Þarf að auka traust á efnahagslífinu 17. desember 2011 11:00 Arnór Sighvatsson
Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segist fagna málefnalegu innleggi Viðskiptaráðs í umræðuna um afnám gjaldeyrishafta en tillögur sérfræðingahóps ráðsins um hvernig afnema megi höftin á einu ári voru kynntar í gær. Áætlun hópsins snerist annars vegar um að losa um hina svokölluðu snjóhengju óþolinmóðs fjármagns með því að gefa eigendum króna kost á að bjóða í langtíma ríkisskuldabréf í erlendum gjaldmiðlum, og hins vegar um afnám gjaldeyrishafta í þrepum. Arnór segir talsverðan samhljóm milli tillagna hópsins og áætlunar Seðlabankans þótt áherslur séu aðrar. Seðlabankinn geri ráð fyrir að langtíma ríkisskuldabréf verði boðin út í erlendum gjaldmiðlum þótt slíkt útboð hafi ekki verið útfært. Arnór segir þá lausn fyrst og fremst lúta að þeim hluta vandans sem felist í aflandskrónum í formi eignar á ríkisskuldabréfum. Hins vegar komi ekki til greina að leysa hinn helming vandans, innistæður erlendra aðila, með þessum hætti. „Þá værum við að færa skuld einkageirans, aðallega bankanna, yfir á ríkissjóð. Skuldir ríkissjóðs myndu aukast sem hefði áhrif á lánshæfismat landsins og gæti valdið verulegum erfiðleikum,“ segir Arnór og telur jafnframt að við núverandi aðstæður yrði ekki mikil eftirspurn eftir þessu meðal aflandskrónueigenda. Fyrst þurfi að auka traust á íslensku efnahagslífi og í því samhengi sé lykilatriði að áfram verði rekin aðhaldssöm stefna í ríkisfjármálum.- mþl
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira