Stjórnendur með hæstu launin, yfir 820 þúsund á mánuði 16. apríl 2013 09:12 Regluleg laun voru lægst hjá verkafólki árið 2012, en regluleg laun þeirra voru 296 þúsund krónur að meðaltali
Stjórnendur voru með hæstu reglulegu launin á almennum vinnumarkaði árið 2012 en regluleg laun fullvinnandi stjórnenda voru 821 þúsund krónur að meðaltali. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að fleiri stjórnendur voru með laun undir meðaltalinu en yfir því en helmingur hópsins var með 717 þúsund krónur á mánuði eða minna en það var miðgildi hópsins. Hafa ber í huga að starfsstéttin stjórnendur er misleitur hópur hvað varðar laun en í starfsstéttinni eru bæði yfirmenn deilda og æðstu stjórnendur fyrirtækja. Regluleg laun karlkyns stjórnenda voru 872 þúsund krónur á mánuði að meðaltali en meðaltal kvenkyns stjórnenda var 684 þúsund krónur á mánuði. Þá voru regluleg laun lægst hjá verkafólki árið 2012, en regluleg laun þeirra voru 296 þúsund krónur að meðaltali hjá fullvinnandi launamönnum. Um 60% verkafólks voru með regluleg laun undir 300 þúsund krónur á mánuði. Í starfsstéttinni eru ekki mörg útgildi til hækkunar á meðaltalinu sem sést á því að miðgildi hópsins var einungis 21 þúsund krónum lægra en meðaltalið. Regluleg laun verkakarla voru 305 þúsund krónur á mánuði að meðaltali en regluleg laun verkakvenna voru 266 þúsund krónur. Stjórnendur voru einnig með hæstu heildarlaunin árið 2012 á almennum vinnumarkaði eða 904 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Heildarlaun karlkyns stjórnenda voru 964 þúsund að meðaltali á mánuði og heildarlaun kvenkyns stjórnenda voru 745 þúsund krónur. Greiddar stundir karlkyns stjórnenda voru 40 stundir á viku að meðaltali og 39,7 stundir hjá kvenkyns stjórnendum. Þá voru um 20% karlkyns stjórnenda með heildarlaun hærri en 1.200 þúsund krónur á mánuði en um 10% kvenkyns stjórnenda. Hins vegar var afgreiðslufólk með lægstu heildarlaunin árið 2012 eða 367 þúsund krónur að meðaltali. Heildarlaun karla við afgreiðslustörf voru 394 þúsund krónur að meðaltali á mánuði og heildarlaun kvenna við afgreiðslustörf voru 333 þúsund krónur að meðaltali. Greiddar stundir voru að meðaltali 41,6 á viku, 41,9 stundir hjá körlum og 41,3 stundir hjá konum. Helmingur kvenna var með heildarlaun á bilinu 250-350 þúsund krónur á mánuði og 35% karla. Heildarlaun ber að skoða með tilliti til greiddra stunda þar sem mismunandi vinnustundafjöldi getur legið að baki þeim. Árið 2012 voru greiddar stundir færri hjá konum en körlum í öllum starfsstéttum. Greiddar stundir voru flestar hjá verkafólki eða 46,5 á viku en greiddar stundir verkakarla voru 47,0 á viku að meðaltali og verkakvenna 44,9. Þar á eftir komu iðnaðarmenn með 46,4 greiddar stundir á viku. Greiddar stundir karla í hópi iðnaðarmanna voru 46,5 á viku að meðaltali og kvenna 41,5.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira