Þróttur sækir sóknarmann úr Kópavogi Danielle Marcano mun leika með Þrótti Reykjavík í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Hún lék með HK í Lengjudeild kvenna síðasta sumar. Íslenski boltinn 13. desember 2021 17:46
Samuel Eto'o kom ríkjandi forseta úr embætti og er tekinn sjálfur við Kamerúnska knattspyrnugoðsögnin Samuel Eto'o er kominn í valdastöðu í heimalandinu. Fótbolti 13. desember 2021 16:30
Manchester United varð að loka æfingasvæðinu Kórónuveiran ætlar að vera erfið viðureignar fyrir Manchester United og nú hefur verið tekin sú ákvörðun að loka æfingasvæði félagsins í sólarhring. Enski boltinn 13. desember 2021 15:26
Liverpool mætir Inter og Man. Utd. Atlético Madrid Dregið var aftur í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í dag. Liverpool dróst gegn Inter, Manchester United gegn Atlético Madrid og þá eigast Real Madrid og Paris Saint-Germain við. Fótbolti 13. desember 2021 14:20
Agüero neyðist til að hætta Argentínski knattspyrnumaðurinn Sergio Agüero, leikmaður Barcelona, mun á miðvikudag greina formlega frá því að hann sé hættur í fótbolta. Fótbolti 13. desember 2021 14:01
Íslendingaslagur í umspili í Sambandsdeildinni Íslendingaliðin Midtjylland og PAOK mætast í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 13. desember 2021 13:31
ÍBV landaði bolvíska markahróknum Andri Rúnar Bjarnason, sem kvaddi Ísland sem einn þeirra sem deila markametinu í efstu deild í fótbolta, verður með í deildinni á nýjan leik næsta sumar, sem leikmaður ÍBV. Fótbolti 13. desember 2021 13:31
Dregið aftur í Meistaradeildinni Dregið verður aftur í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Búið er að ógilda dráttinn sem fór fram í morgun. Fótbolti 13. desember 2021 13:00
Maradona slagur í Evrópudeildinni Verkefnið verður ekki mikið léttara fyrir Börsunga þótt að þeir séu að spila í Evrópudeildinni en ekki í Meistaradeildinni eftir áramót. Fótbolti 13. desember 2021 12:31
Mögulega dregið aftur eftir klúður varðandi Man. Utd Mistök virtust eiga sér stað í beinni útsendingu frá því þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. UEFA hefur ekki tjáð sig um málið en mögulegt er að dregið verði að nýju. Fótbolti 13. desember 2021 12:18
Uppfært: Drátturinn sem úrskurðaður var ógildur Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, tveir af bestu knattspyrnumönnum sögunnar, mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með liðum Manchester United og PSG. Dregið var í beinni útsendingu á Vísi dag. Fótbolti 13. desember 2021 11:23
Norskur rappari reiður eftir að Alfons og félagar fögnuðu titlinum Alfons Sampsted, félagar hans í Bodö/Glimt og stuðningsmenn liðsins fögnuðu í gær meistaratitli annað árið í röð í norska fótboltanum. Ekki voru allir hrifnir af fagnaðarlátunum. Fótbolti 13. desember 2021 10:30
Þjálfari Gumma Tóta lofaði að fækka fötum og stóð við það Guðmundur Þórarinsson og félagar í New York City tryggðu sér bandaríska meistaratitilinn um helgina eftir sigur á Portland Timbers í vítakeppni í úrslitaleiknum. Fótbolti 13. desember 2021 09:00
Kimmich enn að jafna sig og sér eftir því að hafa ekki fengið bólusetningu Þýski landsliðsmaðurinn Joshua Kimmich hefur ekki getað æft fótbolta af fullum krafti vegna minni háttar lungnavandamála og viðurkennir að hann sjái eftir því að hafa ekki fengið bólusetningu gegn Covid-19. Fótbolti 13. desember 2021 08:31
Ætlaði að kynna Guðjón sem nýjan þjálfara en fékk símtal sama dag: „Gaui er að fara upp í flugvél“ Jónas Þórhallsson, fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur til margra ára, boðaði til blaðamannafundar til að kynna Guðjón Þórðarson sem nýjan þjálfara Grindavíkur árið 2004 en frétti svo af því sama morgun að Guðjón væri í flugi á leið til Englands. Fótbolti 13. desember 2021 08:00
Mbappé sá um Monaco Kylian Mbappé skoraði bæði mörk Paris Saint-Germain er liðið vann 2-0 heimasigur gegn Monaco í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 12. desember 2021 22:46
Inter á toppinn en Napoli missteig sig Ítalíumeistarar Inter lyftu sér á topp Serie A með öruggum 4-0 sigri gegn Cagliari í kvöld, en Napoli mistókst að koma sér í annað sæti deildarinnar er liðið tapaði 0-1 gegn Empoli. Fótbolti 12. desember 2021 22:21
Real Madrid jók forskot sitt á toppnum með sigri í borgarslagnum Real Madrid er nú með átta stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 heimasigur gegn nágrönnum sínum í Atletico Madrid. Fótbolti 12. desember 2021 21:58
Íslendingaliðin á leið í undanúrslit þrátt fyrir töp Íslendingaliðin OB og Midtjylland eru bæði á leið í undanúrslit dönsku bikarkeppninnar í fótbolta, þrátt fyrir að hafa bæði tapað leikjum sínum 2-1 í kvöld. Fótbolti 12. desember 2021 20:29
Crystal Palace snéri aftur á sigurbraut Eftir fjóra leiki í röð án sigurs vann Crystal Palace langþráðan 3-1 sigur er liðið tók á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Enski boltinn 12. desember 2021 18:26
Alfons norskur meistari með Bodø/Glimt Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt tryggðu sér í dag norska deildarmeistaratitilinn með öruggum 0-3 útisigri geg botnliði Mjøndalen í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 12. desember 2021 17:54
Albert kom inn af bekknum er AZ Alkmaar lagði toppliðið Albert Guðmundsson og félagar hans í AZ Alkmaar unnu sterkan 1-2 útisigur er liðið heimsótti Ajax, topplið hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 12. desember 2021 17:46
Vandræði Barcelona halda áfram Spænska stórveldi Barcelona þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið heimsótti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 12. desember 2021 17:08
Kórónuveirusmit í leikmannahóp Man United Æfingu Manchester United í dag var frestað sökum kórónuveirusmits í leikmannahóp liðsins. Enski boltinn 12. desember 2021 17:01
Jóhann Berg lék allan leikin í markalausu jafntefli | Leicester valtaði yfir Newcastle Burnley gerði markalaust jafntefli við West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þá vann Leicester City öruggan 4-0 stórsigur á nýríku Newcastle United. Enski boltinn 12. desember 2021 16:15
Amanda skoraði mark ársins | Sögð vera á leið í sterkari deild Landsliðskonan Amanda Andradóttir átti mark ársins í norsku úrvalsdeildinni. Hún varð bikarmeistari með Vålerenga nýverið en er nú sögð vera á leið í sterkari deild. Fótbolti 12. desember 2021 14:31
Gæti orðið einn launahæsti varnarmaður heims fari hann á frjálsri sölu Antonio Rüdiger, varnarmaður Chelsea og þýska landsliðsins, verður samningslaus í sumar. Fari svo að hann fari á frjálsri sölu frá félaginu gæti hann orðið einn af launahærri varnarmönnum heims. Fótbolti 12. desember 2021 14:00
Lindelöf átti í erfiðleikum með að anda Victor Lindelöf þurfti að fara af velli þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leik Manchester United og Norwich City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann átti erfitt með að ná andanum og var því skipt út af. Enski boltinn 12. desember 2021 13:01
Alexia Putellas: Óumdeilanlega best í heimi Hin 27 ára gamla Alexia Putellas er besta knattspyrnukona í heimi árið 2021, það er óumdeilanlegt. Hún hlaut Gullknöttinn, Balldon d‘Or, nýverið ásamt því að vera valin best að mati Guardian en hvað er það sem gerir hana jafn góða og raun ber vitni? Fótbolti 12. desember 2021 12:30
Aubameyang aftur í agabanni Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, virðist eiga frekar erfitt með að halda sig réttu megin við þau lög og reglur sem Mikel Arteta hefur sett hjá félaginu. Fótbolti 12. desember 2021 11:16