Viðskipti innlent

Eyraroddi gjaldþrota

Teitur Björn Einarsson, stjórnarformaður Eyrarodda.
Teitur Björn Einarsson, stjórnarformaður Eyrarodda.
Héraðsdómur Vestfjarða hefur úrskurðað fiskvinnsluna Eyrarodda hf. á Flateyri gjaldþrota. Stjórn fyrirtækisins og umsjónarmaður nauðasamninga félagsins lögðu fram beiðni þess efnis fyrir dómara í dag. „Það eru stjórn Eyrarodda mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að tryggja áframhaldandi rekstur á Flateyri," segir stjórnarformaðurinn Teitur Björn Einarsson í tilkynningu.

Í lok október var öllu starfsfólki fiskvinnslufyrirtækisins sagt upp störfum en um var að ræða 42 starfsmenn. Á þriðja hundrað manns búa á Flateyri.

Að undanförnu hefur stjórn Eyrarodda unnið að fjárhagslegri endurskipulagninu fyrirtækisins í samvinnu við kröfuhafa þess. „Niðurstaða þeirra viðræðna var sú að nauðasamningur fyrir félagið var samþykktur en ekki tókst að útvega nægt fjármagn til að halda áfram rekstri og mæta áföllnum skuldbindingum. Því var í dag óumflýjanlegt að óska eftir skiptum," segir Teitur Björn.

Í upphafi hafi legið fyrir að rekstur fiskvinnslu án kvóta yrði mjög erfiður. „Þrátt fyrir það reyndu forsvarsmenn félagsins að koma af stað rekstri á Flateyri en því miður tókst ekki að afla nægs hráefnis til þess að fiskvinnslan stæði undir sér. Sá byggðakvóti sem hafði verið ætlaður Flateyri á árunum 2007 til 2010 var lítill. Jafnframt fór svo að mikill dráttur varð á úthlutun hans."

Þá segir Teitur Björn í tilkynningunni: „Eftir að tilkynnt var um 300 tonna byggðakvóta til Flateyrar í nóvember síðast liðnum, reyndu forsvarsmenn félagsins, samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu, að skjóta styrkari stoðum undir rekstur félagsins með því að tengja saman útgerð með kvóta og fiskvinnsluna á Flateyri. Það tókst því miður ekki."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×