Fleiri fréttir

Nýr framkvæmdastjóri Dohop

Kristján Guðni Bjarnason, verkfræðingur, tók við starfi framkvæmdastjóra íslensku ferðaleitarvélarinnar Dohop.com þann 1. ágúst síðastliðinn. Frosti Sigurjónsson sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun var á sama tíma skipaður stjórnarformaður.

Heldur dregur úr ásókn í leiguhúsnæði

Í júlí síðastliðnum var samtals 840 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst. Þetta er nokkur fjölgun frá því sem sést hefur undanfarna mánuði en það sem af er ári hefur að meðaltali 760 leigusamningum um íbúðarhúsnæði verið þinglýst í mánuði hverjum. Þetta er hinsvegar fækkun um 40 samninga frá því í sama mánuði fyrir ári síðan þegar 880 samningum var þinglýst.

Eignalaus skúffufyrirtæki skulda Byggðastofnun milljarð

Tvö af helstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. á Ísafirði og Vísir hf. í Grindavík, skulda Byggðastofnun um einn miljarð íslenskra króna í gegnum dótturfélög sín sem eru eignalaus skúffufyrirtæki.

Veruleg aukning á nauðungarsölum fasteigna

Veruleg aukning hefur orðið á nauðungarsölum fasteigna í Reykjavík í sumar miðað við sama tíma í fyrra. Raunar hefur fjöldinn fimmfaldast ef miðað er við mánuðina júní og júlí.

Viðsnúningur í rekstri Eik Banka á árinu

Samkvæmt uppgjöri Eik Banka fyrir fyrstu sex mánuði ársins hefur orðið viðsnúningur í rekstri bankans. Hagnaður varð af rekstrinum á fyrri hluta ársins upp á 3 milljónir danskra kr. eða ríflega 60 milljónir kr. Til samanburðar var tap upp á 87 milljónir danskra kr. á sama tímabili í fyrra.

Opinberir starfsmenn eyddu 400 þúsund í mat á Noma

Átta opinberir starfsmenn bæjarins Kolding í Danmörku verða nú að fara djúpt í vasa sína og borga að hluta til reikning eftir að þeir fóru út að borða á kostnað bæjarins á hinu þekkta veitingahúsi Noma.

Honda innkallar bifreiðar

Honda bílaframleiðandinn hefur ákveðið að innkalla 197 þúsund Accord bifreiðar og 117 þúsund Civic bifreiðar auk 69 þúsund Element bifreiðar frá árunum 2003 og 2004 vegna gruns um framleiðslugalla í kveikjulás.

1,7 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI stóð í stað í dag í 1,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,5 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði lítillega í 0,2 ma. viðskiptum.

Hefja áætlunarflug til Glasgow og Stokkhólms á næsta ári

Iceland Express ætlar að hefja áætlunarflug til Glasgow og Stokkhólms næsta sumar. Fyrirhugað er að fljúga þaðan og frá fleiri borgum í Evrópu og á Norðurlöndunum til Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi á leiðinni vestur um haf.

Upplýsti Ríkisendurskoðun um veð í rækju

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, segir að Byggðastofnun hafi upplýst Ríkisendurskoðun um að einu tryggingar fyrir lánum Byggðastofnunar til fyrirtækja á sviði rækjuvinnslu sé verðlaus rækjukvóti. Sveinn segir ekkert hafa komið fram um eitthvað óeðlilegt í bókhaldi Byggðastofnunar, en fjárhagur stofnunarinnar er bágborinn.

Ferðamannastraumurinn styrkir gengi krónunnar

Gengi krónunnar styrktist um 0,3% á föstudaginn síðastliðinn og er það í framhaldi af allnokkurri styrkingu hennar á skömmum tíma. Hefur gengi krónunnar nú hækkað um 2,4% á síðustu tveim vikum. Tengist hækkunin m.a. auknu gjaldeyrisinnflæði af ferðamannaþjónustu en það flæði er í árstíðarbundnu hámarki um þessar mundir.

Íbúðalánasjóður heldur óbreyttum vöxtum

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.

Niðursveifla hjá Buffett, verulega dregur úr hagnaði

Erlendir sérfræðingar eru nú að spá í hvort ofurfjárfestinum og goðsögninni Warren Buffett sé farið að förlast. Hagnaður hjá félagi hans, Berkshire Harhaway, minnkaði um 40% á öðrum ársfjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Danskir bankar hafa tapað 2.200 milljörðum

Danskir bankar hafa tapað 105 milljörðum danskra króna eða um 2.200 milljörðum króna í kreppunni frá því hún skall á árið 2008. Ef ekki hefði komið til aðstoð frá dönskum stjórnvöldum væri tap þessara banka þrefalt meira.

Ágúst og Lýður missa tökin á Existu

Stjórn Existu ætlar að freista þess að rifta tilteknum gjörningum sem fyrrverandi eigendur og stjórnendur félagsins framkvæmdu. Ágúst og Lýður Guðmundssynir, fyrrverandi aðaleigendur Existu, munu ekki eiga neitt í félaginu í framtíðinni.

Náði samkomulagi við konuna sem hann áreitti

Fyrrum forstjóri Hewlett-Packard tölvuframleiðandans, Mark Hurd, hefur náð samkomulagi um greiðslu bóta til konu sem sakaði hann um kynferðislega áreitni. Ásökun konunnar varð til þess að Hurd lét af forstjórastarfi í fyrirtækinu eins og Vísir sagði frá í gær.

Sara stefnir i gjaldþrot

Skuldir Söru Ferguson, greifynju af York, nema næstum fimm milljónum sterlingspunda. Breska konungsfjölskyldan óttast að hún stefni í gjaldþrot.

Sigmundur Davíð vel lofaður

Sambýliskona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, á 1,3 milljarða króna í hreina eign, ef marka má auðlegðarskattinn sem hún greiddi.

Hver farþegi skilar minni tekjum

Tekjur SAS flugfélagsins af hverjum farþega lækkuðu um 9% í júlí, samkvæmt nýjum tölum frá SAS. Norski viðskiptavefurinn e24 segir að þetta sé umtalsvert meira tap en flugfélagið hafði gert ráð fyrir.

Forstjóri HP hættir vegna ásakana um áreitni

Mark Hurd, forstjóri Hewlett-Packard tölvuframleiðandans, hefur sagt starfi sínu lausu eftir að hann var ásakaður um að hafa áreitt konu kynferðislega. Konan var viðskiptavinur fyrirtækisins. Talsmenn Hewlett-Packard segja að stefnumörkun fyrirtækisins gegn kynferðilegri áreitni hefði ekki verið brotin. Hins vegar hefðu reglur fyrirtækisins um viðskiptasiðferði verið brotnar. Cathie Lesjak hefur verið ráðin forstjóri Hewlett-Packard til bráðabirgða.

Kennitöluflakk á öllum stigum atvinnulífsins, líka í kjötvinnslu

Eigendur Kjötbankans, sem nú er gjaldþrota, skiptu um nafn á félaginu og fluttu vörumerki, heimasíðu og nafn félagsins í nýja kennitölu fyrir gjaldþrot. Fimmtán starfsmenn hins gjaldþrota félags hafa ekki fengið greidd laun fyrir júlí og óvíst hvort þeir fái launakröfur sínar greiddar.

Íslandsbanki ræður nýjan framkvæmdastjóra

Sigríður Olgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka og mun hún bera ábyrgð á upplýsingatækni, rekstri, bakvinnslu og gæðamálum.

Litlar breytingar á GAMMA

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,4% í dag í 6,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,5% í 3,4 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 2,7 ma. viðskiptum.

Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1200

Um 1200 fleiri ferðamenn fóru um Leifsstöð í júlí en í sama mánuði í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð í júlímánuði síðastliðnum voru 83.500. Aukningin nemur 1,5% á milli ára. Mun fleiri Íslendingar eða 23% fóru utan í júlímánuði í ár en í fyrra, voru 28.500 í júlí síðastliðnum en 23.100 á síðasta ári.

Greining spáir 0,5 prósentustiga stýrivaxtalækkun

Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti bankans um 0,50 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 18. ágúst næstkomandi.

Óska eftir tilnefningum í stjórnir sparisjóða

Bankasýsla ríkisins óskar eftir tilnefningum í stjórnir sparisjóða sem fyrirséð er að verði á forræði Bankasýslunnar. Nú er sérstaklega óskað eftir tilnefningum í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar. Í tilkynningu frá Bankasýslunni kemur fram að þriggja manna valnefnd, sem skipuð er af stjórn Bankasýslu ríkisins, undirbúi tilnefningar aðila fyrir hönd ríkisins í stjórnir fyrirtækja sem séu á forræði stofnunarinnar.

Leita að fólki til að stofna sprotafyrirtæki

Klak-Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins bíður fólki ókeypis námskeiðsgjöld í Viðskiptasmiðjunni í haust gegn því að leiða stofnun og uppbyggingu nýrra sprotafyrirtækja.

Um 4,5 milljarða afgangur af vöruskiptum

Vöruskiptin í júlí voru hagstæð um 4,5 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofunni. Útflutningur nam 43,9 milljötðum króna og innflutningur 39,4 milljörðum króna. Þetta er umtalsvert meiri afgangur af vöruskiptum en í júlí í fyrra en þá nam hann hálfum milljarði króna.

Sjá næstu 50 fréttir