Vöruskiptin 8 milljörðum lakari í fyrra en 2010 5. janúar 2012 09:06
Fyrstu ellefu mánuðina í fyrra voru fluttar út vörur fyrir 566,0 milljarða króna en inn fyrir 468,6 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 97,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 105,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að í nóvembermánuði s.l. voru fluttar út vörur fyrir 53,5 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 7,9 milljarða króna. Í nóvember 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 7,2 milljarða króna á sama gengi. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings tæpum 59,0 milljörðum eða 11,6% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,3% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 54,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,7% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og afurða áls, og í útflutningi sjávarafurða, aðallega á frystum heilum fiski.Fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 67,0 milljörðum eða 16,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og fjárfestingarvöru.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira