Fleiri fréttir

Tölvuormur herjar á Facebook notendur

Öryggisþjónustur á netinu hafa gefið út viðvörun um að tölvuormur hafi náð að stela 45.000 lykilorðum af samskiptavefnum Facebook. Upplýsingunum hefur aðallega verið stolið af Facebook síðum í Bretlandi og Frakklandi.

Eignir lífeyrissjóða halda áfram að aukast

Eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að aukast en samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands nam hrein eign lífeyrissjóða 2.078 milljarða kr. í lok nóvember síðast liðins.

Skuldir Víkingaheima afskrifaðar að mestu

Skuldir tveggja félaga sem halda utan um Víkingaheima í Reykjanesbæ munu lækka um 60-70% samkvæmt uppgjörssamkomulagi þeirra við stærsta eiganda sinn, Reykjanesbæ, og lánardrottinn, Landsbankann. Félögin tvö, sem heita Íslendingur ehf. og Útlendingur ehf., skulduðu samtals um 620 milljónir króna í lok árs 2010.

Minna úrval vegna merkinga matvara

Hagar hafa að mestu leyti skipt út matvælum sem þarf að merkja vegna reglugerðar um merkingar á erfðabreyttum matvælum sem tók gildi um áramótin, að sögn Finns Árnasonar forstjóra.

Reyna enn að fá kyrrsetningu aflétt

Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, reyna enn að fá kyrrsetningu eigna sinna aflétt fyrir dómstólum. Málflutningur vegna þess fer fram í Hæstarétti í næstu viku.

Ofurálag á starfsfólk Framtakssjóðsins

"Þetta er búið að vera ofurálag á síðasta ári og bæði hafa verkefnin verið erfið og fjölmiðlaumræðan framan af ári var erfið,“ segir Finnbogi Jónsson, en tilkynnt var í dag að hann myndi láta af störfum sem framkvæmdastóri Framtakssjóðs Íslands. Hann segir þó að umræðan hafi gjörbreyst til batnaðar.

Finnbogi hættur hjá Framtakssjóðnum

Finnbogi Jónsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann hefur verið framkvæmdastjóri frá því að sjóðurinn var stofnaður fyrir um tveimur árum. Finnbogi mun taka að sér að sinna ákveðnum stjórnarstörfum fyrir félög sem eru í eigu Framtakssjóðsins.

Færri skipakomur til Faxaflóahafna

Í fyrra komu 1454 skip, stærri en 100 brúttótonn, til hafna Faxaflóahafna eða samanlagt rétt tæpar 7 milljónir brúttótonna.

Vöruskiptin 8 milljörðum lakari í fyrra en 2010

Fyrstu ellefu mánuðina í fyrra voru fluttar út vörur fyrir 566,0 milljarða króna en inn fyrir 468,6 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 97,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 105,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Arion banki býður Pennann til sölu

Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í Pennanum á Íslandi ehf. sem er í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf.

Evrópa á barmi hruns?

Í stuttri fréttaskýringarmynd ritstjórnar Wall Street Journal, Europe on the Brink, er dregin upp nöturleg mynd af stöðu mála í Evrópu. Skuldavandinn er djúpstæður og erfiður viðureignar. Myndin var birt á vef Wall Street Journal í gær.

Vilja selja þriðjung í HS Veitum sem fyrst

Reykjanesbær er að skoða að selja 15% hlut í HS Veitum til að greiða niður skuldir sínar. Sveitarfélagið á í dag 66,7% hlut í fyrirtækinu. Áætlað er að sala hlutarins fari fram á fyrstu mánuðum ársins. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar sem var samþykkt í bæjarstjórn 3. janúar síðastliðinn. Þá hefur Orkuveita Reykjavíkur (OR) hug á því að selja 16,6% eignarhlut sinn í HS Veitum í samstarfi við Reykjanesbæ. Íslandsbanki vinnur nú að verkefninu fyrir hönd sveitarfélagsins og OR. Því er samtals tæplega þriðjungshlutur í fyrirtækinu til sölu.

Dótturfyrirtæki Actavis greiðir tugi milljarða króna

Dótturfyrirtæki Actavis Group hefur samþykkt að greiða tæplega 119 milljónir bandaríkjadala, tæplega 15 milljarða íslenskra króna, vegna ásakana af hálfu bandarískra stjórnvalda og fjögurra fylkisstjórna í Bandaríkjunum um að hafa ofrukkað fyrrgreinda aðila vegna lyfja.

Nýr forstjóri Yahoo!

Yahoo! réð í dag Scott Thompson sem nýjan forstjóra fyrirtækisins, en hann var áður framkvæmdastjóri PayPal, sem er undir ebay.

Málsókn gegn sjömenningum lokið í NY - hugsanlega stefnt á Íslandi

Skilanefnd Glitnis hefur fallið frá stefnu gegn sjömenningunum svokölluðu fyrir dómstólum í New York. Lögmenn skilanefndarinnar skilaði ekki inn gögnum til áfrýjunarréttar eftir frávísun þess í lok árs 2010 og lauk því málarekstri opinberlega um áramótin.

Þrír framkvæmdastjórar ráðnir til FME

Þrír nýjir starfsmenn hafa verið ráðnir í stöður framkvæmdastjóra nýrra eftirlitssviða Fjármálaeftirlitsins.Stöður framkvæmdastjóra eftirlitssviðanna þriggja voru auglýstar í nóvember síðastliðnum og hefur Fjármálaeftirlitið nú gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra þeirra.

Alls voru 373 fasteignir seldar í borginni í desember

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember s.l. var 373. Heildarvelta nam 12,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 33,2 milljónir króna.

Tvöfalt meira fer í skattinn

Gjaldabreytingar embættis ríkisskattstjóra á félög og fyrirtæki námu sex milljörðum króna á árinu 2011.

Metár í fjölda gjaldþrota

Ljóst er að nýtt met verður slegið í fjölda gjaldþrota á árinu 2011, en fyrstu 11 mánuði ársins höfðu 1.426 fyrirtæki lagt upp laupanna. Þar með er fyrra met frá árinu 2010 slegið út, þegar gjaldþrot voru samtals 982 talsins.

Vísitala framleiðsluverðs lækkar

Vísitala framleiðsluverðs í nóvember síðastliðnum var 211,1 stig og lækkaði um 0,9% frá október. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Gjaldþrotum fjölgar um 63% milli ára

Fyrstu 11 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 1.432 sem er um 63% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 877 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar áfram

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka en það rauk upp um yfir 3% í gærdag. Tunnan af bandarísku léttolíunni er komin í tæpa 103 dollara og tunnan af Brent olíunni er í tæpum 112 dollurum.

Bankamenn ákærðir fyrir 150 milljarða skattsvik

Saksóknari á Manhattan í New York hefur ákært þrjá svissneska bankamenn fyrir að hafa aðstoðað Bandaríkjamenn við skattsvik sem nema um 1,2 milljörðum dollara eða tæplega 150 milljarða króna.

Mikill áhugi á að kaupa bréf í Hörpu

Skuldabréfaútgáfa upp á 18,3 milljarða króna til að endurfjármagna lántökur vegna byggingar tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu gæti orðið að veruleika í janúarmánuði. Portus, sem heldur utan um eignarhald Hörpunnar, hefur átt í viðræðum við banka um að sjá um útgáfuna og eru þær langt komnar. Þetta staðfestir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar. Hann segist sannfærður um að mikil eftirspurn verði eftir bréfunum, sérstaklega vegna þess að lítið er um fjárfestingartækifæri á Íslandi fyrir stóra fjárfesta á borð við lífeyrissjóði um þessar mundir.

A4 í eigu sömu aðila og Office 1

Heildverslunin Egilsson ehf. hefur keypt ritfangaverslanakeðjuna A4 af Björgu, eignarhaldsfélagi í eigu Sparisjóðsbankans. Fyrir á og rekur Egilsson ritfangaverslanirnar Office 1. Kaupverð er trúnaðarmál.

Nýir forstjórar hjá Alcoa á Íslandi

Janne Sigurðsson, framkvæmdastjóri framleiðslu Alcoa Fjarðaáls, hefur verið ráðin forstjóri Fjarðaáls frá og með 1. janúar síðastliðnum í stað Tómasar Más Sigurðssonar, sem hefur tekið við starfi forstjóra Alcoa í Evrópu með aðsetri í Genf.

Sala á Bentley jókst um 37%

Framleiðandi lúxusbílanna Bentley segir að sala á bílunum hafi aukist um 37% á síðasta ári. Eftirspurn sé nú orðin álíka mikil og hún var áður en efnahagssamdrátturinn byrjaði árið 2008. Um 7000 bílar seldust í fyrra. Aðalmarkaðurinn fyrir bílana er í Bandaríkjunum. Þar seldust 2021 bíll og jókst salan um 32%.

Áfengissalan dróst saman um 500 þúsund lítra

Áfengissala dróst saman um 2,7% á nýliðnu ári samanborið við árið 2010, samkvæmt tölum Vínbúðanna. Um 18,4 milljónir lítra af áfengi seldust í fyrra en um 18,9 milljónir lítra seldust árið á undan. Á heildina litið er aukning í sölu á léttvíni en samdráttur í bjór og sterku áfengi.

Hugsanlega að missa gott fólk

Störfum hefur ekki fjölgað þegar litið er til heildarinnar, segir Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að fólksflótti hafi verið til nágrannalandanna og hugsanlega séum við að missa gott fólk úr landi sem leiti atvinnutækifæra annarsstaðar. "Það er mjög slæmt fyrir þjóðfélagið í heildina," sagði Vilmundur Jósefsson í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Hann vonast þó til að ákveðnar stórframkvæmdir fari af stað á næstunni og vísar þar til framkvæmda í Helguvík og á Norðausturlandi.

Tæplega 800 sagt upp í hópuppsögnum

Á nýliðnu ári var 752 manns sagt upp í 23 hópuppsögnum, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Flestar uppsagnirnar voru í byggingariðnaði, eða um þriðjungur. Tæplega 70% uppsagnanna voru á höfuðborgarsvæðinu, um 9% á Vestfjörðum og 7% á Suðurnesjum, en færri í öðrum landshlutum.

Sjá næstu 50 fréttir