Viðskipti innlent

Ekkert lát á hópuppsögnum

Enn er nokkuð um hópuppsagnir en alls misstu 167 manns vinnuna í janúar mánuði í slíkum uppsögnum. Hópuppsagnirnar voru samtals 10 talsins í mánuðinum og voru 4 þeirra í mannvirkjagerð.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að einnig voru hópuppsagnir í flutningastarfsemi, fjármálastarfsemi, verslun, iðnaði, upplýsinga og útgáfustarfsemi.

Eins og fyrri mánuði eru helstu ástæður hópuppsagna, rekstrarerfiðleikar og verkefnaskortur enda árferðið afar erfitt um þessar mundir í íslensku atvinnulífi. Atvinnuleysi jókst stórum í janúarmánuði en alls voru um 13.000 manns skráðir án atvinnu hjá vinnumiðlunum í lok mánaðarins samanborið við 8.900 í lok síðastliðins árs. Atvinnulausum fjölgaði því um rúmlega 4.000 manns í janúarmánuði en atvinnuleysi er nú rúmlega 7,5% og mun líklega enn hækka á næstu mánuðum.

Að mati Vinnumálastofnunar mun atvinnuleysi fara upp í 9-10% strax á vormánuðum þessa árs sem nemur því að þá verði um það bil 17.000 manns án atvinnu. Reikna má með að atvinnuleysi aukist mikið næstu mánuði þegar hópuppsagnir undanfarinna mánaða taka gildi. Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar tóku hópuppsagnir 1.100 manna gildi nú í byrjun febrúar og hópuppsagnir 500 manna taka gildi í byrjun mars.

Alls misstu 5.100 manns vinnuna í hópuppsögnum á síðasta ári en 70% uppsagnanna urðu á síðustu þremur mánuðum ársins í kjölfar bankahrunsins. Mest var um hópuppsagnir í mannvirkjagerð en 41% hópuppsagnanna voru í þeim geira. 15% uppsagnanna voru í verslun og viðgerðum, 14% í fjármála- og tryggingastarfsemi og 11% í flutningum.

Hópuppsagnirnar urðu að stærstum hluta vegna starfsfólks á höfuðborgarsvæðinu eða um það bil 80% uppsagnanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×