Mourinho þuldi upp þá leikmenn Liverpool sem eru heilir heilsu | Myndband José Mourinho, þjálfari Tottenham Hotspur, segir að meiðsli sé eðlilegur hlutir af fótbolta og sagði að Liverpool væri í raun aðeins án eins lykilsmanns fyrir uppgjör toppliða ensku úrvalsdeildarinnar annað kvöld. Enski boltinn 15. desember 2020 16:15
Cech fékk á sig mark eftir tvær mínútur í endurkomunni Petr Cech tók fram markmannshanskana og lék í marki varaliðs Chelsea gegn Tottenham í gær. Hann fékk á sig mark eftir aðeins tveggja mínútna leik. Enski boltinn 15. desember 2020 15:30
Segir stærstu lið Evrópu keppast um „íslenska undrabarnið“ Vefmiðillinn Goal birti í dag ítarlega grein um „íslenska undrabarnið“ Ísak Bergmann Jóhannesson. Vefmiðillinn er einkar vinsæll og er til að mynda með 1.8 milljón fylgjenda á Twitter-síðu sinni. Fótbolti 15. desember 2020 15:15
Dæmdur í leikbann fyrir guðlast inn á vellinum Leikmaður Roma má ekki taka þátt í leik ítalska liðsins á fimmtudagskvöldið kemur vegna viðbragða sín þegar hann skoraði sjálfsmark um síðustu helgi. Fótbolti 15. desember 2020 15:01
Þriðji úrslitaleikur Real á skömmum tíma Þrátt fyrir brösugt gengi í upphafi tímabils virðist vera rofa til hjá Spánarmeisturum Real Madrid. Sigur gegn Athletic Bilbao í kvöld og lærisveinar Zinedine Zidane jafna topplið deildarinnar að stigum. Fótbolti 15. desember 2020 14:30
Missir ökuréttindi í níu mánuði og sektaður um tæpar fjórtán milljónir Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, var í dag dæmdur fyrir tvö umferðalagabrot á árinu. Missir hann ökuréttindi í níu mánuði og þarf að greiða tæplega fjórtán milljónir íslenskra króna í sekt. Enski boltinn 15. desember 2020 14:02
KSÍ styrkir félögin í landinu um 70 milljónir: ÍBV og Þróttur R. fá mest samanlagt Knattspyrnusamband Íslands gaf það út í dag að sambandið myndi styrkja aðildarfélög landsins um 70 milljónir króna. Var þetta samþykkt á stjórnarfundi KSÍ þann 10. desember síðastliðinn. Fótbolti 15. desember 2020 12:31
Sammála um að Borghildur beri ekki ábyrgð Stjórn Knattspyrnusambands Íslands er einhuga og sammála um að Borghildur Sigurðardóttir, varaformaður KSÍ, og annað starfsfólk kvennalandsliðsins hafi sinnt sínu starfi í ferðinni örlagaríku til Ungverjalands af fagmennsku og þau beri ekki ábyrgð á framkomu Jóns Þórs Haukssonar, fráfarandi landsliðsþjálfara. Fótbolti 15. desember 2020 11:54
Ísland vígir endurbættan þjóðarleikvang Færeyja Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Færeyjum ytra í æfingaleik næsta sumar. Verður leikurinn fyrsti opinberi leikur á endurbættum Þórsvelli, þjóðarleikvangi Færeyja. Fótbolti 15. desember 2020 11:01
Ingibjörg hógvær þrátt fyrir að hafa unnið allt sem hægt var að vinna Á sínu fyrstu tímabili í Noregi varð Ingibjörg Sigurðardóttir Noregs- og bikarmeistari ásamt því að vera kosin leikmaður ársins. Hún segist hafa vitað liðið væri gott en árangurinn hafi vissulega komið á óvart. Fótbolti 15. desember 2020 10:30
Herramaðurinn Houllier sem hífði Liverpool aftur á toppinn Sem kunnugt er féll Gérard Houllier frá í gær, 73 ára að aldri. Hann gerði Paris Saint-Germain og Lyon að Frakklandsmeisturum og þjálfaði franska landsliðið en flestir tengja hann eflaust við Liverpool sem hann stýrði um sjö ára skeið. Enski boltinn 15. desember 2020 09:00
Stutt gaman og áhorfendur aftur bannaðir í London Vegna aukins fjölda kórónuveirusmita verður áhorfendum aftur óheimilt að mæta á íþróttaviðburði í London. Þetta á meðal annars við um heimsmeistaramótið í pílukasti. Enski boltinn 15. desember 2020 08:31
Lars þegar búinn að hafna einu landsliðsþjálfarastarfi Lars Lagerbäck hafnaði tilboði um að taka við landsliði Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Sport 15. desember 2020 08:00
Arteta fær stuðningsyfirlýsingu: „Er að gera frábæra hluti og ég sé bjarta og fallega framtíð“ Þrátt fyrir verstu byrjun Arsenal í 46 ár segir Edu, tæknilegur stjórnandi félagsins, að Mikel Arteta sé að gera frábæra hluti og eigi sér bjarta og fallega framtíð sem knattspyrnustjóri. Enski boltinn 15. desember 2020 07:30
Khedira hefur verið í sambandi við stjóra Gylfa Sami Khedira, fyrrum heimsmeistari og nú leikmaður Juventus, segir að hann hafi átt samtöl við Carlo Ancelotti, stjóra Gylfa Þórs Sigurðssonar og félaga í Everton. Enski boltinn 14. desember 2020 23:01
Biðst afsökunar á að hafa meitt Neymar Brasilíska stórstjarnan Neymar meiddist illa í leik Lyon og PSG um helgina en Brassinn var borinn af velli á 97. mínútu leiksins. Fótbolti 14. desember 2020 22:16
Félag Jóns Daða reynir að banna Sky Sports að sýna frá leik Millwall, lið Jóns Daða Böðvarssonar, vill banna Sky Sports að sýna frá leik liðsins gegn Watford þann 29. desember er liðin mætust í ensku B-deildinni. Enski boltinn 14. desember 2020 21:30
Murphy um Houllier: „Hann tók af sér verðlaunapeninginn og rétti mér hann“ Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool, sagði sögur af Gérard Houllier á útvarpsstöðinni talkSport í dag en Houllier, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, er látinn, 73 ára að aldri. Enski boltinn 14. desember 2020 21:00
Viktor lokaði markinu hjá toppliðinu og sex mörk Teits dugðu ekki til í óvæntu tapi Nokkrir íslenskir landsliðsmenn voru í eldlínunni bæði í fótboltanum og handboltanum á Norðurlöndunum. Atkvæðamestir þeirra voru Teitur Örn Einarsson og Viktor Gísli Hallgrímsson. Sport 14. desember 2020 19:59
Geggjað að draumafélagið sé að fylgjast með Ísak Bergmann Jóhannesson segist lítið vera að velta sér upp úr framtíð sinni. Hann segir þó að það sé ánægjulegt að vita að draumafélag hans, Manchester United, sé að fylgjast með gangi mála. Fótbolti 14. desember 2020 17:30
Meiðsli Neymar ekki jafn alvarleg og fyrst var talið Brasilíumaðurinn Neymar meiddist í leik með Paris Saint-Germain um helgina og var óttast að hann yrði lengi frá. Eftir frekari rannsóknir er talið að hann muni snúa aftur í næsta mánuði. Fótbolti 14. desember 2020 17:01
Skiptir Magni um starf hjá AIK? Magni Fannberg gæti orðið næsti aðstoðarþjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins AIK. Hann starfar nú sem þróunarstjóri hjá félaginu. Fótbolti 14. desember 2020 15:00
Guðný fær nýjan þjálfara eftir aðeins einn leik Napoli, lið Guðnýjar Árnadóttur í ítölsku úrvalsdeildinni, hefur ákveðið að skipta um þjálfara. Ákvörðunin kemur í kjölfar fyrsta leiks Guðnýjar með liðinu. Fótbolti 14. desember 2020 14:01
„Ég var ekki tilbúinn að kveðja“ Knattpsyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson minnist móður sinnar í færslu á Instagram. Móðir hans Ásta Marta Róbertsdóttir lést 27. nóvember eftir margra ára baráttu við alkahólisma og fíkn. Lífið 14. desember 2020 13:59
Hægri bakvörður Stevie G að skora meira en Ronaldo og Messi Liverpool goðsögnin Steven Gerrard er að gera frábæra hluti með Rangers liðið í Skotlandi og það er einkum frammistaða eins leikmanns hans sem er að vekja mesta athygli. Fótbolti 14. desember 2020 13:30
Öll topplið stærstu deilda Evrópu í dag spila í Evrópudeildinni 2020 er búið að vera mjög sérstakt ár og það má kannski sjá dæmi um það á liðunum sem nú skipa efstu sætin í stærstu fótboltadeildum Evrópu. Fótbolti 14. desember 2020 13:00
Man Utd mætir Sociedad, Arsenal mætir Benfica og Tottenham fer til Austurríkis Dregið var í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar í dag. Bæði Manchester United og Arsenal fá erfiða mótherja á meðan José Mourinho getur eflaust leyft sér að hvíla sína lykilmenn og samt átt góða möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit. Fótbolti 14. desember 2020 12:45
Óttast að Jota verði frá þar til í febrúar og Matip meiddist gegn Fulham Meiðslavandræði Liverpool halda áfram að aukast. Diego Jota gæti verið frá fram í febrúar og Joël Matip fór meiddur af velli í jafnteflinu við Fulham í gær. Enski boltinn 14. desember 2020 12:31
Liverpool mætir Leipzig og stórslagur Barcelona og PSG í sextán liða úrslitunum Dregið var í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í dag. Englandsmeistarar Liverpool mæta RB Leipzig en stærsta viðureign sextán liða úrslitanna er slagur Barcelona og Paris Saint-Germain. Fótbolti 14. desember 2020 11:25
Klopp með undarlega samlíkingu eftir leikinn í gær Jürgen Klopp tókst ekki að tala sína menn til fyrir leik á móti Fulham í gær og þurfti að öskra mikið á steinsofandi leikmenn sína fram eftir leik. Enski boltinn 14. desember 2020 11:01