Shaun Wright-Phillips falur fyrir 10 milljónir Chelsea hefur gefið það út að kantmaðurinn Shaun Wright-Phillips sé falur fyrir 10 milljónir punda. Leikmaðurinn kom til Chelsea frá Manchester City í júlí 2005 fyrir 21 milljón punda. Enski boltinn 16. júní 2007 15:35
Eggert vonsvikinn vegna Bent Eggert Magnússon, stórnarformaður West Ham, segir við Sun að hann sé leiður yfir því að Darren Bent hafi ákveðið að ganga ekki til liðs við West Ham. Charlton hafði samþykkt 17 milljón punda boð í leikmanninn en Bent vildi ekki færa sig um set. Enski boltinn 16. júní 2007 14:36
Eiður opinn fyrir endurkomu í enska boltann Eiður Smári Guðjohnsen útilokar ekki að hann snúi aftur til Englands. Hann hefur verið orðaður við mörg lið í ensku úrvalsdeildinni. Newcastle, Aston Villa, Sunderland, Middlesbrough, Pourtsmouth, West Ham og Manchester United eru öll sögð hafa áhuga á kappanum. Enski boltinn 16. júní 2007 14:25
Eiður vill vera áfram hjá Barcelona Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára, segir að Manchester United hafi ekki haft samband við þá feðga vegna mögulegrar sölu á Eiði til Manchester United og segir að Eiður vilji helst fá tækifæri til að sanna sig betur hjá Barcelona. Enski boltinn 15. júní 2007 17:25
Slúðrið í enska í dag Eiður á leiðinni til Manchester United, Jerzey Dudek til Real Madrid og Darren Bent til Liverpool. Þetta er sumt af því sem ensku blöðin segja í dag að muni gerast á næstunni. BBC tekur saman slúðrið hjá blöðunum og það má finna hér. Fótbolti 15. júní 2007 09:56
Darren Bent neitaði West Ham Enski landsliðsmaðurinn Darren Bent neitaði í kvöld að ganga í raðir West Ham eftir að félagið hafði samþykkt að greiða fyrir hann uppsett verð. Charlton samþykkti kauptilboðið en Bent neitaði að semja við West Ham eftir að hafa fundað með forráðamönnum félagsins. Enski boltinn 14. júní 2007 21:18
Slúðrið á Englandi í dag Breska slúðurpressan hefur oft nokkuð fyrir sér í glæfralegri umfjöllun sinni um leikmannamarkaðinn í enska boltanum. Nokkrar af slúðursögum blaðanna í morgun hafa þannig orðið að veruleika nú síðdegis, en þar með er ekki öll sagan sögð. Enski boltinn 14. júní 2007 16:56
Eggert: Spennandi tíðindi í vændum Eggert Magnússon stjórnarformaður segir að West Ham sé við það að tilkynna spennandi tíðindi í leikmannamálum sínum. Bresku blöðin hafa flest öll skrifað um það í dag að félagið sé við það að landa enska landsliðsframherjanum Darren Bent frá Charlton fyrir um 17 milljónir punda. Sagt er að miðjumaðurinn Hayden Mullins fari til Charlton sem partur af þeim viðskiptum. Enski boltinn 14. júní 2007 16:37
Joey Barton loksins farinn til Newcastle Manchester City hefur nú tilkynnt að félagið hafi loks náð að klára söluna á miðjumanninum Joey Barton til Newcastle fyrir 5,8 milljónir punda. Salan tafðist lengi vegna deilna um 300,000 punda greiðslu sem City taldi sig eiga rétt á að fá aukalega fyrir leikmanninn. Hún var leyst með því að Newcastle greiðir nú 5,8 milljónir punda fyrir hann í stað þeirra 5,5 sem upphaflega var samið um. Enski boltinn 14. júní 2007 16:31
Ben Haim semur við Chelsea Ísraelski varnarmaðurinn Ben Haim hjá Bolton hefur ákveðið að ganga í raðir Chelsea á frjálsri sölu. Hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning og stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag. Hann er 25 ára gamall og kaus að fara til Chelsea frekar en að ganga í raðir Newcastle þar sem gamli stjórinn hans Sam Allardyce ræður nú ríkjum. Enski boltinn 14. júní 2007 16:21
Allardyce: Ben Haim fer til Chelsea Sam Allardyce, stjóri Newcastle í ensku úrvalsdeildinni, hefur gefist upp á að landa til sín varnarmanninum Ben Haim sem hann fékk til liðs við Bolton á sínum tíma. Hann segir Chelsea vera búið að vinna kapphlaupið um þennan 25 ára gamla ísraelska landsliðsmann. Enski boltinn 14. júní 2007 16:08
Liverpool staðfestir áhuga sinn á Benayoun Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að félagið hafi áhuga á að fá til sín ísraelska landsliðsmanninn Yossi Benayoun frá West Ham. Leikmaðurinn er þegar búinn að samþykkja að framlengja samning sinn við West Ham til fimm ára en hefur dregið að skrifa undir. Stjórnarformaður Liverpool staðfesti áhuga félagsins í dag en neitaði að staðfesta fregnir um að félagið hefði boðið á bilinu 1-3 milljónir punda í hann. Enski boltinn 14. júní 2007 15:33
Baráttan um Bent Baráttan um enska landsliðsframherjann Darren Bent hjá Charlton fer nú harðnandi ef marka má frétt breska sjónvarpsins í morgun, en talið er að West Ham sé líklegasti viðkomustaður leikmannsins. Þar myndi hann hitta fyrir fyrrum knattspyrnustjóra sinn Alan Curbishley. Verðmiðinn er sagður vera um 17 milljónir punda á þessum 23 ára gamla leikmanni. Enski boltinn 14. júní 2007 15:24
Jordan vann málið gegn Dowie Simon Jordan, stjórnarformaður Crystal Palace, vann í dag skaðabótamál sem hann höfðaði á hendur fyrrum knattspyrnustjóra félagsins Ian Dowie. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að Dowie hefði logið þegar hann samdi sig út úr skuldbindingum sínum við félagið vorið 2006, en stakk svo af til grannliðsins Charlton. Enski boltinn 14. júní 2007 15:11
Jaaskelainen neitar Bolton Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen hefur neitað tilboði félagsins um að framlengja samning sinn. Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið orðaður við Sunderland og Manchester United og verður hann með lausa samninga eftir næstu leiktíð. Jaaskelainen gekk í raðir Bolton fyrir aðeins 100,000 pund árið 1997. Enski boltinn 14. júní 2007 15:09
Ledley King þarf í hnéuppskurð Fyrirliðinn Ledley King hjá Tottenham þarf að fara í lítinn hnéuppskurð eftir að hafa meiðst lítillega í keppni með enska landsliðinu á dögunum. King var mikið frá vegna meiðsla á síðustu leiktíð, en ætti að ná bata áður en keppni hefst í ensku úrvalsdeildinni þann 11. ágúst. Enski boltinn 14. júní 2007 15:05
Meistararnir byrja gegn Reading Leikjaplanið í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð var kynnt í dag. Íslendingalið Reading fær það erfiða verkefni að sækja meistara Manchester United heim í fyrstu umferðinni og mætir svo Chelsea í annari umferð. Sam Allardyce stjóri Newcastle fer með lið sitt á gamla heimavöllinn og mætir Bolton í fyrstu umferðinni. Hér fyrir neðan má sjá fyrstu umferðarnar. Enski boltinn 14. júní 2007 14:27
10 verstu leikmannakaup í sögu úrvalsdeildarinnar Breska blaðið Sun birtir í dag lista sinn yfir 10 verstu leikmannakaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Listinn er nokkuð áhugaverður og gaman að sjá hvernig nokkrir af færustu knattspyrnustjórum Englands hafa keypt köttinn í sekknum. Enski boltinn 13. júní 2007 21:45
Slúðrið á Englandi í dag Breska slúðurpressan er full af safaríkum fréttum af leikmannamarkaðnum í dag og sem fyrr er mikið rætt um menn sem talið er víst að skipta muni um heimilisfang í sumar. Einn þeirra er framherjinn Darren Bent hjá Charlton, en Star segir að West Ham muni kaupa hann á 18 milljónir punda í sumar og greiða honum 80,000 pund í vikulaun. Enski boltinn 13. júní 2007 14:56
Yfirtökutilboð í Blackburn á viðræðustigi Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Blackburn hafa staðfest að félagið sé í viðræðum við bandaríska fjárfesta um yfirtöku í félaginu en segja að enn sé langt í land með að samningar náist. Blackburn-menn hafa verið í grunnviðræðum við fjárfesta í nokkra mánuði. Enski boltinn 13. júní 2007 14:35
Styttist í ráðningu stjóra hjá Man City Breska sjónvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að úrvalsdeildarfélagið Manchester City muni ganga frá ráðningu á nýjum knattspyrnustjóra innan viku. Juande Ramos, þjálfari Sevilla, og hollenski þjálfarinn Co Adriaanse eru sagðir efst á óskalista félagsins. Enski boltinn 13. júní 2007 14:29
Smith gæti farið frá United Framherjinn Alan Smith gæti farið frá Old Trafford í sumar ef hann fær ekki frekari staðfestingu á því að hann sé inni í myndinni með aðalliði Manchester United. Smith hefur ekki náð að vinna sér sæti í aðalliðinu síðan hann fótbortnaði illa á sínum tíma. Enski boltinn 13. júní 2007 14:26
Saha verður klár í upphafi leiktíðar Franski framherjinn Louis Saha hjá Manchester United mun ekki missa af fyrstu leikjunum í ensku úrvalsdelidinni á næstu leiktíð eins og haldið var fram í fréttum á dögunum. Umboðsmaður Saha segir þær fréttir ekki réttar og segir Saha verða klárann í slaginn í fyrsta leik. Hann er nú í endurhæfingu í Frakklandi eftir vel heppnaða hnéaðgerð í Bandaríkjunum. Enski boltinn 13. júní 2007 14:24
Zola telur enska knattspyrnu gjalda fyrir fjölda útlendinga Ítalinn Gianfranco Zola telur ástæðuna fyrir því hversu illa enska landsliðinu gengur að vinna titla sé sú að of margir útlendingar spili í úrvalsdeildinni á Englandi. Zola, sem er fyrrverandi leikmaður Chelsea segir að Ítalir gætu kennt englendingum margt. Fótbolti 13. júní 2007 09:00
Stáljöfur íhugar að kaupa Birmingham Milljarðamæringurinn Lakshimi Mittal hefur nú verið kynntur til sögunnar sem hugsanlegur kaupandi knattspyrnufélagsins Birmingham á Englandi. Mittal er fimmti ríkasti maður heims og er metinn á hátt í 20 milljarða punda. Hann er fæddur á Indlandi og komst til auðs í stáliðnaðinum. Enski boltinn 12. júní 2007 22:00
Fegnir að vera lausir við Viduka Stjórnarformaður Middlesbrough segir að þó félagið komi til með að sjá á eftir framherjanum Mark Viduka, hafi hann að hluta til orðið feginn þegar Viduka neitaði síðasta samningstilboði frá félaginu og ákvað að ganga í raðir Newcastle. Enski boltinn 12. júní 2007 21:15
Slúðrið á Englandi í dag Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Atletico Madrid er einn þeirra sem talað er um í bresku slúðurpressunni í dag og ekki í fyrsta skipti. Mirror talar um að Atletico Madrid muni koma af stað stríði milli Manchester United, Liverpool, Arsenal og Tottenham þegar það muni tilkynna að hann sé falur í næstu viku. Enski boltinn 12. júní 2007 17:17
Solano framlengir við Newcastle Perúmaðurinn Nolberto Solano hjá Newcastle hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár. Solano spilaði stórt hlutverk hjá liðinu á síðustu leiktíð og hefur verið í herbúðum þess meira og minna allar götur síðan 1998. Hann er 32 ára gamall og átti stutt stopp hjá Aston Villa árið 2005. Enski boltinn 12. júní 2007 17:10
Henry: Ég er ekki að fara til Barcelona Framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal hefur nú fetað í fótspor umboðsmanns síns síðan í gær og neitar því alfarið að hann sé á leið til Barcelona eins og haldið var fram í franska blaðinu France Football í gær. Enski boltinn 12. júní 2007 15:40
Middlesbrough hefur áhuga á Grétari Sky Sports greinir frá því í dag að enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough sé að undirbúa tilboð í íslenska landsliðsmanninn Grétar Rafn Steinsson hjá AZ Alkmaar í Hollandi. Sagt er að enska félagið hafi þegar gert fyrirspurn í leikmanninn og segir umboðsmaður Grétars að hann hafi mikinn áhuga á enska boltanum. Talið er að kaupvirðið yrði um 4 milljónir punda ef af kaupunum yrði. Enski boltinn 12. júní 2007 14:50