Fleiri fréttir

Seðlabankinn gat ekki komið í veg fyrir Icesave klúðrið

Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir að Seðlabanki Íslands hafi ekki getað komið í veg fyrir Icesave klúðrið. Þetta kemur fram í erindi sem Ingimundur átti að flytja í málstofu hjá finnska seðlabankanum í dag.

Danske Bank kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp

Stærsti banki Danmerkur, Danske Bank, er nú kominn á hnéin eftir gífurleg útlánatöp á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Og Peter Straarup bankastjóri bankans aðvarar hlutahafa um að ástandið muni versna á þessu ári.

Toyota spáir miklu tapi

Japanski bílaframleiðandinn Toyota gerir ráð fyrir að tapa 450 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 560 milljarða króna, vegna samdráttar á bílamarkaði á síðasta ári. Þetta er þrisvar sinnum meira en fyrri spá bílaframleiðandans hljóðaði upp á.

Hækkun í Asíu

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun, einkum bréf banka og hátæknifyrirtækja. Aukinnar bjartsýni gætir nú hjá fjárfestum vegna björgunaraðgerða ríkisstjórna og hækkuðu bréf Lenovo-tölvuframleiðandans í Hong Kong um 10 prósent eftir að skipt var um stjórn hjá fyrirtækinu. Japanska Nikkei-hlutabréfavísitalan þokaðist upp um eitt og hálft prósent.

Samvinna er forsenda hagvaxtar

Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Timothy Geithner, sagði í dag að það væri mjög mikilvægt fyrir Bandaríkin að vinna með öðrum ríkjum að því að auka hagvöxt í heiminum.

Búnir að missa Baug

Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson hafa misst Baug. „Ég held að það þurfi mjög mikið til að svo verði ekki," sagði Jóhannes sem var gestur Björns Inga í Markaðnum nú undir kvöld.

Landsbankinn hefur gengið að veðum í BG Holding

Landsbanki Íslands hf. hefur gengið að veðum í BG Holding ehf. sem er gert í beinu framhaldi af beiðni um greiðslustöðvun sem send var enskum dómstóli í gær. Þetta kemur fram í skilanefnd frá Landsbankanum.

Jóhannes í Markaðnum

Jóhannes Jónsson i Bónus verður gestur Björns Inga Hrafnssonar í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld. Þar mun Jóhannes svara því hvort Baugsævintýrið sé á enda nú þegar að félagið hefur óskað eftir greiðslustöðvun

Eimskip rauk upp um tæp 55 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu rauk upp um 54,55 prósent í Kauphöllinni í dag. Aðeins tvö viðskipti standa á bak við hækkunina en gengi bréfa skipaflutningafélagsins standa nú í 85 aurum á hlut.

Óskar í fjögurra manna hópi Árvakurs

Óskar Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi forstjóri Tryggingarmiðstöðvarinnar staðfestir í samtali við Vísi að hann fari fyrir hópi sem gert hefur tilboð í Árvakur, Útgáfufélag Morgunblaðsins. Óskar hefur ekki viljað gefa upp hverjir það eru sem standa að baki tilboðinu með sér en nú fær hópurinn aðgang að frekari gögnum frá Nýja Glitni sem er stærsti lánadrottinn útgáfufélagsins. Opnað verður fyrir þau gögn á morgun.

Ráðgjafar fjármálaráðuneytis Bretlands vissu um aðgerðina

Lárus Finnbogason formaður skilanefndar Landsbankans furðar sig á fréttum um að bresk stjórnvöld séu æf af reiði vegna beiðni um greiðslustöðvun hjá BG Holding ehf. „Ráðgjafar breska fjármálaráðuneytisins vissu af því sem til stóð og að við ætluðum í þessa aðgerð," segir Lárus.

Eignir Baugs nema um þriðjungi af skuldum félagsins

Blaðið Telegraph hefur eftir heimildarmönnum sínum að eignir Baugs í Bretlandi nemi í besta falli um þriðjungi af skuldum félagsins. Eignirnar eru metnar á um 400 milljónir punda en skuldir Baugs við íslensku bankanna nemi um 1,3 milljarði punda eða um 200 milljörðum kr..

Stýrivextir í Bretlandi aldrei lægri

Englandsbanki lækkaði stýrivextir um 50 punkta í dag og fara þeir við það úr 1,5 prósentum í eitt prósent. Þeir hafa aldrei verið lægri.

Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu

Evrópski seðlabankinn hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 2,0 prósentum. Þetta er í samræmi við væntingar en bankinn hefur lækkað vextina hratt síðastliðna fjóra mánuði.

Íslenskt vinnuafl orðið með því ódýrasta í V-Evrópu

Raungengi íslensku krónunnar er nú afar lágt, hvort sem miðað er við verðlag eða launakostnað. Hefur hlutfallslegur launakostnaður fallið enn hraðar en verðlag undanfarið og má segja að íslenskt vinnuafl sé orðið með því ódýrasta í Vestur-Evrópu í kjölfar gengishruns krónu á síðasta ári.

Breytingar á stjórn Seðlabankans auka trúverðugleika bankans

Greining Glitnis telur að breytingar á stjórn Seðlabankans séu til þess fallnar að auka trúverðugleika Seðlabankans innan lands sem utan, en aukinn trúverðugleiki á íslensku fjármálakerfi er afar mikil vægur þáttur í endurreisn efnahagslífsins á komandi misserum.

Nokkuð fæst upp í kröfur hjá Kaupþingi

Skilanefnd Kaupþings hefur birt mat á eignum bankans. Matið er framkvæmt af nefndinni og sérfræðingum innan bankans sem hafa þekkingu á eignunum. Niðurstaðan er sú að eignirnar eru metnar á ríflega 618 milljarða kr. og eru að mestu lán til viðskiptavina að fjárhæð 250 milljarða kr.

Birtíngur eignast ekki Árvakur

Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs segist ekki hafa gert tilboð í Árvakur, Útgáfufélag Morgunblaðsins, en frestur til þess rann út í gær. Fjórir hópar fá að gera skuldbindandi tilboð í útgáfuna en það er fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis sem sér um söluferlið á útboði hlutafés í félaginu. Tilboðum skal skilað inn eigi síðar en 17.febrúar.

Bakkavör rýkur upp um þrettán prósent

Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur hækkað um 12,97 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í morgun. Fyrirtækið greindi frá því fyrr í dag að það hefði innleyst 104 milljónir punda, um 17 milljarða króna, af reikningi Nýja Kaupþings.

Bakkavör fær 104 milljónir punda frá Kaupþingi

Bakkavör hefur nú innleyst 104 milljónir punda, eða um 17 milljarða kr., af reikningi félagsins hjá Nýja Kaupþingi banka en upphafleg fjárhæð nam 150 milljónum punda. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins sem birt var í morgun.

Össur hf. hagnaðist um rúma 3 milljarða kr í fyrra

Hagnaður Össurar hf. á síðasta ári nam 28,5 milljónum dollara eða rúmlega 3 milljörðum kr. samanborið við 7,6 milljónir dollara á sama tímabili árið 2007. Verður að telja þetta mjög góðan árangur.

Glitnir gjaldfellir öll lán Baugs

Skilanefnd Gamla Glitnis ákvað í dag að gjaldfella öll lán Baugs Group og tengdra félaga, segir í tilkynningu sem send var fjölmiðlum. Þar kemur fram að þetta hafi verið gert í framhaldi af ákvörðun skilanefndar Landsbanka Íslands hf. um að óska eftir greiðslustöðvun hjá BG Holding ehf.,

Fréttaskýring: Stefnuræðan var stund Steingríms

Það er óhætt að segja að stefnuræða Jóhönnu Sigurðardóttur á alþingi í kvöld hafi verið stund Steingríms J. Sigfússonar formanns VG. Hann einfaldlega brilleraði í ræðu sinni og maður hálf vorkenndi Framsóknarkappanum að koma fram á sviðið í framhaldinu.

Berghildur Erla verður upplýsingafulltrúi Kaupþings

Berghildur Erla Bernharðsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Nýja Kaupþings. Berghildur lauk M.A. prófi í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands árið 2008, prófi í hagnýtri fjölmiðlun 1995 og B.A. prófi í félags- og viðskiptafræði 1994 frá sama skóla.

Fjórir fá að bjóða í Árvakur

Fjórum fjárfestum hefur verið boðið að leggja fram skuldbindandi tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, en tilboðin eiga að berast í síðasta lagi 17. febrúar næstkomandi.

Vörukarfa ASÍ ódýrust í Bónus

Um 8,1 % verðmunur reyndist á matvörukörfu ASÍ þegar verð var kannað í lágvöruverðsverslunum í gær. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði kr. 12.421 en dýrust í Nettó kr. 13.422.

Eimskip féll um rúm 45 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um 45,55 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur það nú í 55 aurum á hlut. Markaðsverðmæti skipaflutningafélagsins miðað við stöðuna er rétt rúmur einn milljarður króna.

Aðstoðarmaðurinn vissi um það sem ráðherra neitar

Það er athyglisvert að Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar viðskiparáðherra virðist hafa verið betur upplýstur en ráðherrann um tilboð Breta um að koma Icesave í breska lögsögu.

Alveg gáttaður á ummælum Jóns Ásgeirs um aðkomu Davíðs

"Ég er eiginlega alveg gáttaður á þessum orðum Jóns Ásgeirs enda eru þau fjarstæða," segir Lárus Finnbogasonm formaður skilanefndar Landsbankans um þau ummæli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að greiðslustöðvun Baugs sé runnin undan rifjum Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra.

Lárus segir að ekkert verði selt frá Baugi í Bretlandi

Lárus Finnbogason formaður skilanefndar Landsbankans segir að ekki standi til að selja neinar af verslunum eða eigum Baugs í Bretlandi meðan á greiðslustöðvun félagsins stendur og hún gæti staðið árum saman.

Afar sterk eiginfjárstaða bjargaði Straumi í umrótinu

William Fall, forstjóri Straums segir að afar sterk eiginfjárstaða hefur hjálpað Straumi gegnum umrótið á síðasta ári. Eins og fram hefur komið í fréttum nam tap Straums á síðasta ári 105 milljörðum kr. sem er Íslandsmet.

Samkeppniseftirlitið beitir Teymi dagsektum

Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl.

Ekkert lát á hópuppsögnum

Enn er nokkuð um hópuppsagnir en alls misstu 167 manns vinnuna í janúar mánuði í slíkum uppsögnum. Hópuppsagnirnar voru samtals 10 talsins í mánuðinum og voru 4 þeirra í mannvirkjagerð.

Sjá næstu 50 fréttir