Viðskipti innlent

Grindr - App fyrir homma

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Elis Veigar Cole hefur reynslu af Grindr appinu,
Elis Veigar Cole hefur reynslu af Grindr appinu, mynd/365
Grindr er stefnumóta-app fyrir homma. Appið hefur notið talsverðra vinsælda á Íslandi.

Elis Veigar Cole, ungur íslenskur hommi segir að appið gangi út á það að kynnast og spjalla við aðra homma sem eru í nágrenninu. Appið gefur upp prófílana hjá strákum sem eru tengdir við appið eða hafa verið tengdir við það á síðustu tíu mínútum. 

Elis Veigar segir að appið sýni aðeins þá ákveðinn fjölda stráka sem eru næstir. Ef það eru ekki nógu margir tengdir á Íslandi geti það komið fyrir að næstu strákar sem eru tengdir séu til dæmis staddir á Hjaltlandseyjum.

Hann segir að það séu mjög margir íslenskir strákar og karlmenn með þetta app, bæði þeir sem eru komnir út úr skápnum en líka þeir sem enn hafa ekki komið út.

„Ég hef ágætis reynslu af þessu appi sjálfur. Það er mjög skemmtilegt að fara þarna inn og stundum lendir maður á spjalli og fer þá og hittir viðkomandi á kaffihúsi ef manni líst vel á hann. Appið er jafnframt notað til að stofna til skyndikynna,“ segir Elis Veigar.

Hann segir þetta góða leið til að kynnast samkynhneigðum ferðamönnum, þeir einfaldlega skrái sig inn þegar þeir koma til landsins og koma sér þannig í kynni við heimamenn. Hann hefur sjálfur notað þetta á ferðum sínum erlendis og hefur eignast vini út í heimi sem hann heldur enn sambandi við í gengum appið.

„Síðan er einnig hægt að nota þetta á skemmtistöðum og þetta er stórsniðugt fyrir þá sem eru feimnir. Þeir geta þá byrjað á að segja hæ á appinu og spjallað þar meðan þeir safna kjarki til að ganga upp að manninum,“ segir Elis Veigar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×