Fleiri fréttir

Alþingi: Vilja óháðan uppboðsmarkað á eignum banka

„ Alþingi ályktar að fela efnahags- og viðskiptaráðherra að hafa forgöngu um að stofnaður verði óháður og gagnsær uppboðsmarkaður fyrir eignir banka og fjármálastofnana, fyrir utan íbúðarhúsnæði, sem hafa verið yfirteknar á grundvelli ... laga um fjármálafyrirtæki...

Greining MP Banka spáir 2,2% verðbólgu

Greining MP Banka reiknar með því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,6% í janúar og tólf mánaða verðbólga lækki þar með í 2,2%. Þeir þættir sem hafa mest áhrif til lækkunar á VNV eru útsölur, breytt mæling útvarpsgjalds og lækkun bílverðs. Á móti því vegur hækkun bensínverðs og ýmsar gjaldskrárhækkanir.

Vilja skuldajafna í deilu um fráveitu

Álftanes hefur lýst yfir skuldajöfnuði vegna riftunar Orkuveitunnar á fjögurra ára gömlum samningi um kaup, uppbyggingu og rekstur fráveitunnar á Álftanesi.

Kanna ástand og magn síldar

Dröfn RE, skip Hafrannsóknastofnunar fór í gær til síldarrannsókna í Breiðafirði. Markmiðið er að kanna útbreiðslu stofnsins þar, magnmæla hann og síðast en ekki síst að meta sýkinguna sem herjað hefur á stofninn frá árinu 2008 og valdið miklum afföllum bæði í ungsíld sem og veiðistofninum.

Eyraroddi gjaldþrota

Héraðsdómur Vestfjarða hefur úrskurðað fiskvinnsluna Eyrarodda hf. á Flateyri gjaldþrota. Stjórn fyrirtækisins og umsjónarmaður nauðasamninga félagsins lögðu fram beiðni þess efnis fyrir dómara í dag. „Það eru stjórn Eyrarodda mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að tryggja áframhaldandi rekstur á Flateyri," segir stjórnarformaðurinn Teitur Björn Einarsson í tilkynningu.

Ráðherra heimilt að leysa upp hlutafélög

Efnahags- og viðskiptaráðherra er heimilt að leysa upp hlutafélög sem hafa ekki skilað inn ársreikningum þannig að eigendur þeirra beri eftirleiðis ótakmarkaða persónulega ábyrgð á rekstri og skuldum félaganna. Heimildinni hefur aldrei verið beitt. Þúsundir félaga eru í vanskilum með ársreikninga.

Greining spáir verðhjöðnun, verðbólgan verður 2%

Greiningardeild Arion banka spáir því að verðlag lækki um 0,8% í janúar frá fyrri mánuði. Ástæða verðlækkunar er að stærstum hluta vegna útsöluáhrifa. Gangi spáin eftir verður tólf mánaða verðbólga komin í 2% í janúar samanborið við 2,5% í desember. Án skattaáhrifa verður verðbólgan hinsvegar komin í 1,8%.

Þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en ár

Gríðarleg breyting hefur orðið á fjölda þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár og hafa þeir aldrei mælst fleiri en nú. Þannig höfðu 4.969 einstaklingar verið án atvinnu í meira en ár, eða sem nemur ríflega þriðjungi atvinnulausra, en á sama tíma í fyrra voru þeir 3.224 talsins eða um 21% atvinnulausra.

Parlogis hlýtur ISO 9001 gæðavottun

Gæðastjórnunarkerfi Parlogis hefur hlotið alþjóðlega vottun samkvæmt ISO 9001 staðlinum og er Parlogis fyrsti dreifingaraðili lyfja til að hljóta faggilda ISO 9001 vottun hér á landi.

AGS: Stöðugleiki í höfn og bati framundan á Íslandi

Stöðugleiki er í höfn og bati í sjónmáli fyrir íslenska hagkerfið, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Batinn virðist þó ætla að verða hægari en búist var við, meðal annars vegna seinagangs við endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja.

Hlutir í Icelandair hafa hækkað um 54% frá því fyrir jól

Gengi hlutabréfa í Icelandair Group stendur nú í 3,85 kr. á hvern hlut. Það þýðir að gengi þeirra bréfa sem seld voru í hlutafjárútboði félagsins fyrir jól hefur hækkað um 54% en í útboðinu var hver hlutur seldur á genginu 2,5.

Sólfell staðsett í Suðurbugt við Gömlu höfnina

Búð er að undirrita samning um úthlutun lóðar og staðsetningu hússins Sólfells í Suðurbugt Gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu mánuði m.a. með auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi og endurbyggingu hússins. Minjavernd hf. er eigandi hússins og er unnið að endurbyggingunni á Slippasvæðinu.

Ekkert löndunarbann í bili

Evrópusambandið (ESB) hefur enn ekki tilkynnt íslenskum stjórnvöldum um boðað löndunarbann á makrílafla íslenskra skipa í höfnum aðildarríkja sambandsins. Eins og fram hefur komið eru ESB og Noregur ósátt við einhliða ákvörðun Íslendinga um úthlutun makrílkvóta.

Landsbankinn veitti búlgörskum kaupsýslumanni milljarða yfirdrátt í miðju hruni

Meðal þess sem Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, er gefið að sök er að hafa borið ábyrgð á 4,5 milljarða króna yfirdráttarláni til búlgarsks viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar í lok september 2008 aðeins viku fyrir hrun. Sigurjón er sakaður um fjársvik, umboðssvik, skilasvik og markaðsmisnotkun.

Krónueigendur að róast

Lagaheimildir Seðlabankans til að hefta gjaldeyrisviðskipti áttu upphaflega að renna út í nóvemberlok á síðasta ári, en voru framlengdar til 31. ágúst þessa árs. Nú er unnið að því að endurskoða áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna, en Seðlabankastjóri hefur sagt að hugsanlega verði tillaga um að framlengja gjaldeyrishöftin enn frekar hluti af slíkri áætlun. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist ekki vilja segja til um það fyrirfram hvort sú verði raunin.

Tilvonandi bankastjóri lýsir yfir dauða verðtryggingarinnar

„Verðtryggingin er búin að vera,“ segir tilvonandi bankastjóri nýja Sparibankans sem verið er að setja á laggirnar. Viðskiptavinir hans munu geta fengið óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum en fyrst og fremst ráðgjöf um uppbyggingu sparnaðar og eigna.

Geysir Green Energy tapaði tæplega 18 milljörðum

Geysir Green Energy (GGE) tapaði 17,8 milljörðum króna á árinu 2009. Það tap bætist við 16,7 milljarða tap félagsins á árinu 2008. Þetta kemur fram í ársreikningi GGE fyrir árið 2009 sem greint er frá á vef Viðskiptablaðsins (vb.is).

Coca Cola á Spáni eignast Vífilfell

Coca Cola á Spáni hefur gengið frá kaupum á Vífilfelli, framleiðanda Coca Cola á Íslandi. Kaupverðið gengur að mestu leyti upp í skuldir félaga Þorsteins M. Jónssonar við Arion banka en þær eru samtals tíu milljarðar króna. Bankinn fær kröfur sínar á hendur Þorsteini og félögum í hans eigu greiddar að fullu.

Meðhöndlun aflandsfélaga sýndu ranga stöðu Landsbankans

Meðhöndlun aflandsfélaga sem héldu utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans og eru nú ein þungamiðjan í rannsókn sérstaks saksóknara á bankanum varð þess valdandi að eigið fé bankans varð meira en 50 milljörðum króna hærra í ársreikningi og staða hans sýndist því mun betri en hún var í raun.

Íslandsbanki sameinar útibú

Útibú Íslandsbanka á Suðurlandsbraut 30 og Háaleitisbraut verða sameinuð á nýjum stað í gamla B&L húsinu á Suðurlandsbraut 14. Þar verður starfrækt öflugt útibú sem verður miðstöð fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Davíð Oddsson bað um milljarðs dollara lán

Samkvæmt þeim skjölum sem Wikileaks hefur nýlega birt bað Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, Bandaríkjamenn um að lána Íslandi einn milljarð dollara árið 2008. Sendiráð Bandaríkjanna hvatti bandarísk stjórnvöld til þess að verða við beiðninni.

Þrettán flugfélög til Íslands

Vaxandi áhugi er nú meðal erlendra flugfélaga á að fljúga til og frá Íslandi. Að minnsta kosti ellefu erlend félög hafa tilkynnt um flug hingað til lands næsta sumar og fleiri gætu bæst við.

Hefur áhyggjur af atvinnuleysi

Vel hefur tekist til við að draga úr halla á fjárlögum og koma efnahagslífinu á réttan kjöl. Nýtt Icesave-samkomulag er mun hagstæðara en fyrri samningar sem kynntir hafa verið og flýtir fyrir bata efnahagslífsins. Þetta segir Julie Kozack, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS, hér á landi.

Google stofnar fyrirtæki á Íslandi

Netrisinn Google hefur stofnað fyrirtæki á Íslandi. Google er með íslenska kennitölu og lögheimili að Stórhöfða 21. Stofnendur fyrirtækisins samkvæmt Lögbirtingablaðinu eru Graham Law, fjármálastjóri hjá Google, og Ronan Aubyn Harris, framkvæmdastjóri hjá Google. Báðir eru þeir skráðir til heimilis á Írlandi en höfuðstöðvar Google í Evrópu eru einmitt í höfuðborg Írlands, Dublin.

Þögn bankanna ósiðleg

Talsmaður neytenda segir stöðu skuldara hafa styrkst með lögum um ábyrgðarmenn sem tóku gildi fyrir tveimur árum. Hann segir ekki siðlegt hjá bönkunum að þegja yfir ákvæði sem skyldar þá til þess að meta hæfi skuldara.

Lætur af störfum hjá Icelandair Group

Sigþór Einarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarforstjóri Icelandair Group. Hann hyggst snúa sér að flugvélaviðskiptum, m.a. í samvinnu við Icelandair Group. Jafnframt mun hann áfram verða félaginu til ráðgjafar á öðrum sviðum.

Setja yfirtökunni á Vestia skilyrði

Samkeppniseftirlitið telur að yfirráð Framtakssjóðs Íslands á fyrirtækjum sem heyra undir eignarhaldsfélagið Vestia geti að óbreyttu raskað samkeppni og að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir það með því að setja skilyrði fyrir yfirtökunni.

Atvinnuleysi var 8% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember 2010 var 8% en að meðaltali 12.745 manns voru atvinnulausir í desember og eykst atvinnuleysi um 0,3 prósentustig frá nóvember, eða um 382 manns að meðaltali.

Seðlabankastjóri: Stöndum á krossgötum

„Þær krossgötur sem við stöndum á nú felast í því að nú þarf að breyta stöðugleika í fjárfestingu, hagvöxt og atvinnu. Að vísu er flest sem bendir til þess að hagvöxtur hafi hafist á seinni hluta síðasta árs. Hann var hins vegar ekkert sérlega kröftugur og fjárfesting er áfram í sögulegu lágmarki.“

Víxlar: Ríkissjóði bauðst bestu vaxtakjörin hingað til

Ríkissjóður má vel við una miðað við niðurstöðu úr ríkisvíxlaútboðinu í gær, en umframeftirspurn hefur ekki verið jafn mikil síðan í maí á síðasta ári og vaxtakjör ríkissjóðs í útboðinu nú þau bestu sem honum hefur staðið til boða á innlendum skuldabréfamarkaði.

Spáir minnstu verðbólgu frá árinu 2003

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni lækka í janúar um 0,7% frá desembermánuði. Ef spáin gengur eftir verður verðbólgan 2,1% í mánuðinum og lækkar úr 2,5% í desember. Rætist spáin hefur verðbólgan ekki verið lægri síðan um mitt ár 2003. Hagstofan mun birta vísitölumælingu sína kl. 9:00 þann 26. janúar næstkomandi.

Vestia tapaði rúmum 400 milljónum árið 2009

Eignarhaldsfélagið Vestia tapaði 413 milljónum króna á árinu 2009, en félagið var stofnað í maí á því ári. Eigið fé þess var jákvætt um 2,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Vestiu sem var skilað inn til fyrirtækjaskrár í gær.

Stækkun verksmiðju Actavis lokið

Actavis á Íslandi hefur lokið við að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði og eykst framleiðslugetan við það úr einum milljarði taflna í einn og hálfan milljarð taflna á ári. Verksmiðjan verður opnuð formlega í dag, 14. janúar kl.10:30, að viðstöddum forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni.

Lán ÍLS í desember námu 2 milljörðum

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu um 2 milljörðum króna í desember, en þar af voru rúmir 1,7 milljarðar króna vegna almennra lána.

Fór langt fram úr heimildum

Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á meintum brotum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs er lokið. Lífeyrissjóðurinn lánaði bæjaryfirvöldum í Kópavogi 600 milljónir króna í kjölfar bankahrunsins síðla hausts 2008 og námu lánin allt að fimmtungi eiginfjár sjóðsins. Hámark er tíu prósent.

Sjá næstu 50 fréttir