Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðin markaðsstjóri Íslandsbanka Hólmfríður Einarsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Íslandsbanka. Hólmfríður er 38 ára viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilkynningu frá bankanum segir að hún hafi starfað við markaðsmál fyrirtækja í um 10 ár, fyrst sem deildarstjóri Markaðs- og vefdeildar Kaupþings og síðar sem forstöðumaður Markaðsmála hjá Símanum. Hólmfríður hefur búið í Hollandi undanfarin tvö ár og hún er gift Ragnari Þór Ragnarssyni og eiga þau þrjú börn. 5.1.2011 15:06
Fá leyfi til að rannsaka hagkvæmni virkjunar í Ölfusá Orkustofnun hefur veitt Selfossveitum leyfi til rannsókna á vatnasviði Ölfusár við Selfoss sem og á afmörkuðum svæðum á landi. 5.1.2011 14:23
Usmanov handrukkari - voru bankamenn að bjarga lífi sínu? „Ég trúi því ekki að íslenskir bankamenn séu svona miklir aular að þeir láni manni eins og Usmanov 280 milljarða króna. Ég neita að trúa þeirri sögu,“ sagði Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, í Morgunútvarpinu á rás 2 í morgun. Þar fullyrðir hann að Úsbekinn Alisher Usmanov sé lítið annað en handrukkari eldsneytisfyrirtækisins Gazprom. 5.1.2011 13:31
Gert ráð fyrir rekstrarafgangi hjá Reykjanesbæ Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2011 var samþykkt í bæjarstjórn 4. janúar 2011 með 7 atkvæðum sjálfstæðismanna og 4 fulltrúar minnihlutans sátu hjá. 5.1.2011 13:04
Ferðaskrifstofa Akureyrar eykur umsvifin Nú um áramótin tók ný innanlandsdeild Ferðaskrifstofu Akureyrar formlega til starfa og mun megin hlutverk hennar verða skipulag á ráðstefnum, fundum og hvataferðum á Akureyri og Norðausturlandi. 5.1.2011 11:01
Intrum verður Motus Motus er nýtt nafn á starfsemi Intrum á Íslandi. Ákvörðun hefur verið tekin um að félagið starfi undir eigin vörumerki á Íslandi og notkun á alþjóðlega vörumerkinu „Intrum Justitia“ verði lögð af. 5.1.2011 10:22
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 3% í nóvember Vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2010 var 194,8 stig og hækkaði um 3,1% frá október 2010. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. 5.1.2011 09:07
Aflaverðmætið jókst um 17,8% Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 17,8% á milli ára. 5.1.2011 09:05
Vöruskiptin hagstæð um 109 milljarða á 11 mánuðum Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 48,4 milljarða króna og inn fyrir 37,9 milljarða króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 10,4 milljarða króna. Í nóvember 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 1,8 milljarða króna á sama gengi. 5.1.2011 09:02
Þjóðskráin tekur við rekstri vefsíðunnar Ísland.is Frá 1. janúar 2011 hefur Þjóðskrá Íslands tekið að sér þróun og rekstur vefsvæðisins Ísland.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita fyrir ríki og sveitarfélög. 5.1.2011 07:56
Velta á gjaldeyrismarkaði tók stökk í desember Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri tók mikið stökk í desembermánuði s.l. Nam veltan rúmlega 27.4 milljörðum kr., sem er rúmlega 24.7 milljarða kr. meiri velta en í nóvembermánuði. 5.1.2011 07:41
Kanadískur fisksölurisi býður 52 milljarða í Icelandic Group Forsvarsmenn kanadísks fisksölufyrirtækis eru afar ósáttir við að fá ekki að bjóða í Icelandic Group sem er í eigu Framtakssjóðs Íslands. Viðræður um sölu á hlut í fyrirtækinu til dansks fjárfestingasjóðs eru langt komnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa forsvarsmenn fyrirtækisins High Liner Foods ítrekað sent framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands erindi vegna málsins, nú síðast í gær. 5.1.2011 04:00
Tæplega 1100 ábendingar bárust um bótasvik Hátt í 140 milljónir króna spöruðust á síðasta ári vegna ábendinga um atvinnuleysisbótasvik. Yfir 200 manns sem sviku út bætur voru teknir af atvinnuleysisskrá eftir ábendingar. 4.1.2011 18:33
Ásta fer í Seðlabankann Ásta H. Bragadóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Seðlabankans, en undir það svið fellur jafnframt starfsmannastjórn í bankanum. Hún var í hópi 77 umsækjenda um stöðuna, en nokkrir þeirra drógu umsókn sína til baka. 4.1.2011 16:14
Ólögmæti bílalánasamnings Lýsingar staðfest Áfrýjunarnefnd Neytendamála staðfesti fyrri niðurstöðu Neytendastofu um að samningsskilmálar á bílasamningi hjá Lýsingu brytu að nokkru leyti gegn ákvæðum laga um neytendalán og laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. 4.1.2011 14:23
Raungengi krónunnar birt á morgun Á morgun mun Seðlabankinn birta raungengi íslensku krónunnar fyrir desembermánuð. Í nóvember síðastliðnum hækkaði það um 0,4% frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. 4.1.2011 12:24
Stefnir í metafgang af vöruskiptum Á morgun mun Hagstofan birta tölur um vöruskipti við útlönd á tímabilinu janúar til nóvember 2010. Ef bráðabirgðatölur nóvembermánaðar reynast réttar nemur afgangur af vöruskiptum á þessu tímabili um 109 milljörðum króna. sem jafngildir aukningu upp á 44% á föstu gengi frá sama tímabili árið á undan. 4.1.2011 12:17
Uppsjávarafli HB Granda 3,4 milljarðar í fyrra Afli uppsjávarveiðiskipa HB Granda var alls tæplega 96.400 tonn á síðasta ári og aflaverðmætið nam rúmlega 3,4 milljörðum króna. Aflinn dróst saman um tæp 8% frá því á árinu 2009 en þrátt fyrir það jókst aflaverðmætið um 28,3% milli ára. 4.1.2011 11:19
Dohop semur við ástralskt fyrirtæki Íslenski ferðavefurinn Dohop hefur gert samning við ástralska fyrirtækið HotelsCombined um rekstur íslenskrar hótelleitar á vef Dohop. 4.1.2011 11:07
Nýtt fyrirtæki stofnað í heilbrigðisgeiranum Til þess að mæta þörf fyrir aukna sérhæfingu í sölu og þjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknavörum hefur verið ákveðið að heilbrigðistæknisvið Vistor verði sjálfstætt fyrirtæki, MEDOR ehf. 4.1.2011 11:04
Íslandsbanki samdi við Seðlabankann um gjaldeyrissölu Það er Íslandsbanki sem á stærstan hluta að þeirri aukningu á gjaldeyrisforðanum sem Seðlabankinn greindi frá í gær. Íslandsbanki mun selja Seðlabankanum gjaldeyri fyrir 48 milljarða kr. á næstu fimm árum. 4.1.2011 10:56
Íslendingar henda 10 kílóum af gulli á ári Auðvelt er að reikna út að Íslendingar hendi um 10 kílóum af gulli á hverju ári. Þetta gerist þegar landsmenn endurnýja farsíma sína. Andvirði þessa gulls, miðað við heimsmarkaðsverð, er um 57 milljónir kr. 4.1.2011 09:52
Talsverð auknning hjá norrænu kauphöllunum Viðskipti á mörkuðum NASDAQ OMX Nordic jukust töluvert árið 2010 frá því árinu áður. Dagleg velta hlutabréfa nam að meðaltali um 2,5 milljarða evra (2009: 2,2 milljarðar). 4.1.2011 08:51
Gjaldeyrisforðinn aukinn um 72,5 milljarða Seðlabankinn hefur átt í viðamiklum kaupum á gjaldeyri undir lok síðasta árs. Samtals munu þessi kaup styrkja gjaldeyrisforða bankans um 72,5 milljarða kr. 4.1.2011 06:50
Um 5,4 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI stóð í stað í dag í 5,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 2,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 3,1 ma. viðskiptum. 3.1.2011 17:10
Krónan styrktist um tæp 12 prósent á árinu Gengi krónunnar styrktist lítillega í vikunni og lækkaði gengisvísitalan um 0,11% og endaði í 208,04. Á árinu sem var að líða styrktist krónan um 11,9% en gagnvart helstu gjaldmiðlum var breytingin nokkuð misjöfn. Þetta kemur fram í vikulegum markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa. 3.1.2011 15:28
Þreföld lengd símtala á jóladag Á jóladag bauð Síminn viðskiptavinum sínum að hringja án endurgjalds úr heimasíma í vini og vandamenn sem búa eða dvelja erlendis. Fólk nýtti sér þennan möguleika vel en símtölum til útlanda í kerfum Símans fjölgaði úr rúmlega 5000 á jóladag 2009 í tæplega 12.000 núna. Fólk talaði einnig miklu lengur en venjulega á jóladag en heildarlengd símtala rúmlega þrefaldaðist á milli ára og var vel yfir 140.000 mínútur. 3.1.2011 14:30
Gylfi Zoëga: Seðlabankanum mistókst að viðhalda stöðugleika Nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans segir að bankanum hafi mistekist að viðhalda stöðugleika fjármálakerfisins. Hann bætist í hóp þeirra sem kalla eftir umfangsmiklum breytingum á peningamálastefnu landsins. 3.1.2011 12:25
Sérstakur: Gögnin frá Lúx ættu að skila sér í febrúar Sérstakur saksóknari segist eiga von á því að fá gögn úr Banque Havilland bankanum í Lúxemborg í febrúar þegar niðurstaða hæstaréttar í Lúxemborg á að liggja fyrir. Embættið telur gögnin hafa grundvallarþýðingu fyrir rannsókn á málefnum Kaupþings. 3.1.2011 12:21
Skuldabréf tóku við af hlutabréfum á síðasta ári Skuldabréfamarkaðurinn hefur tekið við hlutverki hlutabréfamarkaðarins hér á landi. Tölur um veltu og hagnað sýna þetta glögglega. 3.1.2011 07:14
FME: Exista fær 15 milljóna stjónvaldssekt Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að beita Exista 15 milljón króna stjórnvaldssekt fyrir brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti. 3.1.2011 07:04
VBS á borð sérstaks saksóknara Slitastjórn VBS Fjárfestingarbanka undirbýr það nú að stefna nokkrum málum tengdum viðskiptum bankans fyrir fall hans í fyrra og er líklegt að einhver þeirra lendi á borði sérstaks saksóknara. 3.1.2011 00:00
Norðmenn og Íslendingar geta sameinast um Jan Mayen Einn kunnasti olíuráðgjafi Noregs telur að breytingar á íslensku olíuskattkerfinu séu forsenda þess að starfsemi hefjist á Drekasvæðinu og segir að Norðmenn og Íslendingar geti sameinast um að gera Jan Mayen-svæðið aðlaðandi til olíuleitar. 2.1.2011 19:30
Fréttaárið 2010: Lítið þokaðist í atvinnuuppbyggingu Lítið þokaðist í atvinnuuppbyggingu á árinu og gekk erfiðlega að koma stórframkvæmdum á koppinn. Árið einkenndist af ósamstöðu í atvinnumál. Samtök atvinnulífsins og ASÍ sögðu sig frá stöðugleikasáttmálunum ári eftir undirritun. Sigríður Mogensen, fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, tók saman helstu fréttir af atvinnumálum og var samantekin sýnd í árlegri Kryddsíld Stöðvar 2 í gær. Hægt er að sjá samantekina hér. 1.1.2011 15:31