Erfið fæðing en þrjú stig hjá City í rigningunni Manchester City er á toppnum, að minnsta kosti fram á kvöld, eftir 2-0 sigur á Aston Villa í kvöld. City er með 38 stig, jafn mörg og grannar sínar í United sem eiga þó leik til góða, en Villa er í ellefta sætinu, með 26 eftir sextán leiki. Enski boltinn 20. janúar 2021 19:55
Sjö mánaða samningaviðræður engu skilað Hinn virti fréttamaður Fabrizio Romano, sem er oftar en ekki einna fyrstur með fréttir af félagaskiptum leikmanna, er ekki með góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Liverpool hvað varðar Gini Wijnaldum. Enski boltinn 20. janúar 2021 19:00
Segir Ceferin íhuga að spila EM í einu landi Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri þýska risans Bayern Munchen, segir að Aleksander Ceferin forseti UEFA íhugi að EM fari fram í einu landi í sumar. Fótbolti 20. janúar 2021 18:00
Skoraði yfir allan völlinn Markvörður Newport County komst í fréttirnar eftir magnað mark sitt á móti Cheltenham Town. Enski boltinn 20. janúar 2021 14:30
Segir Davíð Snorra stýra U21-liðinu á EM: „Mun gera þetta frábærlega“ Davíð Snorri Jónasson mun stýra U21-landsliði karla í fótbolta á öðru lokamótinu í sögu þess í lok mars, ef allt gengur að óskum. Fótbolti 20. janúar 2021 14:11
„Stór mistök að fara frá Everton“ Bjarni Þór Viðarsson segir að það hafi verið mistök hjá sér að fara frá Everton 2008. Hann var í viðtali í leikskrá Everton á dögunum þar sem hann ræddi meðal annars um tíma sinn hjá félaginu og vonbrigðin að hafa ekki náð að spila með félögum sínum úr gullkynslóðinni svokölluðu í A-landsliðinu. Enski boltinn 20. janúar 2021 14:01
Sara Björk í úrvalsliði stuðningsmanna Sara Björk Gunnarsdóttir bætti fjöður í hattinn í dag þegar hún var valin í ellefu manna úrvalslið ársins hjá fótboltaaðdáendum. Fótbolti 20. janúar 2021 13:16
Litblindir kvörtuðu mikið vegna leiks Liverpool og Man. Utd Hundruð kvartana hafa komið fram eftir útsendinguna frá stórleik Liverpool og Manchester United um helgi. Enski boltinn 20. janúar 2021 11:30
Segja að Ólafur Ingi sé hættur hjá Fylki og taki í staðinn við tveimur landsliðum Knattspyrnusamband Íslands ætlar að slá tvær flugur í einu höggi með því að ráða Ólaf Inga Skúlason til starfa. Fótbolti 20. janúar 2021 09:47
Sannfærðir um að þetta þýði að Cristiano Ronaldo sé á leið heim til Man. Utd Draumur stuðningsmanna Manchester United um að Cristiano Ronaldo komi aftur til félagsins er nú aðeins líklegri til að rætast í augum sumra þeirra. Enski boltinn 20. janúar 2021 08:31
Dagskráin í dag: Dominos-deild kvenna ásamt ítalska og spænska fótboltanum Það er nóg um að vera í dag á Stöð 2 Sport og hliðarrásum. Við sýnum tvo leiki í Dominos-deild kvenna sem og leiki í ítalska og spænska fótboltanum ásamt golfi í nótt, aðfaranótt fimmtudags. Sport 20. janúar 2021 06:02
Fylkir og Þróttur R. fá liðsstyrk Pepsi Max deildarlið Fylkis og Þróttar Reykjavíkur fengu liðsstyrk í dag. Sæunn Björnsdóttir gekk í raðir Fylkis og Guðrún Gyða Haralz í raðir Þróttar Reykjavíkur. Íslenski boltinn 19. janúar 2021 23:16
Óskar Örn með þrennu, Víkingur skoraði sex og Leiknir marði ÍR Það fór fjöldi leikja fram á Reykjavíkurmótinu í fótbolta í kvöld, karla megin það er. Óskar Örn Hauksson skoraði þrennu í sigri KR, Víkingur skoraði sex mörk gegn nágrönnum sínum í Þrótti og Leiknir vann erkifjendur sína í ÍR. Íslenski boltinn 19. janúar 2021 22:45
Leicester tyllir sér á toppinn eftir þægilegan sigur á Chelsea Leicester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan 2-0 heimasigur á Chelsea í kvöld. Sigurinn síst of stór en leikmenn Leicester fóru illa með fjölmörg færi í leik kvöldsins. Enski boltinn 19. janúar 2021 22:15
Southampton síðasta liðið inn í 32-liða úrslit Southampton var i kvöld síðasta liðið inn í 32-liða úrslit FA-bikarsins er liðið lagði Shrewsbury Town af velli 2-0 á heimavelli sínum. Enski boltinn 19. janúar 2021 22:00
Tryggvi Snær öflugur er Zaragoza tryggði sér toppsæti riðilsins Casademont Zaragoza vann öflugan tólf stiga sigur á Pszczólka Start Lublin í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld, lokatölur 94-82. Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik í liði Zaragoza. Körfubolti 19. janúar 2021 21:45
Leverkusen upp í annað sætið eftir sigur á Dortmund Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Bayer Leverkusen lagði Borussia Dortmund af velli og er þar með komið upp í 2. sæti deildarinnar. Lokatölur á BayArena 2-1 heimamönnum í vil. Fótbolti 19. janúar 2021 21:30
Riise tekur tímabundið við enska landsliðinu Hege Riise tekur tímabundið við stjórn enska kvennalandsliðsins eftir að það var staðfest að Phil Neville tók Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Fótbolti 19. janúar 2021 20:30
Moyes hafði betur gegn Stóra Sam Skólastjórar gamla skólans – David Moyes og Sam Allardyce – mættust með lið sín West Ham United og West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Fór það svo að West Ham hafði betur, 2-1. Enski boltinn 19. janúar 2021 20:00
Elías Már skoraði er Excelsior komst áfram í bikarnum Excelsior er komið í 8-liða úrslit eftir sigur á MVV Maastricht í vítaspyrnukeppni. Elías Már Ómarsson skoraði fyrra mark Excelsior í leiknum sem lauk 2-2 sem og hann nýtti vítaspyrnuna sína í vítaspyrnukeppninni. Fótbolti 19. janúar 2021 18:31
Al-Arabi hélt út manni færri í næstum klukkustund Sigurhrinu Al-Arabi lauk í dag er liðið gerði markalaust jafntefli við Umm-Salal í úrvalsdeildinni í Katar. Var þetta annað jafntefli lærisveina Heimis Hallgrímssonar í röð. Fótbolti 19. janúar 2021 18:00
Zlatan himinlifandi að fá Mandzukic til að hræða mótherja Milan AC Milan, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar, hefur samið við króatíska framherjann Mario Mandzukic út tímabilið. Fótbolti 19. janúar 2021 13:30
Hefur skorað á hverju ári á þessari öld og einu ári betur Einn besti framherji heims í dag var ekki fæddur þegar Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði sitt fyrsta mark í atvinnumennsku og hann hefur skorað á öllum árum síðan. Fótbolti 19. janúar 2021 12:30
Alexandra til Frankfurt Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Frankfurt. Íslenski boltinn 19. janúar 2021 12:09
Clattenburg: Hann flautaði of snemma til hálfleiks í leik Liverpool og United Umdeildasta flautið í stórleik Liverpool og Manchester United var eflaust þegar Paul Tierney flautaði til hálfleiks þegar framherji Liverpool var að sleppa í gegnum vörn United. Enski boltinn 19. janúar 2021 11:31
Aron Einar sagði söguna af húðflúrinu svakalega í viðtali við heimasíðu FIFA Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var tekinn í stórt viðtal á heimasíðu FIFA á dögunum þar sem hann ræddi meðal annars fortíð og framtíð landsliðsins sem nú er á ákveðnum tímamótum. Fótbolti 19. janúar 2021 11:00
Carra hefur áhyggjur af Firmino: Líftími sóknarþrennu Liverpool að renna út? Framtíð sóknarmanna Liverpool var til umræðu á Sky Sports eftir bitleysi þeirra að undanförnu og Liverpool goðsögnin Jamie Carragher setti fram kenningu um að líftími þeirra væri mögulega að renna út. Enski boltinn 19. janúar 2021 10:30
Messi virtist athuga púls mótherja eftir að hann „sló“ hann niður Lionel Messi fékk sitt fyrsta rauða spjald á ferlinum á sunnudagskvöldið en eftirtektarsamir fóboltaáhugamenn tóku eftir einu hjá Argentínumanninum. Fótbolti 19. janúar 2021 09:31
Yfir 300 hundruð þúsund manns vöktuðu flug Özil til Tyrklands Það er óhætt að segja að það sé mikil spenna og mikill áhugi á komu Mesut Özil í tyrkneska boltann. Fótbolti 19. janúar 2021 08:31
Dagskráin í dag: Olís-deildar tvíhöfði og fótbolti Sex beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports í dag. Þar má finna útsendingar frá íslenska handboltanum sem og spænska og enska fótboltanum. Sport 19. janúar 2021 06:00