Heldur dregur úr ásókn í leiguhúsnæði 10. ágúst 2010 11:14
Í júlí síðastliðnum var samtals 840 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst. Þetta er nokkur fjölgun frá því sem sést hefur undanfarna mánuði en það sem af er ári hefur að meðaltali 760 leigusamningum um íbúðarhúsnæði verið þinglýst í mánuði hverjum. Þetta er hinsvegar fækkun um 40 samninga frá því í sama mánuði fyrir ári síðan þegar 880 samningum var þinglýst. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heldur virðist vera að draga úr þeirri miklu sókn sem varð í leiguhúsnæði í kjölfar bankahrunsins. Fyrstu 7 mánuði þessa árs var til að mynda samtals 5.436 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst sem er fækkun um tæplega 3,5% frá sama tímabili fyrir ári síðan. Engu að síður er enn um gríðarlega mikil sókn í leiguhúsnæði miðað við það sem áður var. Þannig var t.d. aðeins 5.000 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á ári að meðaltali frá árinu 2005 og til og með 2007. Engan þarf að undra að sókn í leiguhúsnæði hafi verið jafn mikil og raun ber vitni undanfarin misseri. Mikil óvissa ríkir á íbúðamarkaði um hvernig framboð og eftirspurn muni þróast þar sem endurskipulagning á skuldum heimilanna er enn í vinnslu. Þessi óvissa sem hefur skapast um hvaða úrræði séu í boði og hvort meira sé í vændum hefur gert það að verkum að margir halda að sér höndum og bíða. Nú hefur óvissa um lögmæti gengistryggðra húsnæðislána bæst við og aukið enn á óvissuna. Í árferði sem þessu er því eðlilegt að margir sem áður hefðu íhugað íbúðakaup leiti á leigumarkaðinn og því má búast við að leigumarkaðurinn verði enn um sinn nokkuð eftirsóttur kostur.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira