Greining MP Banka spáir 2,2% verðbólgu 18. janúar 2011 11:10
Greining MP Banka reiknar með því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,6% í janúar og tólf mánaða verðbólga lækki þar með í 2,2%. Þeir þættir sem hafa mest áhrif til lækkunar á VNV eru útsölur, breytt mæling útvarpsgjalds og lækkun bílverðs. Á móti því vegur hækkun bensínverðs og ýmsar gjaldskrárhækkanir. Fjallað er um málið í Markaðsvísi greiningarinnar. Þar segir að breytingar á vörugjöldum á bílum sem tóku gildi um áramótin hafa leitt til verðlækkunar á bílum sem menga tilltölulega lítið. Stærri bílar með stórar vélar sem menga tiltölulega meira hækka í verði. Mörg bílaumboð hafa nú lækkað verð á smærri bílum en bjóða þá stærri nú með minni vélum en áður og eru þeir því oft ekki alveg sambærilegir við þá bíla sem voru í boði fyrir breytingu vörugjalds. „Við eigum von á því að nokkur verðlækkun mælist á bílum vegna vörugjaldsbreytingarinnar," segir í Markaðsvísinum. „Þá mun VNV lækka um 0,4% vegna þess að útvarpsgjald er ekki lengur flokkað sem neysluútgjöld. Tengsl gjaldsins við notkun hafa rofnað að mati Hagstofunnar og það þar með flokkað sem skattur. Ekki er hægt að efast um réttmæti þessarar flokkunar en það er óneitanlega sérkennilegt að það er enn talið með í grunni vísitölunnar og verðið fært niður í núll. Þannig fæst 0,4% lækkun þrátt fyrir að viðkomandi gjald hafi hækkað en ekki lækkað." Síðan segir að rösktuðningur Hagstofunnar er að svipað hafi verið gert í Hollandi þegar sambærilegt gjlad var fellt niður og kostnaður við útvarpsrekstur fjármagnaður með sköttum. Þar var þó gjaldið fellt niður þegar það var fært niður í 0 í mælingunni en ekki hækkað líkt og hér er gert. „Á móti öllum þessum lækkunum koma ýmsar gjaldskrárhækkanir um áramótin. Auk þess er gengisstyrkingar hætt að gæta í bili. Stærsti hækkunarliðurinn er vegna hækkunar bensínverðs en það er nú ríflega þremur prósentum hærra en þegar vísitalan var mæld í desember. Á heildina eigum við von á því að VNV lækki um 0,6% þegar Hagstofan birtir niðurstöðu næstu mælingar 26. Janúar," segir í Markaðsvísinum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira