Viðskipti innlent

Vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 128 milljarða

Seðlabankinn hefur birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2008 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Viðskiptajöfnuður var óhagstæður á öðrum ársfjórðungi um 128 milljarða króna og ræður tap á beinni fjárfestingu Íslendinga erlendis, svokölluð endurfjárfesting, mestu þar um. „Halli þáttatekna hefur ekki áður mælst jafn mikill, og skýrist breytingin að mestu af tapi á beinni fjárfestingu. Vaxtakostnaður vegna erlendra skulda hefur einnig hækkað."

Vöruskipti í fjórðungnum voru nánast í jafnvægi en þjónustujöfnuður var neikvæður um 9,4 milljarða króna. Gengisáhrif voru fremur lítil í ársfjórðungnum, að því er fram kemur í tilkynningu Seðlabankans.

Þá segir að hreint fjárútstreymi hafi numið 55,5 milljörðum króna á tímabilinu en á fyrsta ársfjórðungi var fjárinnstreymi 133,2 ma.kr. „Erlendir aðilar eru taldir eiga 64,7 ma.kr. af þeim 75 ma.kr. innstæðubréfum sem Seðlabankinn gaf út á fyrri hluta árs 2008. Bein fjárfesting útlendinga hér á landi lækkaði um 107,6 ma.kr. sem stafar að mestu af lánahreyfingum sem tengjast tilfærslu fyrirtækja á milli landa en bein fjárfesting Íslendinga erlendis hækkaði um 10,8 ma.kr. Verðbréfaeign erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfum hækkaði um 286,5 ma.kr."

„Skekkjuliður í ársfjórðungsuppgjörinu er stór en jákvæður að þessu sinni og fer nærri að hann vegi upp neikvæðan skekkjulið síðustu fjögurra ársfjórðungsuppgjöra," segir einnig og bent á að reynsla Seðlabankans sé sú að skekkjuliður skýrist oftast af ónógum upplýsingum um fjármagnshreyfingar.

Hrein staða við útlönd var neikvæð um 2.095 milljarða í lok annars ársfjórðungs og versnaði um 27 milljarða í ársfjórðungnum. Endurmat á hreinni stöðu í lok síðasta árs leiddi til 196 milljarða bata.

Að síðustu segir Seðlabankinn að heimtur á skýrslum frá þeim aðilum sem ber að upplýsa bankann um erlend viðskipti hafi batnað að undanförnu en samt er nokkuð um að þær berist seint. „Slíkt hamlar vinnslu við uppgjör greiðslujafnaðar og erlendrar stöðu og dregur úr nákvæmni og upplýsingagildi uppgjöranna. Hvetur Seðlabankinn þá sem skila eiga skýrslum um erlend fjármagnsviðskipti og stöðu eigna og skulda til að gera enn betur."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×