Skýrslan kynnt á næstu dögum Stígur Helgason skrifar 24. júní 2013 08:00 Nefndinni voru upphaflega ætlaðir sex mánuðir til starfans en hún hefur ítrekað fengið frest og hefur nú starfað í tæpa 22 mánuði. fréttablaðið/gva
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð er svo gott sem tilbúin. Einungis lokafrágangur er eftir og Sigurður Hallur Stefánsson, formaður nefndarinnar, segir að boð á kynningarfund um skýrsluna verði að öllum líkindum sent út á næstu dögum. Nefndin var skipuð í septemberbyrjun 2011 og var henni fengið það hlutverk að rannsaka starfsemi Íbúðalánasjóðs frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans árið 2004 og til ársloka 2012. Enn fremur að meta áhrifin af breytingunum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn og áhrif starfsemi hans á stjórn efnahagsmála. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er stefnt að því að umræða geti farið fram um niðurstöður skýrslunnar á Alþingi áður en sumarþingi lýkur í byrjun júlí. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er lengd skýrslunnar talin í hundruðum blaðsíðna. Nefndinni voru upphaflega ætlaðir sex mánuðir til starfans en hún hefur ítrekað fengið frest og hefur nú starfað í tæpa 22 mánuði. Það sama er að segja um rannsóknarnefnd Alþingis um sparisjóðina, sem var skipuð á sama tíma. Skýrslu hennar verður skilað seinna, en á fundi með forsætisnefnd þingsins í febrúar greindi nefndarformaðurinn frá því að nefndin þyrfti fjóra mánuði enn til að ljúka verkinu, eða til loka júní. Skýrsla sparisjóðanefndarinnar verður nánast jafnlöng og sú um stóru bankana þrjá sem skilað var í apríl 2010. Prentuð útgáfa hennar var um tvö þúsund blaðsíður.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira