Fleiri fréttir

Býður upp á tvöfalt hraðari 3G-tengingar

Síminn hefur sett upp nítján 3G-senda af hraðvirkustu gerð víða um land, en þeir eiga að ná 42 Mb/s og eru þannig tvöfalt hraðvirkari en hröðustu forverarnir hjá Símanum.

Skuldir drógust saman milli ára

Fjölskyldur á aldrinum 35 til 49 ára skulduðu mest allra aldurshópa í lok árs 2011, samkvæmt skýrslu Hagstofunnar.

Högnuðust um 837 milljónir á fyrsta fjórðungi

Hagar samþykktu árshlutarekning fyrir fyrsta ársfjórðung á stjórnarfundi í dag en í tilkynningu kemur fram að fyrirtækið hafi hagnast um 837 milljónir króna á fyrsta fjórðungi. Vörusalan var rétt rúmir átján milljarðar. Eigið fé félagsins nam níu og hálfum milljarði.

Vöruskipti voru óhagstæð í maí

Vöruskipti við útlönd vöru óhagstæð um 6,7 milljarða króna, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 1,9 milljarða króna.

Spá 1,7 prósenta hagvexti á árinu

Hagvöxtur verður 1,7 prósent á þessu ári og 2,7 prósent á því næsta gangi eftir spá Hagstofu Íslands. Í dag komu út Hagtíðindi Hagstofunnar, Þjóðhagsspá að sumri.

Lánsveðshópur enn látinn bíða

Viljayfirlýsing um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila með lánsveð til íbúðarkaupa verður ekki afgreidd á sumarþingi. Fjármálaráðherra segir að ekki sé fjárheimild fyrir málinu. Forsvarsmaður lánsveðshópsins segir hópinn svikinn ef málið verður ekki afgreitt á þessu ári.

Vísitala neysluverð hækkaði

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní 2013 er 413,5 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,53% frá fyrra mánuði samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 393,6 stig og hækkaði um 0,59% frá maí.

105 fyrirtæki gjaldþrota í maí

Í maímánuði voru nýskráð 189 einkahlutafélög, flest í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Til samanburðar voru nýskráð 151 einkahlutafélag í maí í fyrra.

"Gamli" Magic kominn aftur

"Það var bara eftirspurn eftir því að fá gamla bragið til baka, nýja bragðið gekk ekki upp“ segir Stefán Magnússon, markaðsstjóri Vífilfells, sem framleiðir orkudrykkinn Magic.

Samið við óstofnað félag

Skrifað hefur verið undir samkomulag við óstofnað félag kröfuhafa þrotabús Norðurturnsins ehf. um heildsöluleigu á tveimur hæðum Norðurturnsins.

Tæplega sjötug kona dæmd fyrir stórfelldan fjárdrátt

Anna V. Heiðdal var dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hún var sakfelld fyrir að draga sér 50 milljónir króna í starfi sínu hjá einkabankaþjónustu á eignastýringarsviði Kaupþings.

Allir sammála um stýrivextina

Einhugur var í peningastefnunefnd Seðlabankans um um tillögu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra og formanns nefndarinnar, að stýrivöxtum fyrir síðustu vaxtaákvörðun.

Úr endurreisn í uppbyggingu

Með nýjustu arðgreiðslu sinni hefur Framtakssjóður Íslands frá stofnun greitt út til eigenda sinna, 16 lífeyrissjóða auk Landsbankans og VÍS, 17,3 milljarða króna. Hluthafafundur sjóðsins samþykkti á þriðjudag arðgreiðslu upp á 5,6 milljarða króna. Kaflaskipti eru fram undan hjá sjóðnum. Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður hans, segir nú komið að því að byggja upp til framtíðar. Sjóðir á borð við Framtakssjóðinn geti liðsinnt við að afla erlendra fjárfesta, auka trúverðugleika.

Lífeyrissjóðir setja tugmilljarða í Reiti fasteignafélag

Í dag var undirrituð viljayfirlýsing um kaup hóps lífeyrissjóða á nýju hlutafé í Reitum fasteignafélagi að fjárhæð 12 milljarða króna. Einnig nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki að fjárhæð 25 milljarða króna útgefnum af félaginu.

Linda P flytur í Smáralindina

Baðhúsið, sem er í eigu fyrrum fegurðardrottningarinnar Lindu Pétursdóttur, er að flytja í Smáralindina.

Athugar að stýra rennsli fossa og hlífa Eyvafeni

Landsvirkjun vill kanna hvort unnt sé að haga Norðlingaölduveitu þannig að lón hennar nái ekki inn í Eyvafen. Þá býðst fyrirtækið til að halda rennsli á Dynk og öðrum fossum efri Þjórsár yfir sumartímann.

Dæmdir fyrir að svíkja 800 milljónir undan skatti

Tveir karlmenn voru dæmdir í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir skattalagabrot, en í sameiningu stóðu þeir skil á efnislega röngu skattaframtali vegna tekjuársins 2007.

Tekjuháir panta sér frekar pizzu

Þeir sem eru með 600 til 799 þúsund í heimilistekjur kaupa sér frekar pizzu en þeir sem eru með lægri tekjur. Þá eru stuðningsmenn Vinstri Grænna einnig sólgnir í pizzu.

Íslendingar og erlendir ferðamenn rukkaðir fyrir að skoða Kerið

"Það er alveg fráleitt að gera sérstakan mun á útlendingum og Íslendingum, og okkur dettur ekki í hug að taka þátt í slíku,“ segir Óskar Magnússon, stjórnarformaður Kerfélagsins, en félagið hefur ákveðið að rukka fyrir aðgang að Kerinu í Grímsnesinu.

118 verður að öllum líkindum 1818

Svo gæti farið að 118 verði að 1818 á næsta ári en fyrirtækið Já hefur lagt það til við Póst- og fjarskiptastofnun. Tillagan er gerð í ljósi þess að stofnunin mun ekki úthluta fleiri þriggja stafa símanúmerum. Í tilkynningunni segir einnig að Póst- og fjarskiptastofnun hafi einnig sent frá sér svokallað samráðsskjal þar sem sambærileg sjónarmið koma fram.

Skrifaði undir fríverslunarsamninga

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í ráðherrafundi EFTA-ríkjanna sem haldinn var í Þrándheimi. Á fundinum undirritaði Gunnar Bragi fríverslunarsamninga við Kostaríka, Panama og Bosníu-Herzegóvínu fyrir hönd Íslands.

Skýrslan kynnt á næstu dögum

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð er svo gott sem tilbúin. Lokafrágangur stendur yfir og boð á kynningarfund verður að líkindum sent út á næstu dögum.

OR greiðir ekki arð á þessu ári

Tillaga stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um að enginn arður verði greiddur fyrir síðasta rekstrarár var samþykkt á aðalfundi Orkuveitunnar í dag.

Ísland verði miðstöð sætuefnis

Stefnt er að því að hefja í næsta mánuði framleiðslu á sætuefni úr stevíujurt í Stevíuveri Via Health. Í tilkynningu félagsins kemur fram að innflutningur sé þegar hafinn, en jurtin er ræktuð í norðausturhluta Kína.

Fimm mínútur að flytja númer

Í haust tekur gildi ný verðskrá sem fjarskiptafyrirtæki þurfa að fara eftir við flutning símanúmera á milli fyrirtækja.

Segir að Jóhanna hafi aldrei pantað bílinn

Óðinn H. Jónsson skrifstofustjóri í Forsætisráðuneytinu segir Jóhönnu Sigurðardóttur aldrei hafa pantað nýjan ráðherrabíl til reynslu eins og Viðskiptablaðið hélt fram í gær.

Telja aukna verðbólgu í vændum

Ársverðbólga hjaðnar um 0,1 til 0,2 prósentustig milli maí og júní gangi eftir spár greiningardeilda. Greining Íslandsbanka spáir í dag um 0,4 prósenta verðbólgu. IFS Greining spáði í gær sömu aukningu og greiningardeild Arion banka 0,3 prósenta aukningu verðbólgunnar.

Sjá næstu 50 fréttir