Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Landsbankinn hefur áhuga á útgáfu skuldabréfa í erlendri mynt Landsbankinn hefur bættst í hóp Íslandsbanka og Arion banka hvað varðar áhuga á útgáfu á skuldabréfum í erlendum myntum. Þetta kemur fram í frétt á Bloomberg fréttaveitunni þar sem rætt er við Steinþór Pálsson bankastjóra Landsbankans um málið. 19.12.2011 10:00
Afli Færeyinga við Ísland 19 þúsund tonn í fyrra Afli erlendra ríkja við Ísland var rúm 19 þúsund tonn árið 2010 miðað við tæp 11 þúsund tonn 2009. Færeyingar stunduðu einar þjóða veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af loðnu eða rúm 7 þúsund tonn. 19.12.2011 09:00
Kostnaður vegna örvandi lyfja hefur sjöfaldast frá 2003 Heildarkostnaður Sjúkratryggingar Íslands vegna tauga- og geðlyfja meir en tvöfaldaðist frá árinu 2003 og fram til ársins í fyrra. Í örvandi lyfjum hefur kostnaðurinn meir en sjöfaldast á þessu árabili. 19.12.2011 08:00
Bygma er að ganga frá kaupum á Húsasmiðjunni Danska byggingavörukeðjan Bygma A/S mun ganga frá kaupum á Húsasmiðjunni í byrjun þessarar viku. Heimildir Fréttablaðsins herma að náðst hafi samkomulag milli Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) og dönsku kaupendanna um þá niðurstöðu. 19.12.2011 06:00
Starfsfólk Landsbankans fær 13. mánuðinn í jólagjöf Landsbankinn er eini bankinn sem innir sérstaka auka launagreiðslu af hendi í desember, en hann greiðir öllum starfsmönnum viðbótarmánuð á meðan aðrir láta jólagjafir nægja. 18.12.2011 19:00
Lárus Welding ákærður í Svartháfsmálinu Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, vegna gruns um stórfelld umboðssvik. 18.12.2011 18:30
Arctica Finance nýr söluaðili Íslandssjóða Íslandssjóðir hf., dótturfélag Íslandsbanka, og Arctica Finance hf. hafa undirritað samning um sölu hlutdeildarskírteina sjóða Íslandssjóða. 18.12.2011 11:15
Ísland hagnast verulega á aðild Rússa að WTO Aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni sem samþykkt var í gær mun að öllum líkindum hafa afar góð áhrif á viðskiptaskilyrði Íslendinga og Rússa, en heildarútflutningur til landsins nam um 11,6 milljörðum króna á síðasta ári. 18.12.2011 10:00
Tekur vel í hugmyndir um að selja hluta af Landsvirkjun Efnahags- og viðskiptaráðherra er spenntur fyrir því að selja 30 prósenta hlut í Landsvirkjun til lífeyrissjóðanna og fara þar með blandaða leið eignarhalds á fyrirtækinu, svipað og Norðmenn hafi gert með Statoil. Hann segir að það muni hjálpa fyrirtækinu til lengri tíma að afnema ríkisábyrgð á lánum þess. 17.12.2011 19:00
Iceland Express stundvísari en Icelandair Fleiri brottfarir Iceland Express fóru í loftið á réttum tíma en hjá Icelandair á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar þess fyrrnefnda héldu þó aðeins í innan við þriðjungi tilfella samkvæmt frétt sem birtist á vef Túristans. 17.12.2011 15:00
Tímamót í heimsviðskiptum - Rússland orðið hluti af WTO Í gær var aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) samþykkt af aðildarríkjum stofnunarinnar á áttunda ráðherrafundi stofnunarinnar í Genf sem lýkur í dag. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra og aðalsamningamaður Íslands gagnvart ESB, var viðstaddur undirritunina en hann hefur síðustu átta ár verið formaður í sérstökum vinnuhópi Rússlands og aðildarríkja WTO og stýrði aðildarviðræðunum til loka. 17.12.2011 11:00
Þarf að auka traust á efnahagslífinu Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segist fagna málefnalegu innleggi Viðskiptaráðs í umræðuna um afnám gjaldeyrishafta en tillögur sérfræðingahóps ráðsins um hvernig afnema megi höftin á einu ári voru kynntar í gær. 17.12.2011 11:00
Landsbankinn fellir niður lán stofnfjáreigenda Landsbankinn mun fella niður flest þau lán sem veitt voru til ríflega 500 einstaklinga og 30 lögaðila við stofnfjáraukningu í Sparisjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga árið 2007. 17.12.2011 05:00
Bréf í Högum upp um 18,1% Hlutabréf í Högum hækkuðu um 18,1% í gær, sem var fyrsti dagur viðskipta með þau. Gengi bréfanna í útboði í byrjun desember var 13,5 krónur á hlut en lokagengi dagsins í gær var 15,95. Heildarviðskipti með bréfin námu 530 milljónum króna. Því jókst heildarvirði hlutabréfa í Högum úr 16,4 milljörðum króna í 19,4 milljarða króna á fyrsta degi viðskipta, eða um þrjá milljarða króna. 17.12.2011 02:00
Amer Sports kaupir Nikita Sportvörurisinn Amer Sports hefur keypt íslenska fyrirtækið Nikita. Aðalheiður Birgisdóttir stofnaði Nikita fyrir ellefu árum og hefur stýrt því en fyrirtækið framleiðir snjóbretta og tískufatnað með áherslu á vörur fyrir konur. Hjá Nikita starfa á fjórða tug manna, þar af þar af 8 í hönnun, vöruþróun og framleiðslu. Ársvelta Nikita nemur um 1,2 milljarði króna að því er fram kemur í frétt um málið á Reuters. Kaupverð kemur ekki fram í fréttinni. 16.12.2011 19:00
Samningar um þriðja kísilverið langt komnir Fyrirtækið Thorsil hefur sótt um lóð á Bakka undir kísilver og er langt komið með orkusamning við Landsvirkjun. Þetta er þriðja verksmiðjan af þessu tagi sem nú er í farvatninu hérlendis og gæti skapað 360 framtíðarstörf á Norðurlandi. 16.12.2011 19:00
EFTA dómstóll sker úr um hvort slitameðferðin sé lögleg Hæstiréttur staðfesti í dag að leita beri ráðgefandi álits á því hvort rétt hafi verið staðið að slitameðferð Kaupþings. Tvær spurningar verða lagðar fyrir dóminn. 16.12.2011 16:00
Landsbankinn fellir niður lán vegna stofnfjárkaupa Landsbankinn hefur ákveðið að fella niður rúmlega 500 lán til einstaklinga og 30 lán sem veitt voru lögaðilum til kaupa á nýju stofnfé í Sparísjóðnum í Keflavík, Sparisjóði Húnaþings og Stranda og Sparisjóði Vestfirðinga í lok árs 2007. 16.12.2011 14:00
Gríðarlegur áhugi á Högum Áhugi fjárfesta á að eignast hlut í Högum virðist vera gríðarlegur. Gengið hefur hækkað snarlega frá því að bréfin voru skráð í Kauphöll Íslands í morgun. Bréfin voru seld á 13,5 á hlut fyrr í desember gengi þeirra hefur verið í um sextán krónum það sem af er degi. 16.12.2011 14:00
Ætla að skapa allt að 1500 störf Til stendur að ráðast í mikið átak í byrjun næsta árs sem á að tryggja allt að 1500 atvinnuleitendum störf eða starfstengd úrræði. Stjórnvöld, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins standa að átakinu, sem ber yfirskriftina „TIL VINNU". Gert er ráð fyrir að sveitarfélögin muni skapa um helming þeirra starfa sem verða til með átakinu, en fyrirtæki á almennum markaði hinn helminginn. 16.12.2011 13:00
Keflavíkurflugvöllur í 16. sæti Keflavíkurflugvöllur er í sextánda sæti yfir ódýrústu langtímabílastæði á flugvöllum í Evrópu. Þetta kemur fram á vefnum alltumflug.is. Vefurinn gerði könnun og verðsamanburð á stærstu flugvöllum í Evrópu ef bíll er geymdur í eina viku. 16.12.2011 13:00
Dollarinn ekki sterkari gagnvart krónunni í 17 mánuði Bandaríkjadollar er kominn yfir 122 krónur og hefur hann ekki verið dýrari síðan seint í júlí á síðasta ári. 16.12.2011 10:00
Spáir 5,7% verðbólgu á fyrsta ársfjórðungi 2012 Hagfræðideild Landsbankans spáir því að ársverðbólgan á fyrsta ársfjórðungi næsta árs verði um 5,7% að jafnaði. Verðbólgan muni síðan lækka jafnt og þétt eftir því sem líður á árið. 16.12.2011 10:00
Jólamaturinn yfirleitt ódýrastur í Bónus Bónus var með lægsta verðið í 42 af 72 tilvikum þegar verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á jólamat í 7 matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu á mánudaginn. Kannað var verð á algengum matvörum sem verða á borðum landsmanna yfir jólahátíðina. 16.12.2011 10:00
Viðskipti með hlutabréf í Högum hefjast í Kauphöllinni í dag Kauphöllin tilkynnir að í dag hefjast viðskipti með hlutabréf Haga hf. á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Hagar flokkast sem lítið félag innan nauðsynjavörugeirans. Hagar eru fjórtánda félagið sem skráð er á aðalmarkað innan NASDAQ OMX Europe á árinu 2011 en fyrsta félagið sem skráð er í Kauphöllinni síðan frá hruni 2008. 16.12.2011 08:00
Moody´s staðfestir lánshæfiseinkunn ÍLS Matsfyrirtækið Moody´s hefur staðfest lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs (ÍLS) sem Baa3 eða lægsta stig fjárfestingarflokks, en með neikvæðum horfum. 16.12.2011 07:15
Sigurður og Jón Pálmasynir opna IKEA verslun í Litháen Bræðurnir Sigurður og Jón Pálmasynir ætla að opna fyrstu IKEA verslunina í Eystrasaltslöndunum en verslunin verður staðsett í Litháen. Bræðurnir eiga fyrir rekstrarfélagið sem rekur IKEA verslunina á Íslandi. 16.12.2011 07:00
Spáir nær óbreyttri verðbólgu í desember Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan í desember verði nær óbreytt frá þessum mánuði eða 5,1%. Verðbólgan mældist 5,2% í nóvember. 16.12.2011 07:00
Hagur tryggingafélaga stöðugt að batna Hagur íslensku tryggingarfélaganna hefur stöðugt farið batnandi á árinu. Þetta sést meðal annars á þróun eigin fjár þeirra. 16.12.2011 07:00
Afnema má gjaldeyrishöftin hraðar Viðskiptaráð Íslands kynnti í gær tillögur sérfræðingahóps úr viðskiptalífi og háskólunum um hvernig afnema megi gjaldeyrishöft á einu ári. Er það mat hópsins að það megi gera á svo skömmum tíma án þess að verulegur þrýstingur verði á gjaldeyrismarkaði og þannig að kostnaður verði ekki of mikill. Við sama tækifæri kynnti ráðið nýja skýrslu um gjaldeyrishöftin. 16.12.2011 06:00
Vísar frétt Financial Times á bug Aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, Kolbeinn Marteinsson, segir það ekki rétt sem fram kemur í Financial Times í dag, að ráðuneytið hafi sett sig í samband við kínverska fjárfestinn, Huang Nubo, um að fara með einhverjum hætti framhjá niðurstöðu innanríkisráðherra, sem neitaði að gefa fyrirtæki Nubos undanþágu um að kaupa land á Grímsstöðum á Fjöllum. 15.12.2011 20:00
Hæstiréttur segir að Magnús og Kevin þurfi að borga Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir félaginu Materia Invest, sem var í eigu Magnúsar Ármanns og Kevins Gerald Stanford, og er því gert að greiða Arion banka 6,3 milljarða. Þá voru Kevin og Magnúsi gert að greiða hvor um sig 240 milljónir króna. 15.12.2011 17:00
Hundruð nýrra íbúða munu rísa Um 300 nýjar íbúðir eru í byggingu á bestu stöðum í Reykjavík og á bilinu 3-500 gætu farið í byggingu á næsta ári, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar. Borgin samþykkti húsnæðisstefnu í haust og hefur verið að gera úttektir á því hvernig borgin getur tekið þátt í því að byggja upp fjölbreyttara húsnæðiskerfi, einkum með leiguíbúðum. Formaður borgarráðs, Dagur Eggertsson, segir mikilvægt að hafa gott úrval leiguíbúða því óraunhæft sé að gera ráð fyrir því að ung fólk muni skuldsetja sig upp í rjáfur í framtíðinni vegna fasteignakaupa. 15.12.2011 16:00
Allt að 30 félög vilja á markað Allt að þrjátíu félög íhuga skráningu í Kauphöllina á næstu tveimur til þremur árum. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segist ekki eiga von á því að öll félögin muni skila sér á endanum en þetta sýni að áhuginn fyrir skráningu sé mikill. Það ríkir mikil eftirvænting fyrir morgundeginum en þá verða Hagar, sem reka meðal annars Bónus og Hagkaup, skráð í Kauphöllina. Það er fyrsta skráningin í rösklega þrjú ár. 15.12.2011 15:00
Afnám gjaldeyrishafta á einu ári Vinnuhópur á vegum Viðskiptaráðs hefur lagt fram áætlun um afnám gjaldeyrishafta á einu ári. Lykillinn er útgáfa langtíma ríkisskuldabréfa í erlendri mynt. Gylfi Magnússon segir ekki eðlilegt að halda niðri vöxtum árum saman með því að halda fé í gíslingu hér á landi. 15.12.2011 12:00
Líklegt að erlendir lögmenn haldi uppi vörnum hjá EFTA dómstólnum Líklegt þykir að erlendir lögfræðingar verði fengnir til að halda uppi vörnum fyrir Ísland í Icesave málinu þegar kemur fyrir EFTA dómstólinn. Utanríkisráðherra mun hafa stjórnskipulegt forsvar. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, ákvað í gær að vísa Icesave deilunni til EFTA dómstólsins vegna meinra brota Íslands á tilskipun um innstæðutryggingar. 15.12.2011 11:00
Ísland býr við mestu verðbólgu í Evrópu Ísland býr við mestu verðbólguna af öllum ríkjum í Evrópu. Þetta kemur fram í nýju yfirliti frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. 15.12.2011 10:45
Kortaveltan eykst milli ára í nóvember Heildarvelta debetkorta í nóvember síðastliðnum var 31,6 milljarðar kr. sem er 0,5% aukning frá fyrra mánuði en 3,1% aukning miðað við nóvember í fyrra. 15.12.2011 10:00
Sala áfengis jókst milli ára í nóvember Sala áfengis jókst um 1,7% í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlag Verð á áfengi var 3,8% hærra í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. 15.12.2011 09:00
Landið troðfullt af íslenskum krónum Erlendir kröfuhafar Kaupþings, Landsbanka og Glitnis munu fá allt að 450 milljarða króna af kröfum sínum greiddar í íslenskum krónum á næstu árum miðað við síðustu birtu fjárhagsupplýsingar föllnu bankanna þriggja. Vegna gjaldeyrishafta verður ómögulegt fyrir þá að breyta því fjármagni í erlendan gjaldeyri. Heimildir Fréttablaðsins herma að til standi að bjóða kröfuhöfunum útgönguleið úr íslensku hagkerfi gegn því að þeir bindi féð í ákveðinn tíma hérlendis. 15.12.2011 09:00
Feitir jólabónusar til landverkafólks útgerða Landverkafólk útgerðarfélagsins Eskju á Eskifirði og dótturfélaga þess, fær 260 þúsund krónur í jólabónus í dag. Þetta er umfram umsamin jólabónus samkvæmt kjarasamningum. 15.12.2011 07:00
Landsbankinn blekkti FME Stjórnendur Landsbankans gáfu Fjármálaeftirlitinu í að minnsta kosti tvígang rangar upplýsingar um eign bankans í eigin bréfum. Þetta kom fram í úttekt Kastljóss í kvöld á hruni bankanna. Þar kom fram að Landsbankinn keypti eigin bréf fyrir tugi milljarða síðustu mánuðina fyrir fall hans. 14.12.2011 20:42
Eimskip siglir á markað Stjórn Eimskipafélags Íslands hf., hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins á markað seinni hluta ársins 2012. Í tilkynningu frá félaginu kemdur Óskað verður eftir að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland og stefnt er að því að viðskipti með hluti í félaginu hefjist í Kauphöllinni á seinni hluta ársins 2012. 14.12.2011 17:15
Ólafur hefur áhyggjur af siðferðisvanda stjórnvalda "Ég hef gríðarlegar áhyggjur af því að þetta mál lendi í höndum stjórnmálamanna sem hafi mikinn siðferðisvanda í málinu," segir Ólafur Elíasson, sem var hluti af InDefence hópnum. Hópurinn barðist gegn fyrstu nauðungarsamningunum í málinu og stóð fyrir undirskriftasöfnun um að þjóðin hafnaði þeim. 14.12.2011 14:00
Verðum líklega beitt pólitískum þrýstingi ef við töpum Lárus Blöndal, hæstaréttarlögmaður, telur líklegt að Bretar og Hollendingar muni beita pólitískum þrýstingi til að knýja fram efndir í Icesave málinu ef niðurstaða EFTA dómstólsins verður Íslandi í óhag. Niðurstaða gæti legið fyrir í lok næsta árs. 14.12.2011 18:30