Vilja taka hjartað úr Maradona með á HM Diego Maradona er sannkallaður guð í augum margra Argentínumanna og þó að hann sé fallinn frá vilja sumir þeirra að hluti af honum fylgi argentínska landsliðinu á HM í Katar í lok árs. Fótbolti 25. mars 2022 07:30
Chelsea má selja miða en deildin útdeilir ágóðanum Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea má á nýjan leik selja miða á útileiki félagsins, bikarleiki og leiki kvennaliðsins. Enski boltinn 25. mars 2022 07:01
Besta deild kvenna verður í Football Manager Football Manager, fótboltatölvuleikurinn vinsæli, mun bjóða spilurum að setja sig í spor þjálfara í Bestu deild kvenna í næstu útgáfu sinni. Íslenski boltinn 24. mars 2022 23:31
Svíar á leið í úrslit umspilsins eftir sigur í framlengingu Svíar eru á leið í hreinan úrslitaleik um sæti á HM í Katar eftir 1-0 sigur gegn Tékkum í framlengdum leik í kvöld. Fótbolti 24. mars 2022 22:21
Bale skaut Walesverjum í úrslit umspilsins Gareth Bale skoraði bæði mörk Wales er liðið vann 2-1 sigur gegn Austurríki og tryggði sér um leið hreinan úrslitaleik um sæti á HM í Katar. Fótbolti 24. mars 2022 22:00
Portúgalar sluppu með skrekkinn og eru komnir skrefi nær HM Portúgal er nú aðeins einum sigri frá sæti á HM í Katar eftir nauman 2-1 sigur gegn Tyrklandi í undanúrslitum umspilsins í kvöld. Fótbolti 24. mars 2022 21:48
Norður-Makedónía gerði út um HM draum Evrópumeistaranna Norður-Makedónía gerði sér lítið fyrir og vann óvæntan 1-0 sigur gegn Ítölum í undanúrslitum umspilsins um laust sæti á HM í Katar í kvöld. Evrópumeistararnir eru því úr leik og verða ekki með á HM í desember. Fótbolti 24. mars 2022 21:44
Defoe hættur eftir rúmlega tveggja áratuga feril Enski knattspyrnumaðurinn Jermain Defoe hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 22 ára feril. Enski boltinn 24. mars 2022 18:00
Skaut tveimur liðum á HM í blálokin Fjórar Asíuþjóðir hafa nú tryggt sér sæti á HM karla í fótbolta sem fram fer í Katar í lok árs. Ástralía neyðist hins vegar til að fara í umspil. Fótbolti 24. mars 2022 17:00
Özil settur út af sakramentinu hjá Fenerbahce Mesut Özil hefur verið tekinn út úr leikmannahópi Fenerbahce um óákveðinn tíma. Engin ástæða hefur verið gefin fyrir ákvörðuninni. Fótbolti 24. mars 2022 16:31
Rúnar Alex kvaddi Arsenal með landsliðið í huga en gæti snúið aftur Rúnar Alex Rúnarsson segir erfitt að svara því hvort að hann sækist eftir því að verða hluti af markmannateymi Arsenal á næstu leiktíð eða kjósi að vera hjá öðru félagi þar sem líklegra sé að hann spili fleiri leiki. Enski boltinn 24. mars 2022 16:01
Jón Dagur hrekur orðróminn og reiknar með að yfirgefa Danmörku „Eins og staðan er í dag held ég að ég eigi um það bil tíu leiki eftir fyrir AGF og svo muni ég fara eitthvert annað,“ segir Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður í fótbolta, sem er á förum frá Danmörku í sumar og gæti mögulega verið á leið til Englands. Fótbolti 24. mars 2022 15:01
EM-umsókn Rússa veldur hneykslan: Svívirðilegt og alveg óskiljanlegt Rússneska knattspyrnusambandið skilaði afar óvænt inn umsókn á síðustu stundu um að fá að halda Evrópumót karla í fótbolta árið 2028 eða 2032. Forsætisráðherra Bretlands segist ekki trúa því að Rússar komi til greina sem gestgjafar og ensku götublöðin segja ákvörðun Rússa svívirðilega. Fótbolti 24. mars 2022 14:29
Eriksen veit ástæðuna Christian Eriksen er mættur aftur í danska landsliðið, níu mánuðum eftir að hafa fengið hjartastopp og hnigið til jarðar í leik með liðinu gegn Finnlandi á EM í fótbolta. Fótbolti 24. mars 2022 14:01
KA spilar fyrstu heimaleikina á Dalvík KA spilar væntanlega fyrstu heimaleiki sína í Bestu deild karla á Dalvík. Enn á eftir að leggja gervigras á nýjan framtíðarvöll KA. Íslenski boltinn 24. mars 2022 13:30
Engar áhyggjur af landsliðsþjálfaranum þegar hann er með á æfingum Arnar Þór Viðarsson var með á æfingu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í vikunni en liðið hefur verið í æfingabúðum á Spáni. Fótbolti 24. mars 2022 13:00
Snýr aftur í norska landsliðið eftir fimm ára útlegð: „Heia Norge“ Eftir fimm ára útlegð er Ada Hegerberg, samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Lyon, komin aftur í norska landsliðið. Fótbolti 24. mars 2022 12:00
Juventus tilbúið að samþykkja launakröfur Salahs Juventus ætlar að gera það sem Liverpool virðist ekki vera tilbúið að gera, að samþykkja launakröfur Mohameds Salah. Fótbolti 24. mars 2022 11:31
Horfði upp á félaga sinn í íslenska landsliðinu brotna: „Ömurlegt“ Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson er ekki með íslenska landsliðinu í æfingabúðunum á Spáni þrátt fyrir að hafa verið valinn í hópinn. Ástæðan eru meiðslin sem hann hlaut í síðasta leik Midtjylland fyrir landsliðsgluggann. Fótbolti 24. mars 2022 11:00
Rapinoe: Hættulegt fyrir fótboltakarla að koma út úr skápnum Bandaríska knattspyrnukonan Megan Rapinoe skilur vel af hverju svo fáir samkynhneigðir fótboltakarlar hafi þorað út úr skápnum ólíkt því sem er hjá knattspyrnukonunum. Fótbolti 24. mars 2022 10:31
Langur meiðslalisti hjá KA: „Staðan er ekki frábær“ Þegar þrjár vikur eru í fyrsta leik KA í Bestu deild karla er staðan á leikmannahópi liðsins ekkert sérstök og meiðslalistinn þar á bæ nokkuð langur. Íslenski boltinn 24. mars 2022 09:31
Umspil fyrir HM í Katar hefst í dag: Ítalía og Portúgal gætu mæst í úrslitaleik Í kvöld hefst umspil undankeppni UEFA um sæti á HM í knattspyrnu sem fram fer í Katar síðar á þessu ári. Evrópumeistarar Ítalíu og stjörnum prýtt lið Portúgals hefja leik en þau gætu mæst í úrslitaleik um sæti á mótinu. Fótbolti 24. mars 2022 07:00
Sveindís Jane kom inn af bekknum í jafntefli Wolfsburg og Arsenal: Sjáðu mörkin og fleira til Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af varamannabekk Wolfsburg er liðið var hársbreidd frá því að leggja Arsenal í Lundúnum í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, lokatölur 1-1. Fótbolti 23. mars 2022 22:15
Leikur Lyon hrundi eftir rautt spjald Carpenter: Sjáðu mörkin og helstu atvik Juventus vann 2-1 sigur á Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Lyon var með pálmann í höndunum en Ellie Carpenter fékk rautt spjald í liði Lyon og heimakonur nýttu liðsmuninn til hins ítrasta. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekk Lyon í kvöld. Fótbolti 23. mars 2022 19:45
Sogndal horfir áfram í Hafnafjörðinn: Vilja Jónatan Inga Norska B-deildarfélagið Sogndal hefur mikinn áhuga á leikmönnum FH þessa dagana. Ekki er langt síðan bakvörðurinn Hörður Ingi Gunnarsson gekk í raðir félagsins og nú gæti vængmaðurinn Jónatan Ingi Jónsson farið sömu leið. Íslenski boltinn 23. mars 2022 18:01
Aron Elís: Ég var bara heiðarlegur við Adda og Jóa Aron Elís Þrándarson í íslenska landsliðshópnum sem mætir Finnlandi og Spáni í vináttulandsleikjum á næstu dögum. Aron Elís er að koma til baka eftir meiðsli og hefur ekki spilað mikið að undanförnu. Fótbolti 23. mars 2022 16:30
Börsungar unnu þrjá El Clásico á aðeins tíu dögum Síðustu dagar hafa verið góðir hjá Barcelona, bæði karla- og kvennaliðum félagsins í fótbolta. Þau unnu meðal annars þrjá sigra á erkifjendunum í Real Madrid. Fótbolti 23. mars 2022 16:01
Hafa áhyggjur af Reykjavíkurmeisturum Þróttar: „Edda er að kála þeim í ræktinni“ Reykjavíkurmeistarar Þróttar höfðu náð sínum besta árangri í þremur keppnum í röð, á Íslandsmótinu 2021, í bikarkeppninni 2021 og í Reykjavíkurmótinu 2022, þegar kom að Lengjubikarnum. Þar sýndi liðið aftur á móti veikleikamerki. Íslenski boltinn 23. mars 2022 15:30
Stefán Teitur hrósaði hugarfari frænda síns: Hefur ekki einu sinni vælt í mér Oliver Stefánsson, leikmaður Norrköping, verður á láni hjá ÍA í Bestu deildinni í sumar en frændi hans Stefán Teitur Þórðarson hrósaði honum á blaðamannafundi hjá íslenska karlalandsliðinu. Fótbolti 23. mars 2022 14:30
Glímt við þunglyndi frá því að Mourinho var stjórinn Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, hefur glímt við þunglyndi frá því að hann lék undir stjórn José Mourinho fyrir nokkrum árum og segir sterkefnaða fótboltamenn eiga við erfiðleika að stríða eins og aðrir. Fótbolti 23. mars 2022 14:01