Fleiri fréttir

Ungt framsóknarfólk harmar stöðu SPM

Stjórn félags ungra Framsóknarmanna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem fjallað er um stöðu Sparisjóðar Mýrasýslu (SPM).

Hamleys opnar í Indlandi

Hamleys leikfangaverslunarkeðjan sem er í eigu Baugs opnar síðar á árinu verslanir í Mumbai og Nýju Delí á Indlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Verðbólga eykst enn í Bretlandi

Vísitala neysluverðs fyrir júlí var birt í Bretlandi í morgun og jókst ársverðbólga úr 3,8% í 4,4% milli mánaða. Greiningaraðilar höfðu búist við heldur minni verðbólgu, eða 4,2%, samkvæmt meðalspá könnunar Bloomberg fréttaveitunnar. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem verðbólga í Bretlandi er yfir 3% efri þolmörkum Englandsbanka, en bankinn er á 2% verðbólgumarkmiði.

Lítil breyting á úrvalsvísitölunni

Úrvalsvísitalan lækkar örlítið í mrogunsárið eða um 0,02 prósent og stendur nú í 4220 stigum. Færeyja banki hækkar um 5,07 prósent, Bakkavör um 2,49 prósent, Exista um 1,71 prósent. Kaupþing lækkar um 0,56 prósent.

Örlítil styrking krónunnar

Krónan styrkist örlítið í morgunsárið en gengisvísitalan lækkaði um 0,10 prósent og stendur nú í 158,4 stigum. Evran kostar nú 122 krónur, dollarinn 81,7 krónur, breska pundið 155,3 krónur og danska krónan 16,3 krónur.

Dollarinn sækir í sig veðrið

Bandaríkjadalur hefur verið á mikilli siglingu á síðustu dögum og náði í dag sínu sterkasta gildi gagnvart evru í hálft ár.

Krónan að styrkjast

Krónan styrktist nokkuð í dag en gengisvísitalan lækkaði um 0,79 prósent og stendur nú í 158,6 stigum. Evran kostar nú 122 krónur, dollarinn 81,7 krónur, breska pundið 156,3 krónur og danska krónan 16,4 krónur.

Segir fjármálakreppu fram á næsta ár

Hlutabréfamarkaðir í heiminum munu ekki ná stöðugleika fyrr en í fyrsta lagi á öðrum ársfjórðungi næsta árs og verðbólga mun áfram aukast í heiminum á næstu mánuðum.

Lítil breyting á úrvalsvísitölunni

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,20 prósent í dag og stendur nú 4220 stigum. Exista hækkaði um 4,81 prósent og hafa bréf félagsins hækkað um 14 prósent frá byrjun síðustu viku. Eik banki hækkaði um 4,59 prósent og Bakkavör um 3,7 prósent. Bréf Atlantic Petroleum lækkuðu um 2,7 prósent, Century Aluminium um 2,46 prósent og Alfesca um 0,73 prósent.

Aldrei meiri veltuaukning á milli ára í dagvöruverslunum

Velta í dagvöruverslun jókst um rúm 22 prósent í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra á breytilegu verðlagi og hefur vöxturinn aldrei verið meiri frá því að farið var að mæla smásöluvísitöluna árið 2001.

Orð fjármálaráðherra óheppileg

Og orð fjármálaráðherra eru afar óheppileg, segir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, en ráðherra hefur sagt að hætt hafi verið við, alla vega í bili, að íslenska ríkið taki 500 milljarða króna lán til að styrkja gjaldeyrisforða sinn. Fyrst verði kjörin að batna, segir ráðherra.

Umferð um vef eve-online eykst um 55%

Samkvæmt vefmælingu Modernus frá því í síðustu viku jókst umferð um vefsíðu eve-online leiksins um 55%. Það er íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf sem heldur úti síðunni en leikurinn er einn sá vinsælasti á netinu. Hilmar Veigar Pétursson framkvæmdarstjóri fyrirtækisins segir aukninguna eiga sér eðlilegar skýringar.

Verðbólga í Danmörku ekki meiri í nærri 20 ár

Það er víðar en á Íslandi sem verðbólgan mælist í hæstu hæðum því greint er frá því í dönskum miðlum að verðbólga þar í landi hafi ekki verið hærri í nærri 20 ár, eða frá árinu 1989.

Lítil hreyfing í Kauphöllinni

Úrvalsvísitalan stendur nánast í stað við opnun markaða. Hún hefur lækkað um 0,01 prósent og stendur nú í 4214 stigum. Exista hækkaði um 1,93 prósent, Bakkavör um 0,37 prósent, Glitnir um 0,33 prósent. Alfesca lækkar um 0,44 prósent, Eimskip um 0,35 prósent og Icelandair um 0,28 prósent.

Krónan að styrkjast

Gengisvísitalan lækkar í morgunsárið um 0,41 prósent og stendur nú í 159,2 stigum. Evran kostar nú 122,7 krónur, dollarinn kostar 81,6 krónur, breska pundið 157 krónur og danska krónan 16,5 krónur.

Gildi gjaldeyrisláns ofmetið

Lektor við Háskólann í Reykjavík segir að gildi þess að taka 500 milljarða króna lán til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð landsmanna hafi verið ofmetið. Lausnin fyrir atvinnulífð sé að leita samninga við Evrópska Seðlabankann.

Verðbólgan í hæstu hæðum í Bretlandi

Búist er við því að Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, tilkynni um það í vikunni að verðbólga í Bretlandi hafi skotist upp á við og náð hæðum sem hún hefur ekki verið í síðastliðin 16 ár. Breska blaðið the Independent segir að verðbólgan sé líklega 4,5 prósent í landinu sem er 2,5 prósentum hærra en verðbólgumarkið ríkisstjórnarinnar. King þarf því að útskýra það fyrir Alistair Darling fjármálaráðherra, hvernig standi á þessari hækkun.

Fjármálaráðherra: Hætt við lántöku í bili

Hætt hefur verið við það í bili að íslenska ríkið taki 500 milljarða króna lán til að styrkja gjaldeyrisforða sinn. Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að það verði ekki gert fyrr en íslenska ríkið fái betri kjör á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum.

365 hf. úr Kauphöllinni í dag

Hlutabréf 365 hf., sem meðal annars rekur Vísi, voru tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni eftir lokun markaða.

Krónan styrkist í lok viku

Krónan styrktist í dag en gengisvísitalan lækkaði um 0,52 prósent og stendur nú í 159,9 stigum. Krónan hefur lækkað um 1,4 prósent í vikunni en á mánudag stóð gengisvísitalan í 157,7 stigum. Evran kostar nú 123,3 krónur, dollarinn 82 krónur, breska pundið 157,4 krónur og danska krónan 16,5 krónur.

Kauphöllinn upp í lok viku

Gengisvísitalan hækkaði um 0,77 prósent í dag og stendur úrvalsvísitalan nú í 4212 stigum. Bakkavör leiðir hækkunina en bréf félagsins hækkuðu um 4,23 prósent, bréf Existu hækkuðu um 2,11 prósent og bréf Icelandair um 1,45 prósent. Atlantic Petroleum lækkaði um 2,38 prósent, Century Aluminium um 1,93 prósent og hinn færeyski Eik banki um 1,42 prósent.

Olíutunnan í tvöhundruð dollara á næstu árum að mati sérfræðinga

Alvarlegur olíuskortur er handan við hornið og gæti tunnan farið yfir 200 dollara á tunnu að mati sérfræðihópsins Chatham house. Í nýrri skýrslu frá hópnum kemur fram að þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að framleiðsla olíu aukist gæti skorturinn farið að gera vart við sig á næstu fimm til tíu árum. Í skýrslunni segir að næg olía sé enn til, en fyrirtæki og ríkisstjórnir fjárfesti ekki nóg í henni til að tryggja áframhaldandi framleiðslu. Það eina sem gæti komið í veg fyrir olíukreppuna sé algjört hrun á eftirspurn.

2 milljarða króna viðbótarútgáfa krónubréfa

Þýski þróunarbankinn KfW tilkynnti í gær um 2 milljarða króna viðbótarútgáfu í flokk krónubréfa sem er á gjalddaga 15. júlí 2010. Bréfin bera 9,5% vexti en krafan er nokkuð lægri þar sem bréfin voru seld á yfirverði (100,95).

Ólympíuleikarnir kosta um 2 milljarða bandaríkjadala

Ólympíuleikarnir sem hefjast í Peking í dag eru mikilvægir ímynd Kína í alþjóðasamfélaginu og vonast Kínverjar til þess að þeir verði til sýna heimsbyggðinni hversu langt Kína hefur náð í alþjóða- og nútímavæðingunni. Til þess að ná þessu markmiði hefur Alþýðulýðveldið lagt út í verulegan kostnað vegna leikanna.

Lítil hreyfing í Kauphöllinni

Úrvalsvísitalan lækkar um 0,17 prósent og stendur nú í 4172 stigum. Bakkavör hefur hækkað um 0,58 prósent og Exista um 0,28 prósent. Bréf Eimskips hafa lækkað 0,7 prósent, Glitnis um 0,33 prósent og Straums um 0,54 prósent.

Krónan veikist

Krónan veikist lítillega í mrogunsárið en gengisvísitalan hækkar um 0,35 prósent í morgunsárið. Dollarinn kostar nú 82,3 krónur, evran 124,5 krónur, breska pundið 158,3 krónur og danska krónan 16,7 krónur.

Uppgjör Danske Bank betra en búist var við

Danske Bank, annar stærsti banki Norðurlanda að markaðsvirði, hagnaðist um 4.360 milljónir danskra króna, jafnvirði 72 milljarða króna, fyrir skatta samkvæmt uppgjöri fyrir annan ársfjórðung ársins.

European Consulting og Nordic Partners ná samkomulagi

European Consulting, félag í eigu Gísla Gíslasonar lögmanns, og fjárfestingafélagið Nordic Partners hafa náð samkomulagi um ráðgjafaþóknun þess fyrrnefnda vegna kaupa Nordic Partners á Remmen-hótelkeðjunni í Danmörku fyrir tæpu ári.

Krónan veikist

Krónan veiktist töluvert í dag en gengisvísitalan hækkaði um 1,49 prósent og stendur nú í 160,2 stig. Evran kostar nú 124,2 krónur, dollarinn 81 krónu, breska pundið 157,6 krónur og danska krónan 16,6 krónur.

Ekki skýrar vísbendingar um samkeppnisbrot á eldsneytismarkaði

Samkeppnisyfirvöld fylgjast með eldsneytismarkaðinum hér á landi og ekki eru skýrar vísbendingar um það að svo stöddu að ástæða sé til að ætla að olíufélögin brjóti samkeppnislög. Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Spron hækkar um 14,4 prósent

Spron hækkaði um 14,4 prósent í dag en sameining sjóðsins við Kaupþing var samþykkt á hluthfafafundi í gær. Exista hækkaði um 5,5 prósent og Össur um 2,11 prósent. Teymi lækkaði um 15,6 prósent í einum viðskiptum, Marel lækkaði um 0,84 prósent og Landsbankinn um 0,43 prósent.

Ný íslensk ferðaskrifstofa tekur til starfa

Ný íslensk ferðaskrifstofa, VITA, hefur nú tekið til starfa. Markmið VITA er að bjóða Íslendingum upp á fjölbreytt úrval skipulagðra afþreyingaferða, með tryggum flugkosti og framúrskarandi þjónustu á samkeppnishæfu verði. VITA er rekin af Iceland Travel, dótturfélagi Icelandair Group.

Glitnir og Landsbanki hækka við opnun

Úrvalsvísitalan lækkaði örlítið við opnun markaða í dag, eða um 0,11 prósent. Tvö félög hafa lækkað það sem af er degi, Össur hf, um 0,70 prósent og Straumur - Burðarás um 0,11 prósent. Þá hafa tvö félög hækkað, Landsbankinn um 0,65 prósent og Glitnir um 0,33 prósent. Veltan það sem af er degi er 234 milljónir.

Þórður Birgir selur Parket og gólf - bankinn bað nýjan eigenda að kaupa

Þórður Birgir Bogason, fyrrverandi forstjóri Mest og eigandi Parkets og gólfs, hefur hætt öllum afskiptum af fyrirtækinu. Heimildir Vísis herma að Glitnir, helsti lánadrottinn fyrirtæksins, hafi haft samt við núverandi eiganda Skapta Harðarson og boðið honum að kaupa það áður en fjárhagsvandræði þess yrðu því ofviða.

Krónan veikist lítillega

Króna veikist lítillega í morgunsárið en gengisvísitalan hefur hækkað um 0,11 prósent þar sem af er morgni. Stendur hún nú í 158 stigum. Evran kostar nú 122,9 krónur, dollarinn 79,5 krónur, breska pundið 155 krónur og danska krónan 16,5 krónur.

Þrír milljarðar í hagnað hjá Stork

Hollenska iðnsamstæðan Stork, sem er að fjórðunghlut í eigu Eyris Invest og Landsbankans, hagnaðist um 24 milljónir evra (tæpa 3 milljarða króna) á fyrri helmingi ársins

,,Ég er mjög ánægður"

Forstjóri SPRON er afar ánægður með niðurstöðu hlutahafafundar SPRON varðandi fyrirhugaðan samruna við Kaupþing. ,,Ég er mjög ánægður með að þessi áfangi er nú að baki og að tillagan hafi fengið jafn afgerandi stuðning hluthafa," segir Guðmundur Hauksson.

Sjá næstu 50 fréttir