum þegar bifreið þeirra ók fram hjá á þjóðveginum til Hillah í Írak í gær. Einn verktaki til slasaðist í árásinni, að sögn talsmanna Bandaríkjahers. Erlent 13. mars 2005 00:01
Jórdönskum kaupsýslumanni sleppt Mannræningjar í Írak hafa sleppt jórdönskum kaupsýslumanni úr haldi eftir að fjölskylda hans greiddi ræningjunum 100 þúsund Bandaríkjadali, andvirði sex milljóna íslenskra króna, í lausnargjald. Bróðir mannsins greindi frá þessu í dag og sagði bróður sinn hafa sloppið úr prísundinni í gær en honum var rænt á laugardag. Erlent 8. mars 2005 00:01
Stjórnarmyndun í skugga ofbeldis 31 týndi lífi í Írak í hryðjuverkaárásum víðs vegar um landið og tugir manna særðust. Á meðan halda stjórnarmyndunarviðræður áfram af fullum krafti. Erlent 7. mars 2005 00:01
Írakar taka við stjórn öryggismála Þjóðvarðlið Íraka hefur tekið við stjórn öryggismála í tíu af hættulegustu hverfum höfuðborgarinnar Bagdad. Bandaríska dagblaðið <em>Chicago Tribune</em> greinir frá því að síðan kosningunum í Írak lauk hafi Bandaríkjaher smátt og smátt fært völdin á þessum stöðum í hendur Íraka. Erlent 7. mars 2005 00:01
Fimm látnir og fimm særðir Tvær bílsprengjur sprungu nærri innanríkisráðuneyti Íraks í morgun með þeim afleiðingum að fimm lögreglumenn létu lífið. Þá særðust að minnsta kosti fimm lögreglumenn til viðbótar í árásinni. Erlent 3. mars 2005 00:01
1500 bandarískir hermenn fallnir Mannfall í Írak vex dag frá degi en fimmtán hundruðasti bandaríski hermaðurinn týndi þar lífi í gær. Tífalt fleiri óbreyttir borgarar hafa þó dáið síðan innrásin var gerð á sínum tíma. Erlent 3. mars 2005 00:01