Viðskipti innlent

Aflaverðmætið jókst um 17,8%

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 17,8% á milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 70,8 milljarðar og jókst um 19,4% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 59,2 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 33,3 milljarðar og jókst um 26,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 12,1 milljarði og jókst um 1,6% milli ára.

Verðmæti karfaaflans nam 8,6 milljörðum, sem er 21,9% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 33,7% milli ára og nam 6,5 milljörðum á fyrstu níu mánuðum ársins 2010.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 7,5 milljörðum króna í janúar til september 2010, sem er 5,2% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 21,4% milli ára og nam 20,9 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 40,8 milljörðum króna og jókst um 24,4% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 37 milljarðar, sem er 26,7% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 33,5% milli ára og var um 14,8 milljarðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×