Intrum verður Motus 5. janúar 2011 10:22
Motus er nýtt nafn á starfsemi Intrum á Íslandi. Ákvörðun hefur verið tekin um að félagið starfi undir eigin vörumerki á Íslandi og notkun á alþjóðlega vörumerkinu „Intrum Justitia" verði lögð af. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé tekin til að tryggja sjálfstæði og skilvirkni til framtíðar og geta þannig best mætt þörfum markaðarins á hverjum tíma. Nú eru 15 ár frá stofnun fyrirtækisins, það hefur dafnað vel, er nú orðið fullþroska og tilbúið til þess að standa að fullu á eigin fótum. Stjórn félagsins og stjórnendur þess telja mikil tækifæri felast í því til framtíðar að hafa fullt vald yfir eigin vörumerkjum, vöruframboði, tæknimálum, markaðsmálum og öðrum stærri ákvörðunum. Intrum á Íslandi hefur átt frábært samstarf við Intrum Justitia við uppbygginguna á Íslandi og mun því samstarfi verða haldið áfram, en í breyttri mynd þannig að Motus verður umboðsaðili Intrum Justitia í stað þess að vera hlutdeildarfélag þess. Samhliða breytingunni mun félag í eigu stjórnenda Motus kaupa þriðjungs hlut Intrum Justitia í félaginu. Framangreind nafnabreyting mun ekki hafa nein áhrif á þá þjónustu sem Motus veitir hér á landi, en allar hugbúnaðarlausnir sem nýttar hafa verið af félaginu og öll önnur þekking sem félagið hefur byggt starfsemi sína á eru eign félagsins. Það hefur lengi legið í loftinu að sá dagur myndi koma að Intrum á Íslandi yrði annað hvort 100% dótturfélag Intrum Justita eða það myndi þróa eigin vörumerki og starfa þá sem umboðsaðili Intrum Justitia. Stefna Intrum Justitia er skýr, þeir vilja annað hvort eiga félög að fullu eða hafa þau sem samstarfsaðila án eignarhalds. Íslenska félagið hefur alla tíð verið mjög sjálfstætt og farið sínar eigin leiðir á flestum sviðum með góðum árangri og telja stjórn og stjórnendur félagsins tækifæri fólgin í þeirri stefnu.
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira