13 létust í bílsprengingu Að minnsta kosti níu Írakar og fjórir útlendingar létu lífið þegar bílsprengja sprakk í miðborg Bagdad í morgun. Sprengjan sprakk þegar erlendar öryggissveitir óku fram hjá svæðinu og er talið að þær hafi verið skotmark uppreisnarmanna. Lögreglan í Bagdad segir að þrjátíu og fimm hið minnsta hafi særst í árásinni. Erlent 7. maí 2005 00:01
Aðstoðarmaður al-Zarqawis í haldi Öryggissveitir Íraka hafa handsamað náinn aðstoðarmann hryðjuverkaleiðtogans Abu Musabs al-Zarqawis sem sagður er æðsti maður al-Qaida í landinu. Aðstoðarmaðurinn, Ghassan al-Rawi, hefur verið innsti koppur í búri í skipulagningu árása uppreisnarmanna í bænum Rawa í vesturhluta Íraks. Erlent 7. maí 2005 00:01
Fjórtán lík finnast Írakskir lögreglumenn fundu í morgun fjórtán lík í norðurhluta Bagdad og hafði fólkið allt verið skotið til bana. Greinilegt var að um aftöku var að ræða. Erlent 6. maí 2005 00:01
6,4 milljarðar horfnir Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hafið rannsókn á hvarfi hundrað milljón dollara, um 6,4 milljarða íslenskra króna, sem áttu að fara í uppbyggingarstarf í Írak. Flest bendir til þess að stórfellt fjármálamisferli hafi átt sér stað hjá bandarískum embættismönnum í borginni Hillah í Írak. Erlent 6. maí 2005 00:01
Sjö lögreglumenn féllu Að minnsta kosti sjö lögreglumenn féllu í valinn og fimmtán særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp á námunda við rútu sem flytur lögreglumenn í og úr vinnu. Erlent 6. maí 2005 00:01
Lækkuð í tign vegna pyntinganna Janet Karpinski, yfirmaður herfangelsisins í Abu Ghraib, er fyrst yfirmaðurinn í Bandaríkjaher sem er refsað fyrir framgöngu hermanna þar. Í gærkvöldi lækkaði George Bush Bandaríkjaforseti hana í tign: hún var hershöfðingi en er nú ofursti. Erlent 6. maí 2005 00:01
58 látnir eftir sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti 58 eru látnir eftir sjálfsmorðsárás í bænum Suwayra í Írak síðdegis. Árásarmaðurinn ók bifreið upp að mannfjölda á grænmetismarkaði í bænum og sprengdi sig þar í loft upp. Erlent 6. maí 2005 00:01
Ríkisstjórnin sór embættiseið Fyrsta lýðræðislega kjörna ríkisstjórnin í Írak í hálfa öld sór embættiseið í dag. Þrjá mánuði tók að mynda stjórnina eftir kosningarnar sem fram fóru í janúar. Innlent 3. maí 2005 00:01
Óttast árekstur herþotna Flak bandarískrar herþotu sem ekkert hafði spurst til síðan í gærkvöldi fannst í Írak í morgun. Lík flugmannsins fannst einnig á slysstað en hann var einn í vélinni. Þotan lagði af stað ásamt annarri þotu í venjubundið eftirlit í Írak í gærkvöldi. Ekki er enn vitað um afdrif hinnar þotunnar en óttast er að vélarnar hafi skollið hver á aðra í slæmu veðri. Erlent 3. maí 2005 00:01
83 Bretar fallnir í Írak Breskur hermaður lést eftir að sprengja sprakk í vegarkanti í Suður-Írak í dag. Hermaðurinn var á eftirlitsferð nærri borginni Al-Amarah þegar sprengjan sprakk við bíl sem hann var í ásamt félaga sínum sem særðist í árásinni. 83 breskir hermenn hafa fallið í Írak síðan stríðið í landinu hófst fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 2. maí 2005 00:01
Þrjár bílsprengjur í morgun Þrjár bílsprengjur sprungu í Bagdad í morgun. Að minnsta kosti átta létust og fjölmargir særðust. Árásirnar virðast vera liður í sprengjuherferð sem fór af stað eftir að ríkisstjórn var mynduð í Írak í síðustu viku. Erlent 2. maí 2005 00:01
Brottflutningur hefjist í desember Yfirmenn Bandaríkjahers stefna að því að hefja brottfluttning frá Írak strax í kjölfar þingkosninga í landinu í desember á þessu ári. Þetta kemur fram í leynilegri skýrslu sem breska dagblaðið <em>Daily Telegraph</em> hefur komist yfir. Erlent 2. maí 2005 00:01
Fjórir fallnir í morgun Að minnsta kosti fjórir hafa fallið í valinn og átta eru særðir eftir tvær sprengjuárásir í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sú fyrri beindist að bílalest írakskra hermanna en sú síðari sprakk í fjölfarinni götu í miðbænum og skemmdi íbúðarbyggingu og sex bíla. Erlent 2. maí 2005 00:01
Danir ákærðir fyrir pyntingar Fjórir herlögreglumenn og einn höfuðsmaður í danska hernum voru í dag leiddir fyrir rétt í Kaupmannahöfn en þeir eru ákærðir fyrir að hafa beitt írakska fanga harðræði. Sakborningarnir halda allir fram sakleysi sínu. Erlent 2. maí 2005 00:01
Ekkert lát á árásum Minnst átta manns hafa fallið í valinn og meira en þrjátíu eru særðir eftir nokkrar árásir uppreisnarmanna í Írak í morgun. Meðal þeirra sem létust var háttsettur embættismaður innan öryggismálaráðuneytis landsins. Hann var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Bagdad í morgun. Erlent 28. apríl 2005 00:01
Rifist um lykilráðuneyti Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Írak eftir þriggja mánaða þref. Enn er þó rifist um nokkur lykilráðuneyti. Erlent 28. apríl 2005 00:01
Ný ríkisstjórn samþykkt Írakska þingið samþykkti fyrir stundu nýja ríkisstjórn landsins, þá fyrstu sem er lýðræðislega kjörin í meira en hálfa öld, með miklum meirihluta atkvæða. Erlent 28. apríl 2005 00:01
60 deyja daglega Fjögur hundruð árásir eru að jafnaði gerðar í Írak í hverri viku og daglega týna um sextíu manns lífi í þeim. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Íröksk þingkona myrt Írakska þingkonan Lamiya Khaduri var skotin til bana við heimili sitt í dag. Hún er fyrsti þingmaðurinn sem er drepinn í landinu síðan kosningar fóru fram þann 30. janúar. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Gíslarnir grátbiðja um aðstoð Mannræningjar í Írak hafa ákveðið að fresta því um einn dag að lífláta þrjá rúmenska blaðamenn sem þeir hafa í haldi. Al-Jazeera fréttastofan birti í gær myndir af Rúmenunum þremur þar sem þeir grátbiðja stjórnvöld í Rúmeníu um að fara með herafla sinn burt frá Írak. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Ný ríkisstjórn mynduð Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Írak. Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í dag. Kosið verður um ráðherralistann á írakska þinginu á morgun. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Ábyrgð Rumsfelds könnuð Mannréttindasamtökin Human Rights Watch í Bandaríkjunum krefjast þess að ábyrgð Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra og annarra háttsettra yfirmanna bandaríkjahers, á misþyrmingum hermanna á föngum í Írak, verði könnuð. Erlent 24. apríl 2005 00:01
Sprengingar við lögregluskóla Að minnsta kosti sjö létust og tugir særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í Írak í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni og sprengjan sprakk innan um fjölda lögreglumanna. Erlent 24. apríl 2005 00:01
23 þúsund borgarar taldir af Talið er að fleiri en þrjátíu þúsund manns, þar af 23 þúsund óbreyttir írakskir borgarar, hafi látið lífið í átökum í Írak frá því Bandaríkjamenn og Bretar gerðu innrás í landið fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 24. apríl 2005 00:01
Enn beðið nýrrar stjórnar Enn verður bið á því að ný ríkisstjórn taki til starfa í Írak. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks í viðtali í gærkvöldi. Hann segir að enn eigi eftir að nást samkomulag um það með hvaða hætti súnnítar muni koma að stjórninni, sem sé nauðsynlegt eigi að nást fram breið sátt allra landsmanna um hina nýju stjórn. Erlent 22. apríl 2005 00:01
Lýsa ábyrgð á ódæðinu Hópur sem kallar sig „Íslamska herinn í Írak“ segist bera ábyrgð á því að búlgörsk þyrla var skotin niður í Írak í gær, með þeim afleiðingum að tíu manns létust. Þá segist hópurinn hafa náð þeim eina úr áhöfninni sem komst lífs af og að hann hafi verið drepinn í gær. Erlent 22. apríl 2005 00:01
Upptaka af morði á borgurum Hryðjuverkamenn í Írak sendu í dag frá sér upptöku þar sem sjá má þyrlu með óbreyttum borgurum skotna niður. Blóðugar árásir kostuðu á annan tug lífið í Írak í dag. Erlent 22. apríl 2005 00:01
50 lík fundust í Tígris-ánni Fimmtíu lík fundust á floti í ánni Tígris, skammt frá Bagdad, í dag. Talið er að þau séu af gíslum úr röðum sjíta sem mannræningjar úr röðum súnníta rændu fyrir helgi. Erlent 20. apríl 2005 00:01
Fjórir féllu í Írak Tveir bandarískir hermenn féllu í valinn í sjálfsmorðssprengjuárás í suðurhluta Bagdad í nótt. Fjórir Bandaríkjamenn og sjö Írakar særðust í árásinni. Í morgun féllu svo tveir í valinn og fimm særðust þegar bílsprengja sprakk vestur af Bagdad. Erlent 20. apríl 2005 00:01
Hermennirnir saklausir? Bandarísku hermennirnir sem skutu ítalska leyniþjónustumanninn Nicola Calipari til bana og særðu blaðakonuna Giuliönu Sgrena, bera ekki ábyrgð á því hvernig fór. Þetta hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC eftir heimildarmönnum að sé niðurstaða ítalsk-bandarískrar rannsóknarnefndar sem er í þann mund að ljúka störfum. Erlent 14. apríl 2005 00:01