Fleiri fréttir

Coca-Cola tapar á kreppunni í Evrópu

Hagnaður bandaríska gosdrykkjarisans Coca-Cola minnkaði um 15% á fyrsta ársfjórðungi ársins. Ástæðan er kreppan í Evrópu og minnkandi sala í Bandaríkjunum.

Lagt til að Landsbankinn greiði tæpa 10 milljarða í arð

Bankaráð Landsbankans leggur til að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur 0,42 krónum á hlut fyrir árið 2012, sem samsvarar um 39% af hagnaði. Samkvæmt þessu mun arðgreiðslan nema rétt tæpum 10 milljörðum króna og rennur megnið af þeirri upphæð í ríkissjóð.

Mikil umframeftirspurn í útboði á VÍS hlutum

Vel heppnuðu almennu útboði á hlutabréfum í Vátryggingafélagi Íslands hf. (VÍS) lauk í gær þar sem tæplega 5.000 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf fyrir samtals um 150 milljarða króna.

Hámarki náð á heimsmarkaði

Heimsmarkaðsverð á mjólkurafurðum virðist vera að ná hámarki, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Vitnað er til niðurstaðna uppboðs Global Dairy Trade sem fram fór í gær.

Dregið verði úr uppgreiðsluáhættu

Starfshópur sem fjallaði um stöðu og framtíð Íbúðalánasjóðs telur að finna þurfi hentuga leið til að draga úr hluta af þeirri uppgreiðsluáhættu sem Íbúðalánasjóður stendur frammi fyrir. Hækka þurfi eiginfjárframlag til sjóðsins í áföngum þar til 5% marki er náð. Þetta er meðal helstu tillagna starfshópsins sem skipaður var síðastliðið haust.

Tilboð opnuð í Norðfjarðargöng

Metrostav og Suðurverk áttu lægsta boð í gerð Norðfjarðarganga, en tilboð voru opnuð í dag. Besta boðið hljóðaði upp á tæpa 9,3 milljarða sem var 97,3% af kostnaðaráætlun. Íslenskir aðalverktakar og Marti áttu hæsta boðið sem var um 10,5 milljarðar og tilboð Ístaks hljóðaði upp á 9,9 milljarða.

Makrílkvótinn verður rúmlega 123 þúsund tonn

Heildarveiði Íslendinga á makríl á þessu ári er áætluð 123.182 tonn. Er þetta aflamagn 15% lægra en ákveðið var á síðasta ári. Lækkunin tekur mið af breytingu í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Er þetta sama aðferð og beitt hefur verið hér á landi frá árinu 2011.

Olís stígur enn eitt græna skrefið

„Umhverfisbaráttan hefur ekki eingöngu falist í styrkjum til ýmissa málefna á sviði náttúruverndar heldur einnig í daglegri starfsemi og þjónustu okkar. Með umhverfisstefnu okkar viljum við stuðla að því að hver kynslóð skili landinu og auðlindum þess í betra horfi en áður til þeirrar næstu.“

Helga Melkorka tekur við framkvæmdastjórn LOGOS

Helga Melkorka Óttarsdóttir hæstaréttarlögmaður hefur tekið við faglegri framkvæmdastjórn LOGOS lögmannsþjónustu. Helga tekur við starfinu af Gunnari Sturlusyni hæstaréttarlögmanni sem gegnt hefur starfinu síðastliðin 12 ár.

Spáir minnstu verðbólgu í tvö ár eða 3% í apríl

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,1% í apríl frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga hjaðna um tæpa prósentu, úr 3,9% í 3,0%. Hefur verðbólgan þá ekki verið minni í tvö ár.

Skattamál ASÍ gegn ríkinu þingfest í dag

Í dag var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur mál sem ASÍ höfðar fyrir hönd allra félagsmanna sinna á hendur íslenska ríkinu. Þar er þess krafist að skattur á almennu lífeyrissjóðina, sem ákveðinn var með lögum í árslok 2011, verði dæmdur ólögmætur og andstæður stjórnarskrá.

Kjölfesta kaupir 30% hlut í Senu

Kjölfesta hefur keypt 30% hlutafjár í afþreyingarfyrirtækinu Senu ehf., ásamt dótturfélögum Senu. Kaupverðið er ekki gefið upp.

FME vill að bankar og slitastjórnir útskýri endurreikning á gengislánum

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sent tilmæli til lánastofnana, slitastjórna fjármálafyrirtækja og dótturfélaga þeirra. Tilefnið er endurreikningur, í annað sinn, á lánum tengdum gengi erlendra gjaldmiðla. Lánastofnanir munu að undanförnu hafa sent hluta lántakenda bréf þess efnis að lán þeirra séu lögleg erlend lán. Þau muni því ekki verða endurreiknuð frekar.

Heildaraflinn dróst saman um rúm 6% milli ára í mars

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 6,1% minni en í mars í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 9,6% miðað við sama tímabil í fyrra, sé hann metinn á föstu verði.

Nordea sektað um 600 milljónir vegna peningaþvættis

Fjármálaeftirlit Svíþjóðar hefur sektað Nordea bankann, stærsta banka Norðurlandanna, um 30 milljónir sænskra kr. eða tæplega 600 milljónir kr. vegna brota á reglum Evrópusambandsins um aðgerðir gegn peningaþvætti.

Ráðherra fær kynningu á Íbúðalánasjóðsskýrslu á morgun

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mun að öllum líkindum fá kynningu á skýrslu starfshóps um Íbúðalánasjóð á morgun. Upphaflega átti starfshópurinn að skila skýrslu fyrir lok marsmánaðar en var veittur frestur til föstudagsins 12. apríl til þess að skila skýrslunni. Í skýrslunni verða reifaðar framtíðarhorfur í rekstri Íbúðalánasjóðs og framtíðarhlutverk sjóðsins.

Ágæt sala á fasteignamarkaði borgarinnar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 106. Þar af voru 73 samningar um eignir í fjölbýli, 23 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Frestur kvenna til að sækja um til Svanna að renna út

Umsóknarfrestur um lánatryggingar úr Svanna – lánatryggingarsjóði kvenna rennur út á morgun, þriðjudaginn 16. apríl. Lánatryggingarsjóðurinn veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann sem veitir lán og helming ábyrgðar á móti sjóðnum.

Íslenskur vefhönnuður meðal þeirra fremstu í heimi

Vefhönnuðurinn Haraldur Þorleifsson er á hraðri uppleið. Hann er eftirsóttur á meðal tölvurisa heimsins, hefur unnið fyrir Microsoft og Motorola og var á dögunum tilnefndur til stórra alþjóðlegra verðlauna fyrir vinnu sína fyrir Google.

Búinn að undirrita fríverslunarsamninginn

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Gao Hucheng, viðskiptaráðherra Kína, undirrituðu í morgun í Peking fríverslunarsamning milli Íslands og Kína að viðstöddum forsætisráðherrum ríkjanna. Þetta er fyrsti fríverslunarsamningur sem Evrópuríki gerir við Kína og veitir íslenskum fyrirtækjum og útflutningsgreinum forskot á ört vaxandi Kínamarkað.

Útlit fyrir hagvöxt í Grikklandi á næsta ári

Útlit er fyrir hagvöxt í Grikklandi á næsta ári og yrði það í fyrsta sinn á síðustu sex árum að hagvöxtur mælist í landinu. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá Evrópusambandinu, Seðlabanka Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, oft kallað þríeykið.

Heimsmarkaðsverð á gulli og silfri í frjálsu falli

Heimsmarkaðsverð á gulli og silfri er í frjálsu falli þennan morguninn. Verð á únsu af gulli fór undir 1.400 dollara á markaðinum í London í morgun og hefur verð þess ekki verið lægra síðan í mars árið 2011 að því er segir í frétt á Bloomberg fréttaveitunni.

Sjá næstu 50 fréttir