Tímamót í heimsviðskiptum - Rússland orðið hluti af WTO 17. desember 2011 11:00 Stefán Haukur Jóhannesson á ráðherrafundinum í gær.
Í gær var aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) samþykkt af aðildarríkjum stofnunarinnar á áttunda ráðherrafundi stofnunarinnar í Genf sem lýkur í dag. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra og aðalsamningamaður Íslands gagnvart ESB, var viðstaddur undirritunina en hann hefur síðustu átta ár verið formaður í sérstökum vinnuhópi Rússlands og aðildarríkja WTO og stýrði aðildarviðræðunum til loka. Aðild Rússlands markar tímamót í heimsviðskiptum en landið er mikilvægasta efnahagsveldi heims sem fram til þessa hefur staðið utan hins fjölþjóðlega viðskiptakerfis. Rússland þarf að fullgilda samninginn fyrir 15. júní 2012 en aðildin tekur gildi 30 dögum eftir fullgildingu hans. Við aðild mun rússneski markaðurinn opnast frekar, viðskiptaumhverfið verða fyrirsjáanlegra og réttaröryggi í viðskiptum með vöru og þjónustu aukast til muna. Jafnframt munu tollar lækka á mörgum vörum við innflutning til Rússlands. Viðskipti Íslands og Rússlands byggja á gömlum merg og hefur Ísland einkum flutt út sjávarafurðir til Rússlands. Heildarútflutningur til Rússlands nam um 11,6 milljörðum króna árið 2010. Í tengslum við aðildarviðræður Rússlands að WTO gerði Ísland samkomulag við Rússland sem tryggði sérstaklega lægri tolla á mikilvægar íslenskar útflutningsvörur frá aðild, svo sem makríl, karfa og síld. Einnig var samið um lægri tolla á nokkrum iðnaðarvörum, meðal annars á lyfjavörum og búnaði og vörum til notkunar í matvælaframleiðslu.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira