Fótbolti

Maradona slagur í Evrópudeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Busquets og félagar í Barcelona lentu á móti Napoli.
Sergio Busquets og félagar í Barcelona lentu á móti Napoli. Getty/Xavier Bonilla

Verkefnið verður ekki mikið léttara fyrir Börsunga þótt að þeir séu að spila í Evrópudeildinni en ekki í Meistaradeildinni eftir áramót.

Dregið var í sextán liða úrslitin í dag og spænska stórliðið lenti á móti öðru stórliði frá Ítalíu.

Barcelona dróst nefnilega á móti ítalska félaginu Napoli þegar dregið var í sextán liða úrslitin.

Napoli er eins og er í fjórða sæti ítölsku deildarinnar.

Þetta eru einmitt félögin tvö sem gerðu bæði Diego Maradona að dýrasta knattspyrnumanni heims á sínum tíma.

Evrópudeildin gæti verið sérstaklega mikilvæg fyrir Barcelona því lítið gengur í deildinni heima fyrir þar sem Börsungar sitja nú í áttunda sæti.

Sigurvegari Evrópudeildarinnar fær eins og kunnugt er sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Dortmund, sem ætlaði sér líka miklu meira en þriðja sætið í sínum Meistaradeildarriðli, lenti á móti skoska liðinu Rangers.

  • Drátturinn í sextán liða úrslit Evrópudeildarinnar:
  • Barcelona - Napoli
  • Atalanta - Olympiakos
  • Sevilla - Dinamo Zagreb
  • RB Leipzig - Real Sociedad
  • Porto - Lazio
  • Sheriff - Braga
  • Dortmund - Rangers
  • Zenit - Real Betis



Fleiri fréttir

Sjá meira


×