Fótbolti

Stoltir af að fá Daníel til SönderjyskE og hafa góða reynslu af Ís­lendingum

Sindri Sverrisson skrifar
Daníel Leó Grétarsson í leik gegn Bosníu í mars. Hann á að baki þrettán A-landsleiki.
Daníel Leó Grétarsson í leik gegn Bosníu í mars. Hann á að baki þrettán A-landsleiki. Getty/Alex Nicodim

Landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska knattspyrnufélagsins SönderjyskE. Þessi 27 ára gamli, örvfætti miðvörður skrifaði undir samning sem gildir til fjögurra ára.

Daníel kemur til Danmerkur frá Póllandi þar sem hann lék með Slask Wroclaw í efstu deild, eftir að hafa áður verið hjá Blackpool á Englandi og í Aalesund í Noregi, en hann er uppalinn í Grindavík.

Forsvarsmenn SönderjyskE hrósa happi yfir að hafa fengið Daníel sem á að baki 13 A-landsleiki og var í hópnum sem mætti Portúgal og Slóvakíu á dögunum.

Daníel verður enn einn Íslendingurinn sem spilar fyrir SönderjyskE en fyrir hjá félaginu er Húsvíkingurinn Atli Barkarson auk þess sem Orri Steinn Óskarsson var að láni frá FCK á seinni hluta síðustu leiktíðar.

Af öðrum leikmönnum sem hafa spilað með liðinu, við góðan orðstír, má nefna menn á borð við Hallgrím Jónasson, Eggert Gunnþór Jónsson, Sölva Geir Ottesen, Eyjólf Héðinsson og Ólaf Inga Skúlason. Frá árinu 2008 hefur, með einni undantekningu, verið Íslendingur í liði félagsins á hverri leiktíð.

SönderjyskE var afar nálægt því að komast upp í dönsku úrvalsdeildina í vor en endaði tveimur stigum á eftir Hvidovre sem varð í 2. sæti 1. deildarinnar og fór upp.

Haft góða reynslu af Íslendingum

„Þetta eru viðskipti sem við getum leyft okkur að vera afar stoltir af. Við erum mjög ánægðir með að Daníel Leó Grétarsson hafi valið Sönderjyske Fodbold sem næsta áfangastað á ferlinum. Hann er 27 ára og því á besta fótboltaaldri, á góðum stað á ferlinum þar sem hann er fastamaður í liði og á fast sæti í íslenska landsliðshópnum,“ segir Esben Hansen, yfirmaður íþróttamála hjá SönderjyskE.

„Í gegnum árin höfum við í Sönderjyske Fodbold haft góða reynslu af Íslendingum og nú bætist Daníel Leó Grétarsson í röðina af þeim sem komið hafa með gott og fagmannlegt hugarfar. Við hlökkum til að fá hann í Sönderjyske Fodbold og að sjá hann spila á Sydbank Park,“ segir Hansen á heimasíðu danska félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×