Matip frá út leiktíðina Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, hefur staðfest að varnarmaður liðsins Joel Matip muni ekki leika meira á leiktíðinni vegna ökklameiðsla. Enski boltinn 1. febrúar 2021 22:28
Annar varnarmaður kominn til Liverpool Liverpool hefur staðfest komu varnarmannsins Ozan Kabak til félagsins. Fregnir bárust af því snemma dags að Tyrkinn væri á leið til félagsins og nú hefur það verið staðfest. Enski boltinn 1. febrúar 2021 22:04
Samherji Hjartar sektaður: Tæplega fimmtíu manna partí og lögreglan mætti Anis Ben Slimane, miðjumaður Brøndby og samherji Hjartar Hermannssonar, hefur fengið sekt frá dönskum yfirvöldum eftir að hann var þátttakandi í partíi um helgina. Þetta staðfestir hann í samtali við Ekstra Bladet. Fótbolti 1. febrúar 2021 21:30
„Í venjulegum glugga hefðum við ekki horft til Preston“ Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að í venjulegum félagaskiptaglugga hefðu ensku meistararnir ekki horft til Preston í leit að nýjum leikmanni. Tilkynnt var í kvöld að Ben Davies, varnarmaður Preston, væri kominn til meistaranna. Enski boltinn 1. febrúar 2021 20:30
Frá Preston til Liverpool Varnarmaðurinn Ben Davies er kominn til Liverpool frá Preston North End en hann hefur skrifað undir langan samning við félagið. Enski boltinn 1. febrúar 2021 20:09
Marca: Zidane verður ekki þjálfari Real á næstu leiktíð Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, verður ekki þjálfari liðsins á næstu leiktíð. Þetta hefur spænski miðillinn Marca samkvæmt sínum heimildum. Fótbolti 1. febrúar 2021 18:31
Synir Bergkamps og Pochettinos til Watford Enska B-deildarliðið Watford hefur fengið syni Dennis Bergkamp og Mauricio Pochettino til sín. Enski boltinn 1. febrúar 2021 18:00
Molde staðfestir komu Björns Björn Bergmann Sigurðarson er genginn í raðir Molde frá Lillestrøm. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag. Fótbolti 1. febrúar 2021 17:41
Öryggisgæsla við heimili Martial aukin vegna hótana Manchester United hefur aukið öryggisgæslu við heimili Anthonys Martial vegna hótana sem honum hafa borist undanfarna daga. Enski boltinn 1. febrúar 2021 16:30
Mega hvorki spila á heimavelli né nota nýja íslenska leikmanninn sinn Ingibjörg Sigurðardóttir og félagar hjá Noregsmeisturum Vålerenga eru búnar að missa heimaleik sinn í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar vegna kórónuveirunnar. Fótbolti 1. febrúar 2021 15:45
Vill að Barcelona reki þann sem lak upplýsingum um samning Messi Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Barcelona, vill að félagið reki þann eða þá sem láku upplýsingum um samning Lionels Messi til fjölmiðla. Fótbolti 1. febrúar 2021 13:30
Hendrickx orðinn leikmaður KA Belgíski bakvörðurinn Jonathan Hendrickx, sem leikið hefur með FH og Breiðabliki hér á landi, er á leið aftur til Íslands og mun spila með KA á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 1. febrúar 2021 11:55
Steinhissa og kveðst ekki vita hvort Kjartan laug Danska knattspyrnufélagið Horsens samþykkti beiðni Kjartans Henry Finnbogasonar um riftun samnings svo að hann gæti farið heim til Íslands. Íþróttastjóri Horsens var því steinhissa þegar tilkynnt var í morgun að Kjartan yrði áfram í Danmörku enn um sinn. Fótbolti 1. febrúar 2021 11:31
Salah: Ég vil ekki fá sekt en VAR drepur leikinn Mohamed Salah gerði útslagið fyrir Liverpool liðið í gær með tveimur laglegum mörkum á móti West Ham. Eftir leikinn lét hann þó myndbandsdómgæsluna heyra það. Enski boltinn 1. febrúar 2021 11:01
Bayern sektaði leikmann fyrir að fá sér nýtt húðflúr Franskur heimsmeistari varð að fá sér nýtt húðflúr í miðjum heimsfaraldri og yfirmenn hans voru allt annað en sáttir. Fótbolti 1. febrúar 2021 10:00
Klopp útskýrði „rifrildið“ við Milner á hliðarlínunni James Milner var ekki sáttur þegar Jürgen Klopp tók hann af velli í leiknum á móti West Ham í gær. Knattspyrnustjórinn útskýrði hvað var í gangi hjá þeim félögum í viðtölum eftir leikinn. Enski boltinn 1. febrúar 2021 09:31
Kjartan ekki til Íslands strax en ætlar upp með Ólafi Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason hefur fundið sér nýtt félag í Danmörku. Hann skrifaði undir samning við Esbjerg og gildir samningurinn út yfirstandandi leiktíð. Fótbolti 1. febrúar 2021 09:18
Mættur til norsku meistaranna samkvæmt Tinder Noregsmeistarar Bodö/Glimt í fótbolta eru að landa sænska miðjumanninum Axel Lindahl en hann kemur til félagsins frá sænska félaginu Degerfors. Það kom í ljós í stefnumótaappinu Tinder að Lindahl væri mættur til Noregs. Fótbolti 1. febrúar 2021 09:00
Síðasti séns fyrir Liverpool sem er að landa varnarmanni Liverpool hefur náð samkomulagi um kaup á miðverði en þarf að klára kaupin í dag því nú er lokadagur félagaskiptagluggans sem opnast ekki aftur fyrr en í sumar. Enski boltinn 1. febrúar 2021 08:01
Aukaspyrnusnilli Messi og Griezmann tryggðu Barca sigur Barcelona er í öðru sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Atletico Madrid, eftir 2-1 sigur á Athletic Bilbao í kvöld. Fótbolti 31. janúar 2021 21:52
Verðskuldað tap Tottenham Tottenham tapaði 1-0 fyrir Brighton á útivelli í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsta og eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik en leikur Tottenham var ekki upp á marga fiska. Enski boltinn 31. janúar 2021 21:05
Öruggt hjá Liverpool í Lundúnum Mohamed Salah skoraði tvö af mörkm Liverpool er liðið vann 3-1 sigur á West Ham í Lundúnum í dag. Sigurinn skaut Liverpool upp í þriðja sæti deildarinnar. Fótbolti 31. janúar 2021 18:23
Stoðsending frá Ara og Sverrir hélt hreinu Ari Freyr Skúlason lagði upp mark Oostende er liðið tapaði 2-1 fyrir Zulte Waregem í belgísku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 31. janúar 2021 17:32
Enn skorar Suarez og tíu stiga forskot Atletico Atletico Madrid er kominn með tíu stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur á Cadiz á útivelli í dag. Fótbolti 31. janúar 2021 17:12
Ráku einn og seldu hinn Það er enginn úr Pochettino fjölskyldunni lengur á mála hjá Tottenham en þetta varð ljóst í dag. Enski boltinn 31. janúar 2021 16:43
Neymar skoraði tvö en neyðarlegt tap PSG PSG missteig sig illa gegn Lorient á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 3-2 eftir að leikar höfðu verið jafnir í hálfleik, 1-1. Fótbolti 31. janúar 2021 15:55
Öflugur útisigur Leeds Leeds vann 3-1 sigur á Leicester í stórskemmtilegum leik í öðrum leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var annar sigur Leeds í röð eftir að hafa tapað tveim í röð þar á undan en jafnframt fyrsta tap Leicester í síðustu tíu leikjum. Enski boltinn 31. janúar 2021 15:52
Fimm mörk skoruð er Valur hafði betur gegn Leikni Íslandsmeistarar Vals unnu 3-2 sigur á Leikni er liðin mættust í síðasta leik liðanna í A-riðli Reykjavíkurmótsins. Íslenski boltinn 31. janúar 2021 15:01
Neita því að hafa lekið samningi Messis Barcelona neitar því að hafa eitthvað með það að gera að hafa lekið samningi Lionel Messi en hann var á forsíðu Mundo Deportivo í dag þar sem greint var frá tölunum i samningi Messi. Fótbolti 31. janúar 2021 14:30
Fyrsti sigur Tuchel með Chelsea Chelsea vann 2-0 sigur á Burnley í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var jafn framt fyrsti sigur Chelsea undir stjórn Thomas Tuchel. Enski boltinn 31. janúar 2021 14:00