Fleiri fréttir

Lindex Kids opnar í Kringlunni

Sænski tískuvörurisinn Lindex mun opna sérhæfða barnafataverslun, Lindex Kids, í Kringlunni í nóvember.

Lyf Actavis á Japansmarkað

Lyfjafyrirtækið Actavis fékk nýverið markaðsleyfi í Japan fyrir veirusýkingalyfið Valaciclovir.

Grunur um ólöglegt samráð

Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins ásamt lögreglumönnum komu á skrifstofu Samskipa við Kjalarvog skömmu fyrir tíu í morgun.

Uppbygging strandar hjá sveitarfélögunum

Lagning Blöndulínu 3 hefur verið strand í viðræðum við sveitarfélög í fimm ár. Ekki sér fyrir endann á biðstöðunni segir aðstoðarframkvæmdastjóri Landsnets. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra kveðst opin fyrir hugmynd um raflínu um hálendið.

Samið um aðkomu Ísfélagsins

Ísfélagið í Vestmannaeyjum á í viðræðum um kaup á hlut í Kvos hf, móðurfélagi prentsmiðjunnar Odda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru viðræðurnar vel á veg komnar.

Þorsteinn Már sakar seðlabankastjóra um lygar og offors

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir seðlabankastjóra hafa farið með "Aðeins örfáum dögum eftir að embætti sérstaks saksóknara vísaði frá kæru Seðlabankans vegna meints brots útgerðarfyrirtækisins Samherja á gjaldeyrislögum hefur Seðlabankinn sent embættinu nýja kæru vegna Samherja, en hún var send í morgun.

Ernst & Young á First North

Endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið Ernst & Young ehf. á Íslandi hefur fengið leyfi til að starfa sem viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland markaðstorginu sem rekið er af OMX kauphöllunum á Norðurlöndum.

Aðgerðaleysi gæti kostað 36 til 144 milljarða króna

Þjóðhagslegur kostnaður af óbreyttu flutningskerfi raforku er talinn nema sex milljörðum króna á ári. Kostnaður fylgir tíðara rafmagnsleysi, aukinni olíunotkun og fleiri þáttum. Hefur áhrif á byggðaþróun segir skýrsluhöfundur.

Tekjutap OR verður milljarður til 2015

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að leggja gufulögn frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar. Beðið er samþykkis borgarinnar og annarra eigenda. Gufulögnin mun kosta fyrirtækið 2,6 milljarða króna. Verður tilbúin í lok árs 2015.

Peningar bankanna ekki raunverulegir

Ole Bjerg segir millifærslur bankanna vera sýndarmennsku og enginn raunverulegur peningur komi við sögu í daglegum viðskiptum

Áhorfendur vilja hafa stjórnina

Leikarinn Kevin Spacey segir afþreyingarveituna Netflix vera framtíðina í miðlun sjónvarpsþátta og kvikmynda. Hann segir söguþráðinn vera það sem skipti máli en ekki miðillinn.

Gagnvirk gleraugu frá Google

Google Glass heita tæknileg gleraugu frá Google. Tækið er búið myndavél og öðrum búnaði sem tengist gagnabönkum Google og er auk þess stjórnað með raddskipunum. Almenningur fær tækifæri til að eignast slík gleraugu á næsta ári.

Grindr - App fyrir homma

Elis Veigar Cole segir að það séu mjög margir íslenskir strákar og karlmenn með þetta app, bæði þeir sem eru komnir út úr skápnum en líka þeir sem enn hafa ekki komið út.

Flaug upp í heiðhvolfið

SS2-flaug Virgin Galactic-fyrirtækisins hefur nú náð þeim merka áfanga að vera það vængjaða loftfar sem náð hefur mestri lofthæð.

Mesti fjöldi ferðamanna frá upphafi

Um 132 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýliðnum ágústmánuði, samkvæmt því sem kemur fram í nýbirtum tölum Ferðamálastofu.

Steingrímur Páll þarf að greiða þrotabúi Kaupþings 91 milljón

Steingrímur Páll Kárason sem var framkvæmdastjóri áhættustýringar Kaupþings hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi bankans 91 milljón króna ásamt vöxtum. Slitastjórn Kaupþings á nú í viðræðum við Sigurð Einarsson um 550 milljóna króna kröfu sem hann var dæmdur til að greiða þrotabúinu í fyrra. Slitastjórn Kaupþings kyrrsetti eignir Sigurðar upp á þriðja hundrað milljónir króna.

Bretar hafa endurheimt 68%

Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bretlandi hefur endurheimt 68 prósent af útgreiðslum úr sjóðnum sem til komnar voru vegna íslensku bankanna, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Farþegum Icelandair fjölgaði um 11%

Icelandair flutti 300 þúsund farþega í millilandaflugi í ágúst síðastliðnum. Farþegar flugfélagsins voru 11% fleiri en í ágúst á síðasta ári.

Gróðavon mikil á ónumdu svæði

Drekasvæðið er í flokki áhættusömustu leitarsvæða í olíuvinnslu. Sterkar vísbendingar eru þó um að þar sé olíu að finna. Forstjóri Mannvits varar við gullæði. Enn á eftir að sannreyna að olía finnist. Fjárfesting á svæðinu gæti þó hlaupið á milljarðatugum

Uppkaup Landsbankans hindra styrkingu krónunnar

Undir venjulegum kringumstæðum hefði íslenska krónan átt að styrkjast á góðu ferðamannasumri. Mikil uppkaup Landsbankans á erlendum gjaldeyri hafa hins vegar haldið aftur af styrkingu krónunnar að mati sérfræðinga.

Nauðsynlegt að bæta samkeppnishæfni Íslands

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir það áhyggjuefni að Ísland hafi fallið um eitt sæti á lista Alþjóða-efnahagsráðsins um samkeppnishæfni þjóða.

Google nefnir nýjasta stýrikerfið eftir KitKat

Google hafði samband við Néstle seint í nóvember á síðasta ári og bar hugmyndina fyrir Néstle. Aðstoðarforstjóri markaðsdeildar Néstle segir að tæpum klukkutíma síðar hafi fyrirtækið verið búið að ákveða að slá til.

Sjá næstu 50 fréttir