Fleiri fréttir Gengi Eimskipafélagsins féll um 16,5 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um tæp 16,5 prósent undir lok viðskipta í Kauphöllinni í dag. Að öðru leyti einkenndist dagurinn af hækkun hlutabréfaverðs. 8.9.2008 15:42 Gengi Fannie Mae og Freddie Mac hrundi Gengi hlutabréfa í hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac hrundi um rúm áttatíu prósent við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Þetta er nokkurn vegin í samræmi við væntingar eftir að tilkynnt var í gær að stjórnvöld hafi tekið yfir stjórn stjóðanna. 8.9.2008 13:34 Eignamiðlun opnar makaskiptavef „Þetta hefur verið gert í gegnum tíðina, en er kannski algengara þegar það er tregari sala," segir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali hjá Eignamiðlun. Eignamiðlun hefur opnað vefinn skiptu.is þar sem fólk í fasteignahugleiðingum getur skipt á eignum. 8.9.2008 13:26 Stefnir í mikla hækkun vestanhafs Allt stefnir í mikla hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði við upphafi viðskiptadagsins. Skýringin liggur í mikilli bjartsýni fjárfesta beggja vegna Atlantsála á yfirtöku ríkisins á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac. 8.9.2008 13:18 Lægra verð fæst fyrir listaverkin Listaverk fóru mörg hver á aðeins helmingi þess verðs sem sett var á þau á uppboði Gallerí Foldar í gærkvöldi. 8.9.2008 12:37 Bilun í bresku kauphöllinni Viðskipti liggja niðri í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi vegna bilunar. Kauphöllin segir um tæknileg vandræði að ræða. Óvenjumikil velta með hlutabréf í dag kunni að hafa ofkeyrt kauphallarkerfið. 8.9.2008 10:43 Spron upp um tæp 11 prósent Gengi hlutabréfa í Spron rauk upp um 10,77 prósent í hækkanahrinu við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Gengið stendur í 3,6 krónum á hlut, sem eru svipaðar slóðir og það stóð í við upphaf mánaðar. 8.9.2008 10:06 Wood & Company eykur hlutdeild sína utan Tékklands Tékkneski fjárfestingabankinn Wood & Company, sem Straum-Burðarás á helmingshlut í, jók í ágústmánuði hlutdeild sína í miðlun verðbréfa í kauphöllum utan Tékklands. Hlutdeildin hefur aldrei verið hærri í Póllandi. 8.9.2008 09:46 Krónan styrkist eftir mikla veikingu Gengi íslensku krónunnar hefur hækkað um 0,5 prósent á gjaldeyrismarkaði í dag og stendur gengisvísitalan í 162,8 stigum. Gengið lækkaði nokkuð í síðustu viku, þar af féll það um tvö prósent á föstudag. 8.9.2008 09:35 Kaupþingsbréf stökkva upp í erlendri hækkanahrinu Hlutabréf í Kaupþingi sem skráð eru á markað í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa hækkað um 3,32 prósent það sem af er dags. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum sem almennt einkennast af mikilli hækkun. 8.9.2008 09:14 Gerðu íslenska útgáfu af eBay 8.9.2008 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Gengi Eimskipafélagsins féll um 16,5 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um tæp 16,5 prósent undir lok viðskipta í Kauphöllinni í dag. Að öðru leyti einkenndist dagurinn af hækkun hlutabréfaverðs. 8.9.2008 15:42
Gengi Fannie Mae og Freddie Mac hrundi Gengi hlutabréfa í hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac hrundi um rúm áttatíu prósent við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Þetta er nokkurn vegin í samræmi við væntingar eftir að tilkynnt var í gær að stjórnvöld hafi tekið yfir stjórn stjóðanna. 8.9.2008 13:34
Eignamiðlun opnar makaskiptavef „Þetta hefur verið gert í gegnum tíðina, en er kannski algengara þegar það er tregari sala," segir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali hjá Eignamiðlun. Eignamiðlun hefur opnað vefinn skiptu.is þar sem fólk í fasteignahugleiðingum getur skipt á eignum. 8.9.2008 13:26
Stefnir í mikla hækkun vestanhafs Allt stefnir í mikla hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði við upphafi viðskiptadagsins. Skýringin liggur í mikilli bjartsýni fjárfesta beggja vegna Atlantsála á yfirtöku ríkisins á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac. 8.9.2008 13:18
Lægra verð fæst fyrir listaverkin Listaverk fóru mörg hver á aðeins helmingi þess verðs sem sett var á þau á uppboði Gallerí Foldar í gærkvöldi. 8.9.2008 12:37
Bilun í bresku kauphöllinni Viðskipti liggja niðri í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi vegna bilunar. Kauphöllin segir um tæknileg vandræði að ræða. Óvenjumikil velta með hlutabréf í dag kunni að hafa ofkeyrt kauphallarkerfið. 8.9.2008 10:43
Spron upp um tæp 11 prósent Gengi hlutabréfa í Spron rauk upp um 10,77 prósent í hækkanahrinu við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Gengið stendur í 3,6 krónum á hlut, sem eru svipaðar slóðir og það stóð í við upphaf mánaðar. 8.9.2008 10:06
Wood & Company eykur hlutdeild sína utan Tékklands Tékkneski fjárfestingabankinn Wood & Company, sem Straum-Burðarás á helmingshlut í, jók í ágústmánuði hlutdeild sína í miðlun verðbréfa í kauphöllum utan Tékklands. Hlutdeildin hefur aldrei verið hærri í Póllandi. 8.9.2008 09:46
Krónan styrkist eftir mikla veikingu Gengi íslensku krónunnar hefur hækkað um 0,5 prósent á gjaldeyrismarkaði í dag og stendur gengisvísitalan í 162,8 stigum. Gengið lækkaði nokkuð í síðustu viku, þar af féll það um tvö prósent á föstudag. 8.9.2008 09:35
Kaupþingsbréf stökkva upp í erlendri hækkanahrinu Hlutabréf í Kaupþingi sem skráð eru á markað í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa hækkað um 3,32 prósent það sem af er dags. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum sem almennt einkennast af mikilli hækkun. 8.9.2008 09:14
Ríkið tekur yfir Fannie Mae og Freddie Mac Bandaríska ríkið tók yfir rekstur hálfopinberu bandarísku fasteignalánasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac í dag og mun halda um stjónartaumana út næsta ár hið minnsta. Þetta er umfangsmesta björgunaraðgerð í bandarískum fjármálaheimi til þessa. 7.9.2008 18:52
Ísland gæti orðið nær óháð erlendum orkugjöfum Ísland gæti innan skamms orðið nær óháð erlendum orkugjöfum samhliða komandi fjöldaframleiðslu á rafmagns- og tengil-tvinnbílum Stefnumarkandi fundur bílaframleiðenda og orkufyrirtækja í Reykjavík verður haldinn í september. 7.9.2008 17:06
Segir kröfu Stones Invest á hendur Landic Propery fáránlega Páll Benediktsson uplýsingafulltrúi Landic Property segir að krafa Stones Invest á hendur Landic fyrir fógetaréttinum í Kaupmannahöfn sé fáranleg. "Þetta eru einhverskonar taugaveiklunarviðbrögð við gjaldþrotakröfu okkar á hendur Stones Invest," segir Páll. 7.9.2008 14:35
Ríkisstofnanir lýstar með Osram-perum í tvö ár Jóhann Ólafsson og Co., umboðsaðili OSRAM á Íslandi í 60 ár, undirritaði í gær samning við Ríkiskaup um sölu á ljósaperum til liðlega 650 fyrirtækja og stofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga, sem í dag eiga aðild að rammasamningakerfi Ríkiskaupa. 7.9.2008 14:17
Aðildarviðræður við ESB nauðsyn til að fá svör við spurningum Jónas H. Haralz fyrrum bankastjóri og efnahagsráðgjafi segir að það sé nauðsynlegt að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið til að fá skýr svör um hvað það hefði í för með sér. 7.9.2008 13:27
Erfiðir tímar framundan hjá French Connection Sérfræðingar telja að afkoman hjá fataverslunarkeðjunni French Connection verði í kringum núllið eftir fyrri helming ársins og að erfiðir tímar séu framundan í rekstri keðjunnar. 7.9.2008 11:49
Sony innkallar 500.000 fartölvur um allan heim Sony hefur innkallað tæplega 500.000 Vaio fartölvur um allan heim. Þetta kemur í kjölfar fjölda kvartana um að eldur hafi óvænt komið upp í fartölvunum og skaðað eigendur þeirra. 7.9.2008 11:19
Verkfall lamar Boeing verksmiðjurnar í Bandaríkjunum Öll framleiðsla hjá Boeing verksmiðjunum, stærsta flugvélaframleiðenda í heimi, liggur nú niðri vegna verkfall starfsmanna. Alls eru um 27.000 manns hjá verksmiðjunum í verkfalli. 7.9.2008 10:36
Segja að símafélagið DNA vilji kaupa Novator út úr Elisa DNA sem er þriðja stærsta símafyrirtæki Finnlands er sagt hafa áhuga á því að kaupa hlut Novators í símafélaginu Elisa. Þetta kemur fram í dagblaðinu Helsingin Sanomat í dag. 6.9.2008 16:37
Konur fá 50 milljónir króna Til stendur að úthluta 50 milljónum króna til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir, samkvæmt auglýsingu Vinnumálastofnunar og félagsmálaráðuneytisins um styrki vegna atvinnumála kvenna. 6.9.2008 18:00
VÍS semur við Applicon Vátryggingafélag Íslands (VÍS) hefur valið SAP fjárhagslausn frá Applicon til þess að annast fjárhagsbókhald, innheimtu, utanumhald um viðskiptamenn, kröfur og einnig fjárhagsáætlanagerð. 6.9.2008 15:51
Segja tímakaup lögmanns álíka og að leigja dýpkunarskip Kjörnir skoðunarmenn ársreiknings Fjórðungssambands Vestfirðinga gera athugasemdir við háan reikning frá lögmannsstofu með þeim orðum að tímakaupi sé álíka hátt og það sem Landhelgisgæslan taki fyrir heilt skip við dýptarmælingar. 6.9.2008 15:24
Landic gerir kröfu um gjaldþrot hjá Stones Invest Landic Property hefur sett fram kröfu um gjaldþrot hjá Stones Invest og verður krafan tekin fyrir í Sjó-og kauprétti Kaupmannahafnar á mánudag. 6.9.2008 14:15
Vísitölur enduðu beggja vegna núllsins Helstu hlutabréfavísitölur Bandaríkjanna enduðu beggja vegna núllsins í dag og batt þar með enda á fjögurra daga samfellt lækkunarferli á þarlendum fjármálamörkuðum. 5.9.2008 20:40
Árvakur og 365 ræddu samstarf að frumkvæði banka Bæði Þór Sigfússon, stjórnarformaður Árvakurs, og Ari Edwald, forstjóri 365 staðfesta að þreifingar hafi verið á milli fjölmiðlafélaganna um samstarf. 5.9.2008 16:11
Eimskip leiddi lækkanir dagsins Þrettán félög lækkuðu í Kauphöllinni í gær en aðeins eitt félag hækkaði. Þar var um að ræða færeyska bankann Eik en bréf í honum hækkuðu um 3,77 prósent. Það var hins vegar Eimskip sem leiddi lækkanir í dag en bréf í því lækkuðu um 7,19 prósent. Exista fylgdi á eftir með 5,59 prósent lækkun og Century Aluminum lækkaði um 5,49 prósent. 5.9.2008 15:52
Vélknúinn höfrungur til sölu -myndband Höfrungurinn heitir fley sem er einhverskonar sambland af hraðbáti, kafbáti og höfrungi. Hann getur náð sjötíu kílómetra hraða. 5.9.2008 14:42
Fengu ekki nægilegar upplýsingar um stöðu Nyhedsavisen Fjárfestingasjóðurinn Draper Fisher Juvertson, segir að ónógar upplýsingar um stöðu Nyhedsavisen hafi leitt til þess að þeir hafi ákveðið að halda að sér höndum við frekari fjármögnun blaðsins. Sú ákvörðun leiddi til þess að blaðinu var lokað. 5.9.2008 13:18
Atvinnuleysi eykst í Bandaríkjunum Atvinnuleysi mældist 6,1 prósent í síðasta mánuði, samkvæmt nýjustu tölum bandarísku vinnumálastofnunarinnar, sem birtar voru í dag. Þetta er 0,4 prósentustiga á milli mánaða en atvinnuleysið hefur ekki verið jafn mikið í tæp fimm ár. 5.9.2008 13:10
Krónan fellur áfram Gengi íslensku krónunnar hefur fallið um tvö og hálft prósent í morgun. Þá hefur úrvalsvísitalan lækkað um tæp tvö prósent. 5.9.2008 12:11
Olíuverð lækkar - í samræmi við styrkingu bandaríkjadals Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað lítillega í dag. Þetta er í samræmi við styrkingu á gengi bandaríkjadals gagnvart helstu myntum, þar á meðal íslensku krónunni. 5.9.2008 11:49
Krónan fellur um tvö prósent Gengi íslensku krónunnar hefur verið á viðstöðulausri niðurleið í morgun og nemur fall hennar nú rúmum tveimur prósentum. Gengisvísitalan stendur nú í 164,9 stigum. 5.9.2008 11:23
Ólíklegt að Baugur kaupi Saks á þessu ári Bandaríska dablaðið the New York Post segist í dag hafa heimildir fyrir því að ólíklegt sé að Baugur kaupi verslunarkeðjuna Saks á þessu ári. Blaðið vitnar til orða Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs sem sagði fyrir um mánuði síðan að Baugur væri mjög áhugasamur um að kaupa keðjuna. Baugur á í dag um átta prósenta hlut í keðjunni, en Saks búðin á fifth avenue í New York er ein frægasta verslun heims. Heimildir blaðsins herma hinsvegar að ólíklegt sé að tilboð verði lagt fram á þessu ári. 5.9.2008 11:16
Rabobank gefur út 13 milljarða krónubréf Hollenski bankinn Rabobank gaf í dag út krónubréf til eins árs fyrir þrettán milljarða króna. Þetta er stærsta útgáfan frá því í mars, eða síðan þrenginga fór að gæta á innlendum gjaldeyrisskipamarkaði. 5.9.2008 10:51
Krónan veikist skyndilega á hálftíma Gengi krónunnar hefur veikst hastarlega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag, eða um 1,67 prósent, og stendur gengisvísitalan í 164,3 stigum. 5.9.2008 10:17
Eik banki einn á uppleið - önnur félög lækka Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka hefur hækkað um 0,94 prósent í Kauphöllinni í dag eftir 6,2 prósenta fall í gær. Á móti einkennist upphaf viðskiptadagsins af lækkun hlutabréfaverðs. 5.9.2008 10:08
Bandaríkjadalur svífur langt yfir krónuna Bandaríkjadalur fór rétt í þessu í 87,1 íslenskar krónur og hefur ekki verið dýrari síðan snemma í nóvember árið 2002. Hann hefur styrkst um 40 prósent gagnvart krónu frá áramótum. 5.9.2008 09:49
Enn ein lækkanarhrinan gengur yfir Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð eru í Nasdaq-OMX kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa lækkað um 1,85 prósent frá upphafi viðskiptadagsins í dag. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum eftir skell í gær. 5.9.2008 09:12
Fjárfestar sáu rautt í dag Helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála féllu um tvö prósent og meira í dag. Óbreytt stýrivaxtastig á evrusvæðinu og í Bretlandi auk vísbendinga um versnandi horfur í efnahagsmálum í Evrópu ollu falli á helstu hlutabréfum í álfunni. Í Bandaríkjunum ollu neikvæðar fréttir úr smásöluverslun og vísbendingar um breytt neyslumynstur því að fjárfestar urðu svartsýnir. Þá bætti ekki úr skák að atvinnuleysi hefur ekki verið meira síðan í nóvember árið 2003. 4.9.2008 23:39
Stýrivextir óbreyttir í Bretlandi og ESB Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 4,25%. Verðbólguspá bankans fyrir árið var hækkuð úr 3,4% í 3,5. Þá ákvað breski seðlabankinn, Bank of England, 4.9.2008 18:07
Össur: „Olía verður takmörkuð og eftirsótt auðlind“ Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sagði í ávarpi sínu við opnun ráðstefnu um kolvetnaleit við Ísland, Iceland Exploration Conference 2008, að það væri trú sín að olía yrði í framtíðinni takmörkuð og eftirsótt auðlind á enn hærra verði en nú þekkist. 4.9.2008 16:44
Vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 128 milljarða Seðlabankinn hefur birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2008 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins. 4.9.2008 16:23
Dollarinn rýfur 86 krónu múrinn Bandaríkjadalurinn rauf 86 krónu múrinn fyrir stundu. Það hefur ekki gerst síðan seint í nóvember árið 2002. Hann fór yfir 85 krónurnar í fyrsta sinn í tæp sex ár í gær. 4.9.2008 15:51
Úrvalsvísitalan niður um rúmt prósent - annan daginn í röð Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka féll um 6,2 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins sem litaðist af rauðum lit lækkunar á hlutabréfamarkaði. Þetta er jafnframt annar dagurinn í röð sem Úrvalsvísitalan lækkar um rúmt prósent. 4.9.2008 15:31