Skrifa söguna í Tókýó Brasilísku fótboltagoðsagnirnar Marta og Formiga skrifuðu söguna í opnunarleik Ólympíuleikanna í Japan sem Brasilía vann 5-0 gegn Kína í morgun. Fótbolti 21. júlí 2021 22:30
KR áfram á toppnum - loks vann Augnablik 11. umferð fór fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Toppliðin þrjú í deildinni unnu öll og þá vann botnlið Augnabliks sinn fyrsta sigur síðan í fyrstu umferð. Íslenski boltinn 21. júlí 2021 21:46
Átján ára strákur í markinu fram yfir Ögmund Ögmundur Kristinsson sat á varamannabekk Olympiakos er liðið vann 1-0 sigur á FK Neftchi frá Baku í Aserbaídsjan í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Átján ára gutti var á milli stanganna hjá Olympiakos á kostnað Ögmundar. Fótbolti 21. júlí 2021 21:00
Hannes býst við hörkuleik: Þeir slátruðu deildinni í fyrra Hannes Þór Halldórsson, markvörður Vals, hlakkar til þess að mæta sínum gömlu félögum í Bodö/Glimt frá Noregi en liðin eigast við í Sambandsdeild Evrópu að Hlíðarenda annað kvöld. Fótbolti 21. júlí 2021 19:31
Öruggt hjá Ara og félögum - lið Emils jafnaði á áttundu mínútu uppbótartíma Íslendingarnir í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta komu mismikið við sögu er fjórir leikir voru á dagskrá í kvöld. Ari Leifsson og félagar hans í Strömgodset unnu góðan sigur. Fótbolti 21. júlí 2021 19:01
Kominn til Everton eftir stutt stopp í Þýskalandi Demarai Gray er í þann mund að semja við enska úrvalsdeildarfélagið Everton eftir einkar stutt stopp hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Talið er að Brasilíumaðurinn Bernard sé á förum frá félaginu. Enski boltinn 21. júlí 2021 17:45
Sjáðu markaveislurnar á Hlíðarenda og í Kópavoginum og hvernig Stólarnir komust upp úr fallsæti Hvorki fleiri né færri en 24 mörk voru skoruð í leikjum gærkvöldsins í Pepsi Max-deild kvenna. Toppliðin unnu bæði fimm marka sigra og Tindastóll komst upp úr fallsæti. Íslenski boltinn 21. júlí 2021 15:46
Skoraði þrennu í sjö marka tapi Barbra Banda mun seint gleyma leik Sambíu og Hollands á Ólympíuleikunum í knattspyrnu sem fram fór í dag. Hún skoraði öll þrjú mörk Sambíu í 3-10 tapi. Þá skoraði Christine Sinclair sitt 187. landsliðsmark í 300. leiknum sínum fyrir Kanada. Fótbolti 21. júlí 2021 14:00
Fyrrverandi leikmaður Man. Utd. kýldi öryggisvörð eftir leik Slagsmál brutust út eftir leik Boca Juniors og Athlético Mineirao í Suður-Ameríkubikarnum. Marcos Rojo, fyrrverandi leikmaður Manchester United, kýldi öryggisvörð í látunum. Fótbolti 21. júlí 2021 12:31
Lof og last 13. umferðar: Líflína ÍA, varamenn Víkinga, færasköpun FH og sofandaháttur HK Þrettándu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk á mánudag. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Íslenski boltinn 21. júlí 2021 12:00
Amanda með mark mánaðarins í Noregi Amanda Andradóttir, leikmaður Noregsmeistara Vålerenga í knattspyrnu, skoraði flottasta mark norsku úrvalsdeildarinnar í júní að mati áhorfenda deildarinnar. Fótbolti 21. júlí 2021 11:31
Gylfi sagður neita sök Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton í ensku deildinni og landsliðsmaður, er sagður harðneita þeim ásökunum sem bornar eru á hann. Hann er grunaður um kynferðisbrot gegn barni og var handtekinn á föstudaginn í Manchester í Englandi. Innlent 21. júlí 2021 10:50
Svíar stöðvuðu rúmlega tveggja ára taplausa hrinu bandarísku heimsmeistaranna Svíþjóð gerði sér lítið fyrir og skellti heimsmeisturum Bandaríkjanna, 3-0, í G-riðli fótboltakeppni Ólympíuleikanna sem hófst í dag. Fótbolti 21. júlí 2021 10:30
Sjö marka sveifla milli leikja Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu stórsigur á ÍBV er liðin mættust á Kópavogsvelli í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur 7-2 sem þýðir að um sjö marka sveiflu er að ræða frá fyrri leik liðanna sem ÍBV vann 4-2 í Vestmannaeyjum. Íslenski boltinn 21. júlí 2021 09:31
Delph ekki með Everton í æfingaferð og ranglega sagður hafa verið handtekinn Enska knattspyrnufélagið Everton hefur staðfest að Fabien Delph muni ekki fara með liðinu til Bandaríkjanna í æfingaferð þar sem hann er í sóttkví. Einnig var fjöldi skilaboða á samfélagsmiðlum sem hélt því ranglega fram að leikmaðurinn hefði verið handtekinn. Enski boltinn 21. júlí 2021 08:35
Pepsi Max Stúkan: Mestu framfarir, bestu stuðningsmenn, slæmt ástand Greifavallarins margt fleira Það var af nógu að taka í síðasta þætti af Pepsi Max stúkunni. Kjartan Atli og Sérfræðingar þáttarins fóru í uppbótartíma þar sem meðal annars var rætt um hvaða lið hefur tekið mestum framförum, Greifavöllurinn á Akureyri og margt fleira. Íslenski boltinn 21. júlí 2021 07:00
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þróttur Reykjavík 6-1 | Stórsigur á Hlíðarenda Valur og Þróttur R. mættust í Pepsi Max deild kvenna á Origo-vellinum við Hlíðarenda í kvöld. Topplið Vals var of stór biti fyrir Þróttara og niðurstaðan 6-1 sigur heimakvenna. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 23:21
Andros Townsend og Asmir Begovic til Everton Andros Townsend og Asmir Begovic eru gengnir til liðs við Everton. Townsend, sem er þrítugur kantmaður, skrifar undir tveggja ára samning, en Begovic, sem er 34 ára markvörður, skrifar undir eins árs samning, með möguleika á framlengingu um eitt ár. Enski boltinn 20. júlí 2021 23:01
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 1-2| Arna Dís tryggði Stjörnunni stigin þrjú Stjarnan eru komnar aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað tveimur leikjum í röð. Þær komust yfir snemma leiks með marki frá Ölmu Mathiesen. Aerial Chavarin jafnaði síðan leikinn undir lok fyrri hálfleiks með skalla.Gegn gangi leiksins gerði Arna Dís Arnþórsdóttir sigurmark leiksins og tryggði Stjörnunni stigin þrjú. Umfjöllun og viðtöl væntanleg Íslenski boltinn 20. júlí 2021 22:45
Pétur Pétursson: Alltaf gott að geta gert eitthvað rétt með skiptingunum Valur tóku á móti Þrótti R. í Pepsi-Max deild kvenna á Origo-vellinum í kvöld. Leiknum lauk með 6-1 sigri Vals og Pétur Pétursson, þjálfari liðsins, var að vonum sáttur. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 22:31
Veiran setur strik í reikninginn á undirbúningstímabili Arsenal Enska knattspyrnufélagði Arsenal neyðist til að hætta við æfingaferð sína til Bandaríkjanna þar sem að kórónuveirusmit hefur komið upp í hópnum. Enski boltinn 20. júlí 2021 22:30
Kristján: Miðað við gang leiksins hefði Keflavík átt sigurinn skilið Stjarnan fóru með sigur af býtum 1-2 eftir að hafa skapaða sér engin færi mest allan leikinn. Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var kátur með sigurinn í leiks lok Sport 20. júlí 2021 22:25
Jafntefli í fjörugum leik í Skotlandi Mikael Anderson og félagar hans í Midtjylland frá Danmörku gerðu góða ferð til Glasgow þar sem að Celtic tók á móti þeim i fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Lokatölur 1-1 í leik þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft. Fótbolti 20. júlí 2021 21:06
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þór/KA 1-1 | Selfyssingar björguðu stigi Selfoss og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi Max deild kvenna í kvöld þar sem Selfyssingar jöfnuðu á lokamínútunum. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 20:51
Tindastóll upp úr fallsæti eftir mikilvægan sigur Tindastóll tók á móti Fylki í fallbaráttuslag í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Liðin voru tveim neðstu sætum deildarinnar fyrir leikinn, en 2-1 sigur heimakvenna lyftir þeim upp í áttunda sæti. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 20:36
„Var orðin svolítið gráðug“ Heiðdís Lillýjardóttir skoraði tvö mörk þegar Breiðablik sigraði ÍBV, 7-2, í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 20:26
Arna Sif: Við erum svekktar Arnar Sif, fyrirliði Þór/KA, var svekkt eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Selfossi í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 20:23
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍBV 7-2 | Markaflóð á Kópavogsvelli Breiðablik vann öruggan sigur á ÍBV, 7-2, þegar liðin áttust við á Kópavogsvelli í 11. umferð Pepsi Max-deildar kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 20. júlí 2021 20:17
Segja að Valur spili varnarsinnað 4-4-2 leikkerfi Noregsmeistarar Bodø/Glimt mæta Íslandsmeisturum Vals í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu á fimmtudaginn kemur. Fótbolti 20. júlí 2021 17:00
Íslendingalið Brentford sækir leikmann frá Íslendingaliði Midtjylland Brentford, nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, hefur fjárfest í nígeríska miðjumanninum Frank Onyeka, miðjumanni danska félagsins Midtjylland. Segja má að félögin séu venslafélög. Enski boltinn 20. júlí 2021 15:45