Manchester United reyna aftur við Rabiot Leit Manchester United að liðstyrk á miðjuna heldur áfram en liðið hefur gert Adrien Rabiot, leikmanni Juventus, tilboð. Samningur Rabiot er að renna út um mánaðarmótin og Juventus fá þá ekki evru fyrir hann. Fótbolti 26. júní 2023 19:01
Weah aftur í Seríu A Juventus eru um það bil að ganga frá kaupum á bandaríska vængmanninum Timothy Weah, frá Lille í Frakklandi. Timothy verður þá annar meðlimur Weah fjölskyldunnar til að spila í Seríu A en faðir hans, George Weah, gerði garðinn frægan með AC Milan undir lok síðustu aldar. Fótbolti 26. júní 2023 18:00
Messi spilaði tvo góðgerðaleiki á tveimur dögum Lionel Messi er ekki enn kominn til nýja félagsins í Bandaríkjunum því hann hefur verið upptekinn við að heiðra gamla liðsfélaga í heimalandi sínu. Fótbolti 26. júní 2023 16:01
Stoltir af að fá Daníel til SönderjyskE og hafa góða reynslu af Íslendingum Landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska knattspyrnufélagsins SönderjyskE. Þessi 27 ára gamli, örvfætti miðvörður skrifaði undir samning sem gildir til fjögurra ára. Fótbolti 26. júní 2023 15:44
Daníel sá þriðji sem fær ekki að fara á EM Tvær breytingar hafa orðið á leikmannahópi Íslands sem í næstu viku hefur keppni á Evrópumóti U19-landsliða karla, á Möltu. Fótbolti 26. júní 2023 15:18
Gylfi gæti orðið liðsfélagi Guðlaugs Victors | Liðið lætur rannsaka bakgrunn Gylfa Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulega endurkomu Gylfa Þórs Sigurðssonar á knattspyrnuvöllinn undanfarnar vikur og mánuði. Nú fullyrða einhverjir að Gylfi sé í viðræðum við DC United í bandarísku MLS-deildinni. Fótbolti 26. júní 2023 15:01
Verðlaunuðu Fanndísi sjötíu mánuðum eftir hennar síðasta leik með félaginu Fanndís Friðriksdóttir fékk viðurkenningu fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í Bestu deild kvenna í gærkvöldi. Íslenski boltinn 26. júní 2023 14:30
Stóð við loforð við látinn föður sinn og fékk sér húðflúr á hausinn Luton Town leikur í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og er þetta í fyrsta sinn í meira en þrjá áratugi sem liðið er í hópi þeirra bestu. Enski boltinn 26. júní 2023 13:30
Modric tekur í það minnsta eitt ár í viðbót með Madrídingum Króatíski knattspyrnumaðurinn Luka Modric hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við spænska stórveldið Real Madrid. Fótbolti 26. júní 2023 13:01
Geta unnið sinn fimmta leik í röð í kvöld: „Þurfum að vera ofan á í baráttu og vilja“ Athyglisverð viðureign mun eiga sér stað á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld þegar spútniklið deildarinnar til þessa, nýliðar FH, taka á móti Þrótti Reykjavík. Ljóst er að sigri annað hvort liðið í kvöld, þá mun það lið lyfta sér upp í 3. sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 26. júní 2023 12:15
Chelsea samdi við sautján ára leikmann Heimis Hallgríms Heimir Hallgrímsson tók hinn unga Dujuan Richards inn í jamaíska landsliðið í vor og nú er strákurinn á leiðinni til enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea. Enski boltinn 26. júní 2023 12:01
Fékk óvænta aðstoð við að fá eiginhandaráritun frá Ronaldinho Samfélagsstjarnan Khaby Lame kom einum áköfum aðdáenda brasilísku knattspyrnugoðsagnarinnar Ronaldinho til bjargar um helgina. Fótbolti 26. júní 2023 11:01
Arteta segir að Arsenal hafi verið sálarlaust þegar hann mætti á svæðið Mikel Arteta hefur gert flotta hluti sem knattspyrnustjóri Arsenal en hann segir að Arsenal hafi verið búið að týna sál félagsins þegar hann mætti á svæðið árið 2019. Enski boltinn 26. júní 2023 10:30
„United skatturinn“ er að trufla möguleg kaup Man Utd á Mount Forráðamenn Manchester United eru enn sannfærðir um að Mason Mount vilji yfirgefa Chelsea og koma til félagsins. Enski boltinn 26. júní 2023 09:30
Enginn leikmaður Liverpool meðal þeirra verðmætustu í ensku úrvalsdeildinni Það er örugglega enginn hissa á því að Norðmaðurinn Erling Braut Haaland sé langverðmætasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í dag eftir magnað fyrsta tímabil hans með Manchester City. Enski boltinn 26. júní 2023 09:01
Man City staðfestir að Gundogan fari til Barcelona Ilkay Gundogan, fyrirliði Manchester City, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir ensku meistarana. Enski boltinn 26. júní 2023 08:13
Hollywood eigendur Wrexham hafa keypt sig inn í formúlu eitt lið Leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney, sem eiga saman enska fótboltafélagið Wrexham, eru ekki hættir að eignast hlut í íþróttaliðum. Formúla 1 26. júní 2023 08:00
Svava áfram út í kuldanum í New York Íslenska landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir var ónotaður varamaður í fimmta leiknum í röð þegar Gotham FC vann 2-1 sigur á Chicago Red Stars í bandarísku atvinnumannadeildinni í nótt. Fótbolti 26. júní 2023 07:31
Chelsea selur Koulibaly til Sádi-Arabíu Senegalski miðvörðurinn Kalidou Koulibaly er enn einn leikmaðurinn sem skiptir yfir í sádi-arabísku deildina. Enski boltinn 26. júní 2023 06:56
Vilja byggja liðið í kringum unga og hungraða leikmenn Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur undanfarnar vikur losað hvern leikmanninn á fætur öðrum. Virðist skipta litlu máli hvert þeir fara og í sumum tilvikum fá þeir jafnvel að fara frítt. Stóra spurningin er af hverju og hvað er Chelsea að pæla? Enski boltinn 25. júní 2023 23:31
„Mér fannst tíminn ekkert líða“ Ásmundur Arnarson, þjálfari Breiðabliks, var sigurreifur eftir 2-1 sigur á Val í stórleik tíundu umferðar Bestu deildar kvenna í kvöld. Úrslitin þýða að Breiðablik jafnar Val á stigum og sitja liðin í efstu tveimur sætum deildarinnar. Fótbolti 25. júní 2023 22:05
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 2-1 | Breiðablik upp fyrir Val á toppi deildarinnar Breiðablik vann afar þýðingarmikinn 2-1 sigur þegar liðið mætti Val í toppslag í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Liðin eru nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar en og Breiðablik hirti toppsætið af Val þar sem Blikaliðið hefur betri markatölu. Fótbolti 25. júní 2023 21:11
Michael Olise hetja franska liðsins Michael Olise skoraði sigurmark Frakklands þegar liðið lagði Noreg að velli með einu marki gegn engu í riðlakeppni Evrópumótsins í fótbolta karla skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri. Fótbolti 25. júní 2023 20:43
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Stjarnan 3-3 | Endurkoma heimakvenna í ótrúlegum leik Þór/KA og Stjarnan fengu sitthvort stigið í hreint ótrúlegum leik norðan heiða í dag. Gestirnir leiddu 3-0 eftir fyrri hálfleikinn en heimakonur björguðu stigi með jöfnunarmarki á 89. mínútu leiksins. Lokatölur því 3-3 í frábærum fótboltaleik. Fótbolti 25. júní 2023 19:47
Morgan Gibbs-White lagði upp bæði mörk Englands Morgan Gibbs-White, leikmaður Nottingham Forest, lagði upp bæði mörk enska karlalandsliðsins í fótbolta þegar liðið fór með 2-0 sigur af hólmi á móti Ísrael í riðlakeppni Evrópumótsins í fótbolta karla sem fram fer í Georgíu þessa dagana. Fótbolti 25. júní 2023 19:08
„Það er eins og einhver hafi komist í mixerinn og hrært í öllum tökunum“ „Ég held að engin leikur í heiminum hafi verið meiri leikur tveggja hálfleikja og þessi“, sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA eftir magnaða endurkomu hans stelpna í síðari hálfleik á móti Stjörnunni. Hálfleikstölur 0-3 fyrir Stjörnunni en lokatölur 3-3. Sport 25. júní 2023 19:03
Leikmenn halda áfram að streyma til Sádí-Arabíu Senegalski landsliðsmiðvörðuinn Kalidou Koulibaly hefur samið við sádí-arabíska félagið Al-Hilal er en hann kemur til félagsins Chelsea. Fótbolti 25. júní 2023 18:42
Kristianstad kom til baka og tryggði sér sigur Kristianstad sýndi mikinn karakter þegar liðið lagði Kalmar að velli, 3-2, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta kvenna í dag. Fótbolti 25. júní 2023 18:32
Elías Rafn gæti verið á leið til Portúgals Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson gæti verið á leið til Portúgals á láni frá Midtjylland í Danmörku. Fótbolti 25. júní 2023 16:45
Chelsea nælir í framherja Villareal Framherjinn Nicolas Jackson hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea og styttist í að hann verði kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður liðsins. Talið er að samningur hans gildi til ársins 2031. Enski boltinn 25. júní 2023 15:01