Útgjöld til félagsverndar 380 milljarðar á árinu 2009 14. janúar 2011 09:11
Útgjöld til félagsverndar námu rúmum 380 milljörðum króna á árinu 2009 eða 25,3% af landsframleiðslu og hækkuðu verulega frá árinu 2008 er þau námu 22% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að munar þar mestu um mikla aukningu á útgjöldum vegna atvinnuleysis sem hækkuðu úr 5,4 milljörðum króna árið 2008 í 25,7 milljarða króna árið 2009. Þessi útgjöld voru 1,7% af landsframleiðslu ársins en til samanburðar námu útgjöld vegna atvinnuleysis 0,4% af landsframleiðslu árið 2008 og 0,2% árið 2007. Hluti útgjalda vegna atvinnuleysis var um 6,8% af útgjöldum til félagsverndar árið 2009 samanborið við 1,7% árið 2008. Um 36% útgjalda til félagsverndar á árinu 2009 voru vegna slysa og veikinda (heilbrigðismála), eða um 9% af landsframleiðslu. Til verkefna vegna öldrunar runnu rúmlega 21% útgjaldanna eða 5,3% af landsframleiðslu. Útgjöld vegna örorku, fötlunar vógu þungt en um 14% útgjalda til félagverndar runnu til þess málaflokks og tæplega 13% til fjölskyldna og barna og er hlutur hvors málaflokks um 3% af landsframleiðslu. Til fyrrgreindra fimm málaflokka félagsverndar runnu um 90% heildar útgjaldanna. Árið 2009 var heildarfjármögnun félagsverndar 432 milljarðar króna, en þar af runnu 380 milljarðar króna til fjármögnunar á félagsvernd ársins og afgangurinn rúmir 52 milljarðar til sjóðsmyndunar. Sjóðsöfnun lífeyrissjóða á árinu 2009 minnkaði samanborið við fyrri ár vegna aukins atvinnuleysis en fjöldi lífeyrisþega var óbreyttur. Fjármögnun hins opinbera á félagsvernd var 232 milljarðar króna eða 54% af heildarfjármögnun ársins 2009. Hlutur ríkissjóðs var 44% eða 189.5 milljarðar króna og hlutur sveitarfélaga 10% eða 43,3 milljarðar króna. Hlutur atvinnurekenda í fjármögnuninni var 148,5 milljarðar króna 2009 eða 34,4% og framlag hinna tryggðu 6,9% eða 29,8 milljarðar króna. Önnur fjármögnun var 20,8 milljarðar króna eða 5% af heildarfjármögnun félagsverndar.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira